Fréttablaðið - 19.12.2018, Síða 44

Fréttablaðið - 19.12.2018, Síða 44
Ástkær móðir okkar, amma og tengdamóðir, Erna Elísdóttir varð bráðkvödd á heimili sínu 10. desember sl. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að hennar ósk. Lísa Björk Óskarsdóttir Ingþór Karl Eiríksson Heiða Óskarsdóttir Jón Svavarsson Hjördís Ósk Óskarsdóttir Óskar, Harpa, Berglind Björk og Sigmar Karl Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, Helga Kristinsdóttir til heimilis að Skúlagötu 20, Reykjavík, lést fimmtudaginn 13. desember á hjúkrunarheimilinu Skógarbæ í Reykjavík. Hún verður jarðsungin frá Árbæjarkirkju, föstudaginn 21. desember kl. 13.00. Guðbjörg Kristín Kjartansdóttir Sólveig Kjartansdóttir Hreinn Guðnason Unnur Kjartansdóttir Ingi Guðmar Ingimundarson barnabörn og barnabarnabörn. Dr. Valgarður Egilsson læknir og rithöfundur, Hólatorgi 4, 101 Reykjavík, lést á heimili sínu að morgni mánudagsins 17. desember. Katrín Fjeldsted og fjölskylda. Elsku pabbi okkar, Skúli Gunnlaugsson Miðfelli 4, Hrunamannahreppi, lést á Heilbrigðisstofnun Suðurlands sunnudaginn 16. desember. Útförin fer fram frá Skálholtskirkju föstudaginn 28. desember kl. 13. Sigríður, Grétar Gunnlaugur, Móeiður, Svanhildur, Herdís, Hildigunnur og Kristjana Skúlabörn Okkar ástkæri faðir, tengdafaðir, afi, langafi og langalangafi, Kristinn Kjartansson frá Miklagarði, lést á hjúkrunarheimilinu Lögmannshlíð 12. desember. Útförin fer fram frá Akureyrarkirkju 21. desember klukkan 13.30. Þeim sem vilja minnast hans er bent á hjúkrunarheimilið Lögmannshlíð. Magnús Kristinsson Inga Guðmundsdóttir Bjarki Kristinsson Unnur Snorradóttir Ævar Kristinsson Heiðbjört Hallgrímsdóttir Bryngeir Kristinsson Ásdís Annika Gunnlaugsdóttir Ingvar Kristinsson Vilborg Elva Gunnlaugsdóttir Lena Sædís Kristinsdóttir Halldór Einarsson afabörn, langafabörn og langalangafabörn. Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, Anna María Tómasdóttir verður jarðsungin frá Selfosskirkju föstudaginn 21. desember kl. 14.00. Gústaf Lilliendahl Jónas Rafn Lilliendahl Margrét Katrín Erlingsdóttir Atli Lilliendahl Inge Heinrich Margrét Lilliendahl Jón Bjarnason barnabörn og barnabarnabörn. N1 mun skipta um olíu sem það selur til skipaflotans frá og með næstu áramótum. Nú verður bara notuð olía sem inniheldur aðeins 0,1 prósent brennistein. Framkvæmdastjóri N1 segir félagið reyna sífellt að minnka úrgang. N1 mun frá og með n æ st u á ra -mótum hætta sölu á svo kall-aðri marine diesel oil (MDO) til íslenska skipaflot- ans. Umrædd olíutegund hefur verið notuð á stærri skip sem kjósa að nota ekki svartolíu en sá galli hefur verið á gjöf Njarðar að hún hefur allt að 0,25% brennisteinsinnihald. Í stað áðurnefndrar olíu mun N1 flytja inn og selja á skipaflotann olíu sem inniheldur aldrei meira en 0,1% brennistein, segir í tilkynningu. „N1 hefur undanfarin ár einbeitt sér af síauknum krafti að umhverfismálum og sem hluta af samfélagsábyrgð fyrir- tækisins leitum við allra leiða til að verða grænni og betri fyrir umhverfið. Þannig kolefnisjöfnum við allt flug og notkun bíla. N1 er með samning við Kolvið. Við settum okkur skýr markmið varðandi losun gróðurhúsalofttegunda, erum sífellt að minnka úrgang og við drögum verulega úr óflokkuðum úrgangi, svo dæmi séu tekin,“ segir Hinrik Örn Bjarna- son, framkvæmdastjóri N1. „Þetta er hins vegar verkefni sem lýkur aldrei en við leggjum okkar lóð á vogar- skálarnar með því að reyna að minnka fótspor á þeim vörum sem við seljum. Breytingin á olíunni er dæmi um slíkt,“ segir Hinrik Örn. Fram undan eru frekari breytingar hvað þetta varðar en í ársbyrjun 2020 tekur gildi ný reglugerð, IMO 2020, en í henni felst að verulega verði dregið úr brenni- steinsinnihaldi svartolíu. Nú má hún mest vera 3,5% en frá og með 1. janúar 2020 má hún innihalda að hámarki 0,5% brennistein. benediktboas@frettabladid.is N1 setur nýja olíu á skip N1 hefur ákveðið að skipta út olíu á skipaflotann og hefja notkun á olíu sem inniheldur mun minni brennistein. Fréttablaðið/Vilhelm „Bærinn er að brenna.“ Með þessum fréttum voru Akureyrarbúar vaktir um klukkan fjögur að morgni 19. desember árið 1901. Þeir sem fyrst litu út sáu loga slá upp um þakið á geymsluhúsi sem áfast var við Hótel Akureyri í miðjum bænum þar sem hann er þéttbyggð- astur. Þar voru timburhús hvert við annað báðum megin strætisins sem er örmjótt. Brunnu þarna tólf stór hús og urðu 52 heimilislausir. Ekkert slökkvilið var á Akureyri og engin slökkvidæla en bæjarbúar gengu svo rösklega fram við slökkvistarfið að þeim tókst að hefta útbreiðslu eldsins frekar. Annars hefði miðbærinn allur líklega brunnið. Þ ETTA G E R Ð I ST : 1 9 . D E S E M B E R 1 9 0 1 Tólf stórhýsi brunnu á Akureyri Merkisatburðir 1666 Háskólinn í Lundi er stofnaður í Svíþjóð. 1745 Her jakobíta undir stjórn Karls Stúart (Bonnie Prince Charlie) bíður ósigur fyrir her undir stjórn hertogans af Cumberland í orrustunni við Clifton Moor. Það er síðasti bardagi sem háður hefur verið á enskri grund. 1821 Eldgos hefst í Eyjafjallajökli. 1943 B-25 sprengjuflugvél lendir á hvolfi skammt sunnan við Grandaveginn í Reykjavík í aðflugi að flugvellinum í Vatnsmýrinni. Þrír hermenn látast. 1967 Lögræðisaldur á Íslandi er lækkaður úr 21 ári í 20 ár. Síðar er hann svo lækkaður niður í 18 ár. 1969 Alþingi samþykkir að Ísland gangi í EFTA frá og með 1. mars 1970. 1983 Sigurður Magnússon og Ingibjörg Daðadóttir, hjón í Stykkishólmi, eiga 75 ára hjúskapararafmæli. Eftir það lifir Sigurður í fimm mánuði en Ingibjörg í fjögur ár. 1984 Alþýðulýðveldið Kína og Bretland undirrita sameigin- lega yfirlýsingu um framtíð Hong Kong. 1986 Andrei Sakarov fær að snúa aftur til Moskvu eftir sex ára útlegð innan Sovétríkjanna. 1989 Húsnæðisstofnun ríkisins gefur út fyrstu húsbréfin. 1992 Kvikmyndin Karlakórinn Hekla í leikstjórn Guðnýjar Halldórsdóttur er frumsýnd. 1996 Ísland og Noregur undirrita Schengensamninginn. 1 9 . d e s e m b e r 2 0 1 8 m I Ð V I K U d A G U r16 t í m A m ó t ∙ F r É t t A b L A Ð I Ð tímamót 1 9 -1 2 -2 0 1 8 0 4 :2 6 F B 0 5 6 s _ P 0 5 3 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 4 4 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 0 4 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 1 3 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 1 D 9 -7 1 5 4 2 1 D 9 -7 0 1 8 2 1 D 9 -6 E D C 2 1 D 9 -6 D A 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 B F B 0 5 6 s _ 1 8 _ 1 2 _ 2 0 1 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.