Fréttablaðið - 19.12.2018, Síða 36
Embætti ríkissaksóknara í Malasíu ákærði banda-ríska fjárfestingarbank-ann Goldman Sachs og tvo bankamenn í vikunni fyrir auðgunarbrot er
varða ríkisrekna fjárfestingarsjóð-
inn 1MDB. Financial Times greinir
frá því að Goldman sé krafinn um
greiðslu sekta upp á þrjá milljarða
Bandaríkjadala, jafnvirði 369 millj-
arða króna, fyrir að hafa komið að
stórfelldum fjárdrætti sem er talinn
nema 2,7 milljörðum dala, í gegnum
skuldabréf sem voru gefin út árin
2012 og 2013.
Ákæran var birt á mánudaginn
á hendur dótturfélögum Gold-
man Sachs og tveimur fyrrverandi
starfsmönnum bankans; þeim Tim
Leissner og Roger Ng Chong Hwa.
Þeim hefur verið lýst sem lykilstarfs-
mönnum Goldman í þessu máli og
er gert að sök að hafa mútað mal-
asískum embættismönnum til að
tryggja aðkomu sína í skuldabréfa-
útboðum fyrir 1MDB sem námu 6,5
milljörðum dala.
Goldman fékk 600 milljónir dala í
þóknanatekjur vegna útboðanna en
að mati ríkissaksóknarans Tommys
Thomas er fjárhæðin margfalt hærri
en það sem gengur og gerist á fjár-
málamarkaði. Telja yfirvöld margra
ríkja, þar á meðal bandaríska dóms-
málaráðuneytið, að fjármálalegt mis-
ferli í kringum 1MDB nemi allt að 4,5
milljörðum dala.
Malasíski ríkissaksóknarinn sagði
að umgjörð skuldabréfaútboðanna
hefði gefið til kynna að lögmætur til-
gangur lægi að baki en hinir ákærðu
hefðu vitað að ávinningnum yrði
ráðstafað með ólögmætum hætti.
„Auk þess að hafa fengið hlutdeild
í ólögmætum ávinningi fengu lykil-
stjórnendur Goldman Sachs stóra
kaupauka og aukinn frama innan
Goldman Sachs og fjárfestingar-
bankageirans í heild sinni,“ sagði
ríkissaksóknarinn.
Yfirvöld í Malasíu hafa sótt hart
að Goldman vegna málsins og
Anwar Ibrahim, sem þykir líklegur
til að taka við embætti forsætisráð-
herra, lýsti framferði bandaríska fjár-
festingarbankans sem „ógeðslegu“ í
viðtali í nóvember og sagði að Gold-
man ætti að greiða „töluvert meira“ í
sektir en þær 600 milljónir dala sem
bankinn fékk í þóknanatekjur.
Goldman Sachs hefur hafnað
ásökununum alfarið. „Tilteknir
embættismenn í malasísku ríkis-
stjórninni sem þá var sögðu Gold-
man Sachs og öðrum ósatt um ráð-
stöfun ávinningsins af umræddum
viðskiptum,“ segir í tilkynningu frá
bandaríska fjárfestingarbankanum.
Svikamylla frá upphafi
Ríkisfjárfestingarsjóðurinn 1MDB
var stofnaður árið 2009 til að styðja
við erlenda fjárfestingu í þróunar-
verkefnum í Malasíu. Najib Razak,
þáverandi forsætisráðherra, sat í
stjórn sjóðsins en síðan þá hefur
sjóðurinn verið miðpunktur eins
stærsta spillingarmáls heims. Skjöl,
sem var lekið fyrir nokkrum árum,
varpa ljósi á að 1MDB hafi verið
nokkurs konar svikamylla frá upp-
hafi.
Háar fjárhæðir voru fengnar að
láni með útgáfu skuldabréfa og þær
færðar á reikninga í Sviss og Singa-
púr. 731 milljón dala birtist á banka-
reikningi Najibs forsætisráðherra
rétt fyrir kosningarnar 2013. Hann
er sagður hafa notað fjármunina til
að múta stjórnmálamönnum, greiða
kreditkortareikninga og fjármagna
íburðarmikla eyðslusemi eiginkonu
sinnar. Sjálfur fullyrðir Najib að
fjárhæðina megi rekja til styrkja frá
prins í Sádí-Arabíu. Umsvifamikill
málarekstur á hendur Najib hófst í
október.
Sóttu inn á Asíumarkað
Aðkomu Goldman Sachs má rekja
aftur til ársins 2010 samkvæmt
umfjöllun The Wall Street Journal
um málið. Tekjur fjárfestingar-
bankans höfðu dregist saman um
þriðjung eftir fjármálahrunið og
forstjórinn Lloyd Blankfein sagði við
hluthafa að bankinn ætlaði að sækja
inn á nýja markaði. Starfsmanna-
fjöldinn í Suður-Asíu tvöfaldaðist og
á meðal nýrra starfsmanna var flug-
vélaverkfræðingurinn Andrea Vella
sem hafði hannað flóknar afleiður
fyrir JPMorgan & Chase.
Vella og Leissner fóru fyrir teymi
sem sá um fyrsta útboð 1MDB en
ráðist var í útboðið til þess að fjár-
magna kaup á orkuverum. Leissner
bað fjárfestingarbankann Lazard
um óháð verðmat á orkuverunum
en Lazard neitaði og bar fyrir sig að
kaupin lyktuðu af pólitískri spill-
ingu. Goldman hélt engu að síður
áfram með viðskiptin. Leissner var
síðar ákærður af embætti saksóknara
Bandaríkjanna vegna málsins. Hann
gekkst í nóvember við því að hafa
stundað peningaþvætti og mútað
embættismönnum í Malasíu.
thorsteinn@frettabladid.is
Malasía fer í hart við Goldman Sachs
Fjárfestingarbankinn Goldman Sachs verst ásökunum um að hafa tekið þátt í spillingu er varðar malasískan fjárfestingarsjóð. Gefið að
sök að hafa mútað embættismönnum til að tryggja sér viðskipti. Goldman segir embættismenn hafa logið um ráðstöfun fjármuna.
Bresk samkeppnisyfirvöld leggja til mikla herðingu á þeim reglum er varða endur-
skoðunarfyrirtæki þar í landi. Í
tveimur nýjum skýrslum, sem ætlað
var að taka á samkeppnisvanda og
hagsmunaárekstrum í greininni, má
finna róttækar tillögur um herðingu
á regluverkinu, að því er Financial
Times greinir frá.
Lagt er til að endurskoðunar-
fyrirtæki aðskilji endurskoðendur
frá annarri starfsemi fyrirtækjanna,
og að stórum skráðum fyrirtækjum í
Bretlandi verði gert að kaupa þjón-
ustu af tveimur endurskoðunar-
fyrirtækjum.
Þá þurfi meira eftirlit með þeim
stjórnendum fyrirtækja sem sjá um
val á endurskoðendum en þeir eru
til dæmis sagðir velja þá endurskoð-
endur sem „falla að fyrirtækjamenn-
ingunni“ frekar en þá sem vanda
vinnubrögðin.
Stærstu endurskoðunarfyrirtæki
Bretlands hafa verið í sviðsljós-
inu eftir röð stórfelldra mistaka,
til dæmis í tengslum við gjaldþrot
breska verktakafyrirtækisins Carill-
ion. Þau hafa verið harðlega gagn-
rýnd fyrir versnandi gæði á endur-
skoðunum og hagsmunaárekstra.
Stóru endurskoðunarfyrirtækin
tóku vel í tillögurnar. „Það er ljóst
að traust í garð atvinnugreinarinnar
er ekki jafn mikið og það á að vera,
og við styðjum breytingar sem auka
gæði endurskoðana og viðhalda
samkeppnishæfni greinarinnar í
Bretlandi,“ sagði David Sproul, for-
stjóri Deloitte í Bretlandi. Þó hafa
sumir meðeigendur lýst yfir áhyggj-
um yfir tillögunum, sér í lagi þeim
sem mæla fyrir því að tvö endur-
skoðunarfyrirtæki þurfi fara yfir
ársreikninga skráðra fyrirtækja. – tfh
Stóru endurskoðunarfyrirtækin í
Bretlandi horfa fram á hertari reglur
Glaumgosi í miðdepli
hneykslisins
Ríkissaksóknarinn í Malasíu
gaf einnig út ákæru á hendur
malasíska fjárfestinum Jho Low.
Hann var viðfangsefni nýrrar
bókar tveggja blaðamanna The
Wall Street Journal sem ber
heitið „Bill ion Dollar Whale: The
Man Who Fooled Wall Street,
Hollywood and the World“.
Low er lýst sem glaumgosa
og félagsveru sem hefur komist
langt á tengslamyndun. Hann
er kominn af ríkri fjölskyldu og
í námi í London kynntist hann
stjúpsyni Najib forsætisráðherra.
Á meðan Najib sat í stjórn 1MDB
var Low fenginn til að sinna ráð-
gjafarstörfum fyrir sjóðinn. Talið
er að sjóðurinn hafi á hans vakt
fjármagnað kaup á fasteignum
í Beverly Hills og Manhattan
fyrir milljarða dala, 260 milljóna
dala snekkju, og afmælisveislu
Low þar sem stórstjörnur á borð
við Pharrell Williams og Busta
Rhymes stigu á svið. Þá munu
fjármunir sjóðsins einnig hafa
fjármagnað kvikmyndina Wolf of
Wall Street að hluta til.
Í kjölfar fjármálahrunsins 2008 ákvað Goldman Sachs að auka sóknarþungann á Asíumörkuðum. NordicPhotoS/Getty
600
milljóna dala þóknun fékk
Goldman fyrir verkefni
tengd malasíska sjóðnum.
KPMG er eitt af „hinum stóru fjóru“ svokölluðu. NordicPhotoS/Getty
Það er ljóst að traust
í garð atvinnu-
greinarinnar er ekki jafn
mikið og það á að vera.
David Sproul, forstjóri Deloitte
Eldflaugafyrirtækið Space Ex-ploration Technologies, sem stofnað var af Elon Musk,
stefnir á að auka hlutafé um 500
milljónir dollara, jafnvirði 61
milljarðs króna, til að hleypa net-
þjónustu af stokkunum. Miðað við
hlutafjáraukninguna er félagið, sem
alla jafna er kallað SpaceX, metið á
30,5 milljarða dollara eða 3.720
milljarða króna.
Núverandi hluthafar og skoska
eignastýringin Baillie Gifford &
Co, sem er einn stærsti hluthafi
rafmagnsbílaframleiðandans Tesla
sem Musk fer einnig fyrir, leggja
til hlutaféð. Frá stofnun hefur
SpaceX safnað 2,5 millj-
örðum dollara í hlutafé.
Þetta kemur fram í frétt
The Wall Street Journal.
SpaceX stefnir á að
fjárfesta í Starlink sem
veitir internetþjónustu
í gegnum gervihnetti.
Hugmyndin er að þjón-
ustan verði veitt fyrir tilstilli
fjögur þúsund gervihnatta.
Mögulega gætu þeir
orðið yfir ell-
efu þúsund.
Til saman-
burðar telur
stærsta net
gervitungla fyrir fjarskipti 65
gervihnetti.
Í frétt The Wall Street
Journal er vakin athygli
á að SpaceX hafi gengið
illa að standa við áætl-
anir. Snemma á árinu
2016 var reiknað með
að 44 eldflaugum yrði
skotið á loft í ár en stefnt
er á að í dag, miðvikudag,
verði 21. eldflauginni
á þessu ári skotið
upp. – hvj
SpaceX sækir 500
milljónir dollara í hlutafé
SpaceX stefnir á að
fjárfesta í Starlink sem veitir
internetþjónustu í gegnum
gervihnetti.
1 9 . d e s e m b e r 2 0 1 8 m I Ð V I K U d A G U r10 markaðurinn
1
9
-1
2
-2
0
1
8
0
4
:2
6
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
4
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
1
D
9
-9
D
C
4
2
1
D
9
-9
C
8
8
2
1
D
9
-9
B
4
C
2
1
D
9
-9
A
1
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
8
A
F
B
0
5
6
s
_
1
8
_
1
2
_
2
0
1
C
M
Y
K