Fréttablaðið - 19.12.2018, Síða 49
7 Uczuć//7 Emotions(polish w/eng sub) 17:40
Suspiria (ice sub) .................................... 18:00
Erfingjarnir//The Heiresses (eng sub) 18:00
Milosc jest wszystkim(pol. w/eng sub) .20:00
Bird Box (english-no sub) ................... 20:00
Roma (spanish w/eng sub) ....................21:00
Anna and the Apocalypse (ice sub) 22:20
Mæri // Border (ice sub) ..................... 22:30
HAPPY HOUR Á BARNUM 17-19 NÁNAR Á BIOPARADIS.IS
Fluga fær flugu í höfuðið
BÆkur
Sagan um Skarphéðin Dungal
sem setti fram nýjar kenningar
um eðli alheimsins
HHH H
Höfundar: Hjörleifur Hjartarson og
Rán Flygenring
Útgefandi: Angústúra
Blaðsíður: 42
Flugur eiga sér ákveðna hefð í íslensk-
um bókmenntum, einkum þó fyrir
börn. Margir muna eftir Mola litla
flugustrák úr bókaröð eftir Ragnar
Lár sem kom út á árunum 1968-1975
og voru fyrstu vísarnir að íslenskum
myndasögum. Þá skrifaði Bryndís
Björgvinsdóttir bókina Flugan sem
stöðvaði stríðið þar sem má finna
heimspekilegar vangaveltur um
stríð fyrir börn og nú verður fluga
aftur að farvegi fyrir heimspeki-
legar hugleiðingar í Sögunni um
Skarphéðin Dungal sem setti fram
nýjar kenningar um eðli alheimsins
eftir þau Hjörleif Hjartarson og Rán
Flygen ring sem hófu farsælt og von-
andi langvinnt samstarf í fyrra með
bókinni Fuglar, stórskemmtilegri
náttúrufræðiskemmtibók sem var
ætluð allri fjölskyldunni og tilnefnd
til Íslensku bókmenntaverðlaunanna
2017. Þar drógu þau fram helstu sér-
kenni fuglanna í máli og myndum
með góðum skammti af kímnigáfu og
laumuðu þannig heilmiklum fugla-
fróðleik með.
Í bókinni um Skarphéðin Dungal
er sjónum beint að flugum en hún er
þó ekki náttúrufræðilegs eðlis heldur
meira í ætt við heimspeki, flugan
Skarphéðinn er notuð sem tákn-
mynd þess að víkka sjóndeildarhring-
inn og sjá fleiri möguleika en þá sem
nærumhverfið býður upp á, hvort
sem það er í bókstaflegri merkingu
eða sem myndhverfing fyrir hugar-
ástand. Í Háborginni sem spratt upp á
volgu hrossataði skorar Skarphéðinn
Dungal hugmyndir samflugna sinna
um alheiminn á hólm og er gerður
útlægur fyrir vikið en einmitt það
gefur honum tækifæri til að kynnast
heiminum, sannreyna kenningar
sínar og koma aftur reynslunni ríkari.
Myndir og umbrot er einstaklega
skemmtilegt og leikur við textann og
með honum. Litavalið er áberandi, í
raun það mest áberandi sem völ er á
en sagt er að svart letur á appelsínu-
gulum grunni sé með því mest gríp-
andi sem augað nemur og hæfir það
vel þrautseigri flugu.
Sagan sögð í ljóði sem gerir hana
enn skemmtilegri að lesa upphátt
en einnig er auðvelt að tileinka sér
setningar og speki þegar sett er fram
í bundnu máli.
Brynhildur Björnsdóttir
NiðurStaða: Sagan af Skarphéðni
Dungal er skemmtileg hugvelta um
sjónarhorn, sjónarrandir og hrossatað.
Sjá nánar á
fimmtudag 20. des. frá kl. 19-22
Jólahátíð
Opið til 22
fram að jólum
Dagskrá:
19:00 Garðar Guðmundsson
19:15 kór Mosfellsbæjar
19:45 Helga Möller
20:00 Helgi Björns
20:20 Tískusýning að hætti Haffa Haff
Fyrstu 100 gestirnir fá veglega jólagjöf
Léttar veitingar & vörukynningar í verslunum
Helgi Björns
kl. 20:00
Sigga Kling
verður á svæðinu
Bein útsending
Helga Möller
kl. 19:45
Tískusýning
kl. 20:20
Hvað?
Hvenær?
Hvar?
Miðvikudagur
hvar@frettabladid.is
19. desember 2018
tónlist
Hvað? Mozart við kertaljós
Hvenær? 21.00
Hvar? Hafnarfjarðarkirkju
Camerarctica heldur sína árlegu
kertaljósatónleika í kirkjum nú
rétt fyrir jólin og verða fyrstu tón-
leikarnir í Hafnarfjarðarkirkju í
kvöld kl. 21.00. Tónleikarnir eru
um klukkustundarlangir og hefjast
þeir klukkan 21.00.
Hvað? Funky KEXMas Party w/Samúel
Jón Samúelsson Big Band
Hvenær? 21.00
Hvar? Kex hostel, Skúlagötu
Hvað? Mengi Series: Randall Dunn,
Úlfur, Aaron Roche & William Hayes
Hvenær? 20.00
Hvar? Iðnó
Mengi Series kynnir Úlf, Randall
Dunn, Aaron Roche og William
Hayes á tónleikum í Iðnó. Húsið
opnað kl. 20 og tónleikarnir hefj-
ast kl 21. Miðaverð er 3.500 kr.
Viðburðir
Hvað? Ljóðakvöld
Hvenær? 19.00
Hvar? Iða Zimsen, Vesturgötu 2a,
101 Reykjavík
Á ljóðakvöldi koma fram: Ásta
Fanney Sigurðardóttir Einar
Már Guðmundsson, Hrafnsunna
Ross, Kristian Guttesen, Sigur-
björg Þrastardóttir og Soffía Lára.
Kynnir: Valdimar Tómasson.
Hvað? Konur um konur | Upplestur í
Grófinni
Hvenær? 16.30
Hvar? Borgarbókasafnið Grófinni
Ævi og örlög íslenskra
kvenna eru umfjöllun-
arefni bóka þeirra
fjögurra kvenna sem
koma saman og lesa
úr verkum sínum í
Borgarbókasafninu
klukkan 16.30.
Hvað? Júlía Margrét
og Kamilla Einarsdætur –
bókakvöld í Bismút!
Hvenær? 19.30
Hvar? Bismút, Hverfisgötu
Miðvikudaginn 19. desember
verður bókakvöld í Bismút. Þar
lesa systurnar Júlía Margrét og
Kamilla Einarsdætur brot úr nýút-
komnum skáldsögum sínum.
Gleðin hefst klukkan 19.30.
Hvað? Ari Eldjárn prófar nýtt grín
Hvenær? 20.00
Hvar? Tjarnarbíó
Ari Eldjárn stendur fyrir skemmti-
legri og tilraunakenndri uppi-
standssýningu þar sem hann próf-
ar nýtt grín. Á sýningunni, sem
varir í um klukkustund, fá gestir að
heyra nýtt og áður óbirt efni.
Hvað? PubQuiz á Session:
Jólin á hvítatjaldinu og
Skjánum.
Hvenær? 19.00
Hvar? Session craft bar, Bankastræti
Nú er komið að spurningakeppni
á Session. Barsvar, Bjöllervisser,
Pilsnerpróf, Trillium Pursuit – eða
einfaldlega svokallað PubQuiz.
Umfjöllunarefni spurninga verður
„Jólin á hvíta tjaldinu og skjánum“.
Spurningahöfundur og spyrill
verður Siddi.
Hvað? Jólabingó með Jóhanni Alfreð
og Valda Pí
Hvenær? 20.00
Hvar? Húrra, Tryggvagötu
Hið árlega jólabingó á Húrra mætir
og gleður ykkur með glansandi
bingóspjöldum og frábærum vinn-
ingum! Það verður eitthvað fyrir
fólk á öllum aldri, börn og gamal-
menni allra helst.
Júlía Margrét Einarsdóttir
les upp á Bismút ásamt
Kamillu systur sinni.
FréttaBlaðið/StEFán
m e N N i N g ∙ F r É t t a B L a ð i ð 21m i ð V i k u D a g u r 1 9 . D e S e m B e r 2 0 1 8
1
9
-1
2
-2
0
1
8
0
4
:2
6
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
1
D
9
-9
8
D
4
2
1
D
9
-9
7
9
8
2
1
D
9
-9
6
5
C
2
1
D
9
-9
5
2
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
7
B
F
B
0
5
6
s
_
1
8
_
1
2
_
2
0
1
C
M
Y
K