Fréttablaðið - 19.12.2018, Blaðsíða 14
www.hokuspokus.is
Verslun og vefverslun
Laugavegi 69 S. 551-7955
Galdrasett
Kr. 7.490
Bessi
Kr. 4.490 Píla
Kr. 4.200
Viðarfjós með dýrum
Kr. 10.490
Búningar og leikföng eru
jólagjafirnar í ár!
Körfubolti Það hefur allt gengið
að óskum hjá Hildi Björgu Kjart-
ansdóttur, landsliðskonu, hjá
félagsliði sínu í vetur. Hildur Björg
færði sig um set á Spáni frá Leganes
síðasta vor og skrifaði í kjölfarið
undir samning við Celta de Vigo
Baloncesto. Hún flutti um leið frá
spænsku höfuðborginni Madrid til
Vigo sem er minni og þægilegri borg
að hennar mati.
Liðið hefur unnið fyrstu ellefu
deildarleiki sína á leiktíðinni og
stefnir hraðbyri að því að tryggja
sér farseðilinn i úrslitakeppni og í
kjölfarið sæti í efstu deild á næstu
leiktíð.
„Það urðu mjög miklar breytingar
hjá Legenes síðasta vor, þjálfarinn
hætti og fór til Rússlands og nánast
allir leikmenn liðsins fóru. Forráða-
menn Celta de Vigo Baloncesto
höfðu samband við mig og sögðu
mér að það ætti að setja saman lið
sem ætti að fara upp um deild og ég
ætti að vera í stóru hlutverki í því
liði. Mér leist strax mjög vel á það
og sló til,“ segir hún um vistaskiptin
í vor.
„Allt sem lagt var upp með hefur
gengið upp og ég tel mig hafa bætt
mig umtalsvert hérna. Bæði er
mikið lagt upp úr einstaklingsæf-
ingum og ég fæ betri hvíld og endur-
heimt á milli æfinga og leikja. Ég
get einbeitt mér af fullum krafti að
körfuboltanum hérna og það skilar
sér í betri leik inni á vellinum. Ég er
mestmegnis að spila sem fjarki, en
eftir að fimman okkar sleit liðband
hef ég leyst hana af hólmi þar einn-
ig,“ segir hún.
„Hugmyndafræðin hér er þannig
að leikmenn skipta leiktímanum
nokkurn veginn jafnt, en ef ein-
hver á betri leik en annar fær hann
að njóta þess með auka mínútum.
Þetta hentar mér mjög vel og mér
líður mjög vel hérna. Það er góð
stemming í félaginu og gott yngri-
flokkastarf. Það skilar sér í fínni
mætingu á leikina sem er mjög
gaman. Við setjum stefnuna á að
fara upp í vor og það er klárlega
raunhæft markmið,“ segir landsliðs-
konan um framhaldið hjá spænska
liðinu. – hó
Æfi mun oftar og betur hérna í Vigo
Faxafeni 11 • Sími 534 0534
Áramótaskraut
og hattar
Finndu okkur á
Hildur Björg FréttaBlaðið/eyþór
fótbolti Í enn eitt skiptið tókst
Jose Mourinho ekki að festa sig í
sessi til lengri tíma hjá liði þegar
honum var sagt upp störfum í gær
sem knattspyrnustjóra Manches-
ter United. Með því lauk 935 daga
stjóratíð hans á Old Trafford og
skilur hann við liðið í sjötta sæti
deildarinnar, nítján stigum á eftir
toppliði Liverpool og nær neðsta
sæti deildarinnar en því efsta þegar
tímabilið er að verða hálfnað. Undir
stjórn Mourinho unnust þrír titlar
á fyrsta árinu en slakt gengi undan-
farna mánuði, deilur við leikmenn
og stjórnina leiddu til brottreksturs.
Síðasta hálmstráið var neyðarlegt
1-3 tap gegn Liverpool um helgina.
Það var kunnuglegt að fylgjast
með deilum Mourinho og stjórnar
Manchester United í sumar. Allt
Komið að leiðarlokum hjá José
það virtist tímaspursmál hvenær Mourinho yrði rekinn eftir tap gegn erkifjendunum í liverpool. NordicPHotos/getty
Manchester United stað-
festi í gær að José Mour-
inho hefði verið sagt
upp sem knattspyrnu-
stjóra félagsins. Sá portú-
galski skilur félagið
eftir í vandræðum, nær
botnsæti deildarinnar
en efstu sætunum.
undirbúningstímabilið einkennd-
ist af sögusögnum um ósætti á milli
Mourinho og leikmanna ásamt
ósætti á milli Mourinho og stjórnar
félagsins. Mourinho var tilbúinn
að selja Anthony Martial til að fjár-
magna kaup á nýjum varnarmanni
en stjórn félagsins fór gegn honum.
Fyrir vikið óskaði Mourinho eftir
því að félagið myndi fjárfesta í
varnarmanni sem hann taldi sárlega
þurfa til að fullkomna leikmanna-
hópinn en fékk engan varnarmann.
Var því ansi margt líkt með þessu
og þegar hann var rekinn frá Chel-
sea 17. desember fyrir þremur árum,
hálfu ári eftir að hafa stýrt Chelsea
til sigurs í ensku úrvalsdeildinni.
Deilur við hátt setta aðila innan
félagsins og leikmanna leiddi til
þess að stjórn Chelsea átti engan
annan kost en að reka hann stuttu
fyrir jólin eftir dapurt gengi liðsins.
Þegar rýnt er í tölfræðina sést ber-
sýnilega að það þurfti að grípa til
aðgerða. Stigasöfnunin eftir sautján
leiki er sú versta í 28 ár og varnar-
leikurinn sem hefur verið aðals-
merki liða Mourinho hefur verið
hriplekur. Manchester United er
þegar búið að fá á sig fleiri mörk í
sautján leikjum tímabilsins en á öllu
síðasta tímabili.
Enskir fjölmiðlar voru fljótir að
velta sér upp úr því hver tæki við
keflinu og kom nafn þess norska
Ole Gunnar Solskjaer fljótlega
fram. Markahrókurinn fyrrverandi
hefur þjálfað lið Molde undanfarin
ár eftir misheppnaða dvöl hjá Car-
diff og er ætlað að rétta skútuna af
og stýra liði Manchester United út
tímabilið á meðan stjórnin finnur
langtímalausn.
Nafn Mauricio Pochettino hefur
ítrekað verið nefnt til sögunnar
þegar kemur að Manchester United.
Hann ýtti frekar undir orðróminn
þegar hann forðaðist spurningar
blaðamanna í gær um áhuga á því
að taka við Manchester United eftir
tímabilið.
Aðrir sem hafa verið nefndir til
sögunnar eru Zinedine Zidane, Laur-
ent Blanc og Ryan Giggs en það er
ljóst að það verður mikil pressa á
þeim sem tekur við keflinu.
Það stefnir allt í að sá þjálfari
verði sá fjórði sem er ráðinn frá
því að Sir Alex Ferguson hætti fyrir
rúmum fimm árum. Sá stöðugleiki
sem einkenndi félagið í þau 27 ár
virðist horfinn enda sama pressa á
að ná árangri og berjast um titla á
hverju ári ásamt því að spila aðlað-
andi knattspyrnu.
kristinnpall@frettabladid.is
Golf Guðrún Brá Björgvinsdóttir,
atvinnukylfingur úr Golfklúbbn-
um Keili, lék á pari á þriðja hring
úrtöku mótsins fyrir Evrópumóta-
röðina í Marokkó í gær og er í 36.
sæti þegar tveir hringir eru eftir.
Eftir hring dagsins sem er fjórði
hringur mótsins er niðurskurður og
fá efstu sextíu kylfingarnir að leika
lokahringinn á morgun.
Alls fá efstu 25 kylfingarnir í lok
fimmta hrings þátttökurétt á Evr-
ópumótaröðinni, sterkustu móta-
röð Evrópu, á næsta ári.
Líkt og fyrstu tvo dagana lék
Guðrún Brá stöðugt golf í
gær í úthverfi Marrakesh.
Hún fékk tvo skolla, tvo
fugla og fjórtán pör og lék
annan hringinn í röð á
pari.
Alls er Guðrún
Brá á einu höggi
yfir pari eftir þrjá
hringi og er
þremur höggum
frá 25. sætinu
þegar tveir hringir
eru eftir. – kpt
Guðrún Brá í 36.
sæti í Marokkó
Körfubolti Dregið var í 8 liða
úrslitin í Geysisbikar karla og
kvenna í höfuðstöðvum KKÍ í gær
og þar ber hæst að leik Tindastóls
og Stjörnunnar í Síkinu þar sem
ríkjandi bikarmeistarar taka á móti
öflugu liði Garðbæinga.
Á sama tíma tekur KR á móti
Grindavík í DHL-höllinni og Skalla-
grímur mætir ÍR í Breiðholtinu.
Vestri sem er eina liðið úr 1. deild-
inni í 8 liða úrslitunum ferðast til
Njarðvíkur og mætir heimamönn-
um í Ljónagryfjunni.
Í kvennaflokki fá ríkjandi bikar-
meistarar í Keflavík strembið verk-
efni þegar þær taka á móti Val á
heimavelli. Keflavík hefur unnið
bikarmeistaratitilinn undanfarin
tvö ár og eru með sigursælasta liðið
í keppninni með alls fimmtán bikar-
meistaratitla en Valsliðið er til alls
líklegt.
Á sama tíma tekur Snæfell á móti
Haukum og Skallagrímur mætir
Stjörnunni. ÍR sem er eina liðið úr
1. deildinni kvennamegin mætir liði
Breiðabliks í Smáranum. – kpt
Meistararnir
fengu erfiða
andstæðinga
3,7
milljarðar króna er það sem
Manchester United þarf að
greiða Mourinho fyrir að
rifta samningnum.
1 9 . d e s e m b e r 2 0 1 8 m i Ð V i K u d A G u r14 s p o r t ∙ f r É t t A b l A Ð i Ð
sport
1
9
-1
2
-2
0
1
8
0
4
:2
6
F
B
0
5
6
s
_
P
0
5
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
4
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
1
D
9
-6
C
6
4
2
1
D
9
-6
B
2
8
2
1
D
9
-6
9
E
C
2
1
D
9
-6
8
B
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
A
F
B
0
5
6
s
_
1
8
_
1
2
_
2
0
1
C
M
Y
K