Fréttablaðið - 19.12.2018, Page 20
Velta vefverslunar Advania á Íslandi hefur aukist um 82 prósent frá því að verslun fyrirtækisins í Guðrúnartúni var
lokað fyrir rúmi ári. Að sama skapi
hefur framlegð af sölu tvöfaldast.
Þetta segir Ægir Már Þórisson, for
stjóri Advania á Íslandi, í samtali við
Markaðinn. Hann segir að hann líti
ekki svo á að versluninni hafi verið
lokað heldur að hún hafi verið færð
inn í stafræna heima.
Ægir Már segir að ákvörðunin
hafi verið tekin í ljósi þess að Ad
vania staðsetji sig á markaði með
þeim hætti að fyrirtækið sinni fyrst
og fremst öðrum fyrirtækjum og
stofnunum. Margir viðskiptavinir
heimsæki fyrirtækið og því hafi
verið auðvelt að stilla upp vörum til
sýnis í þeirri von að af kaupum yrði.
„Verslunin fékk því ekki þá athygli
sem þarf til að skara fram úr.“
Við upphaf árs hafi margir haft
efasemdir, segir hann, um rekstur
vefverslana hérlendis. Vegalengdir
séu stuttar. Íslendingar fari því
frekar út í verslanir.
Töldu netverslun eiga mikið inni
Hann segir að starfsmenn fyrir
tækisins hafi talið að netverslun
ætti mikið inni. Landsmenn nýti
vefverslun í minni mæli en margar
aðrar þjóðir. „Þangað er margt að
sækja. Íslendingar eru ekki frá
brugðnir öðrum í heiminum. Við
kjósum þægindi og öryggi umfram
annað,“ segir hann.
Fram kom í Markaðnum fyrir
viku að á undanförnum tólf mán
uðum hafi 55 prósent Íslendinga
verslað á netinu, samkvæmt könn
un Zenter rannsókna. Til saman
burðar versluðu þrír af hverjum
fjórum Norðmönnum á netinu á
síðasta ári.
Spurður hvort þetta hafi verið
erfið ákvörðun innanhúss segir
hann svo ekki vera. „Í rauninni var
þetta ekki erfið ákvörðun. Rökin
hnigu öll í sömu átt.“
„Hugmyndin var að reka vefversl
un sem við myndum sinna af krafti,“
segir Ægir Már. „Mistökin sem
stundum eru gerð, er að vefversl
uninni er ekki sinnt eftir að hún
er komin í loftið. Þótt verslunin sé
veflæg þarf að hafa verslunarstjóra
og sinna öllum hefðbundnum versl
unarstörfum öðrum en að afgreiða
yfir búðarborð,“ segir Ægir Már.
Advania lagði í mikla undirbún
ingsvinnu áður en vefversluninni
var hleypt af stokkunum. „Við
nutum góðs að því að veita sjálf
ráðgjöf og þjónustu á þessu sviði og
vorum því vel í stakk búin til að inn
leiða bestu lausnirnar,“ segir hann.
Keppa við Amazon
Hann bendir á að nú keppi fyrir
tækið við Amazon og önnur erlend
fyrirtæki. Í þeirri samkeppni skipti
neytendavernd máli. „Fólk vill hafa
ábyrgðarskilmála á hreinu gagnvart
einhverjum sem auðvelt er að ná í.
Annað sem skiptir máli er hve fljótt
varan kemur til landsins. Við erum
frekar óþolinmóð þjóð og viljum
helst fá vöruna samstundis.
Íslensk vefverslun keppir á þeim
grunni. Auk þess er sendingar
kostnaður hingað tiltölulega hár.
Þótt varan sé ódýrari á erlendri
vefsíðu þarf að gera ráð fyrir send
ingarkostnaði en það er ókeypis
hjá okkur. En til þess að keppa við
Amazon þarf vefverslunin að vera
góð og standast samanburð. Það
er nefnilega himinn og haf á milli
góðrar og lélegrar vefverslunar.
Góð vefverslun leiðir viðskiptavini
í gegnum ferlið og gefur kost á að
bera saman vörur. Þetta verður að
vera einfalt.“
Gerbreyttu vinnulagi
Til að Advania á Íslandi gæti náð
téðum árangri í vefversluninni
varð að gerbreyta vinnulagi. „Við
þurftum að hugsa þjónustu í
kringum vefverslunina upp á nýtt,
hafa sendingartíma varanna mjög
skamman, ekkert sendingargjald
og sjá til þess að allir viðskiptavinir
gætu fengið þjónustu í vefspjalli um
leið og þeir óskuðu eftir henni. Það
þurfti að sjá til þess að vörulýsingar
væru í lagi og að viðskiptavinurinn
gæti borið saman eiginleika og verð
á vörum með einföldum hætti. Allt
sölu og markaðsstarf varð starf
rænt, mælanlegt og rekjanlegt.
Á móti kom að við jukum ráð
gjöf til fyrirtækja og settum hluta
af söluteyminu í að kynna vef
verslunina fyrir viðskiptavinum
okkar. Fyrirtækin sem versla við
Advania geta nú skráð sig inn á
sínar síður í vefversluninni, skoðað
gamlar pantanir og viðskiptasögu,
og gert ný kaup sem byggja á henni.
Með þessari ákvörðun gátum við
margfaldað vöruúrval okkar. Nú
eru um tvö þúsund vörutegundir í
vefverslun okkar sem aldrei hefðu
rúmast í verslunarrýminu okkar,“
segir Ægir Már.
Velta vefverslunar Advania tvöfaldaðist
Framlegðin af verslun Advania á Íslandi tvöfaldaðist þegar hún var færð inn í stafræna heima og versluninni í Guðrúnartúni var
lokað. Starfsmenn fyrirtækisins töldu að netverslun ætti mikið inni hérlendis og gerbreyttu vinnulagi við rekstur vefverslunarinnar.
Ægir Már Þórisson, forstjóri Advania á Íslandi, segir að í raun hafi ekki verið erfið ákvörðun að loka versluninni og einbeita sér að netinu. FréTTAblAðið/AnTon
Helgi Vífill
Júlíusson
helgivifill@frettabladid.is
Íslendingar eru ekki
frábrugðnir öðrum í
heiminum. Við kjósum
þægindi og öryggi umfram
annað.
Samkaup hafa kært til áfrýjunarnefndar samkeppnismála þá ákvörðun Samkeppniseftir
litsins að heimila kaup Haga á Olís.
Krefst matvörukeðjan aðallega að
ákvörðunin verði felld úr gildi og
kaupin ógilt en til vara að áfrýjunar
nefnd samkeppnismála ákveði að
binda kaupin frekari skilyrðum og
takmörkunum, einkum er varðar
möguleika sameinaðs félags til þess
að vaxa á sviði dagvörumarkaðar.
Samkeppniseftirlitið samþykkti
sem kunnugt er samruna Haga, Olís
og fasteignafélagsins DGV í lok síð
asta mánaðar gegn ákveðnum skil
yrðum, meðal annars um sölu eigna.
Hagar fóru fram á að kæru Sam
kaupa yrði vísað frá áfrýjunarnefnd
samkeppnismála þar sem félagið
hefði ekki kæruaðild í málinu en
nefndin hafnaði kröfunni í gær.
Mun nefndin því taka kæru Sam
kaupa til efnislegrar meðferðar.
Fram kom í tilkynningu sem Hagar
birtu í Kauphöllinni í gær að ekki
lægi fyrir hve langan tíma afgreiðsla
málsins mun taka hjá nefndinni.
Er það mat áfrýjunarnefndarinn
ar að umrædd kaup geti haft áhrif
á stöðu Samkaupa og snert félagið
með þeim hætti sem aðgreinir stöðu
þess frá öðrum. Bendir nefndin í því
sambandi á að við meðferð málsins
hafi Samkeppniseftirlitið ítrekað
leitað eftir umsögnum og sjónar
miðum Samkaupa til kaupanna.
Telja verði því að Samkaup geti haft
mikilvæga og sérstaka hagsmuni
af kaupunum og eigi því með réttu
aðild í málinu. – kij
Samkaup hafa kært kaup Haga á
Olís til áfrýjunarnefndar
Fyrirhugað er að bjóða starfsmönnum GAMMA Capital Management að kaupa áskrift
arréttindi að hlutum í Kviku banka
í kjölfar yfirtöku fjárfestingarbank
ans á verðbréfafyrirtækinu. Er af
þeim sökum stefnt að því að auka
heimild bankans til þess að gefa
út slík réttindi á næsta aðalfundi.
Starfsmönnum Kviku hefur hingað
til staðið til boða að kaupa sams
konar áskriftarréttindi í bankanum.
Þetta er á meðal þess sem fram
kemur í kynningu Kviku banka
vegna kaupanna á GAMMA sem
fjallað var um á hluthafafundi bank
ans síðdegis í gær.
Í kynningunni kemur jafnframt
fram að Kvika hyggist halda eftir
hluta kaupverðsins, nánar tiltekið
200 milljóna króna greiðslu árang
urstengdra þóknana, til þess að
verja sig fyrir mögulegu tjóni vegna
sekta, dómsmála eða annarra krafna
sem rekja megi til atvika sem eigi sér
stað fyrir kaupin.
Eins og fram hefur komið er
kaupverðið á GAMMA ríflega 2,4
milljarðar króna miðað við bók
fært virði árangurstengdra þóknana
hjá verðbréfafyrirtækinu í lok júní
síðastliðins en verðið getur breyst
til hækkunar eða lækkunar eftir því
hvernig rekstur og verðmæti fyrir
tækisins þróast á næstu misserum.
Fram kemur í kynningu Kviku að
ekki liggi fyrir áform um að sam
eina GAMMA og önnur félög í sam
stæðu fjárfestingarbankans. Þó sé
ljóst að mikil tækifæri séu fólgin í
því að samþætta ýmsa hluta starf
semi félagsins við starfsemi Kviku
en í því sambandi er meðal annars
nefnd sameining á sjóðum sem eru
sambærilegir hjá GAMMA og Júp
íter, dótturfélagi Kviku, og útvistun
á ýmissi stoðþjónustu til Kviku.
Gert er ráð fyrir að áhrif kaup
anna á GAMMA á afkomu Kviku
fyrir skatta verði um 300 til 400
milljónir króna á ársgrundvelli.
Eins og fram kom í tilkynningu
Kviku til Kauphallarinnar í gær
hefur stjórn bankans ákveðið að
stefna að skráningu hlutabréfa
bankans á aðalmarkað Kauphall
arinnar fyrir lok fyrsta fjórðungs
næsta árs. Ekki er gert ráð fyrir að
hlutafjárútboð verði haldið sam
hliða skráningunni. – kij
Fá að kaupa áskriftarréttindi í Kviku
Kaup Haga á olís voru heimiluð í
síðasta mánuði. FréTTAblAðið/EyÞór
2,4
milljarðar króna er kaup-
verð Kviku á GAMMA
miðað við stöðu árangurs-
tengdra þóknana hjá
GAMMA í lok júní.
Ármann
Þorvaldsson,
forstjóri
Kviku banka.
1 9 . d e s e m b e r 2 0 1 8 m I Ð V I K U d A G U r6 MArKAðurinn
1
9
-1
2
-2
0
1
8
0
4
:2
6
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
1
D
9
-8
E
F
4
2
1
D
9
-8
D
B
8
2
1
D
9
-8
C
7
C
2
1
D
9
-8
B
4
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
B
F
B
0
5
6
s
_
1
8
_
1
2
_
2
0
1
C
M
Y
K