Fréttablaðið - 20.12.2018, Blaðsíða 23
Reykjavík – Fundum okkar Pauls McCartney bar fyrst saman haustið 1971 eins og
ég lýsti hér á þessum stað í vetur
leið (Minning frá Manchester,
15. febrúar 2018). Hann kom í
mötuneyti okkar stúdentanna í
Manchester án þess að gera boð á
undan sér. Hann spurði hvort þau
mættu syngja og spila fyrir okkur í
hádeginu, þau voru þrjú eða fjögur
saman. Sumir matargestanna litu
varla upp.
Nýgild og nákvæm tónlist
Bítlarnir voru þá nýskildir að
skiptum. Margir kenndu Paul um
skilnaðinn (hann ber sökina af
sér) og sýndu nýja bandinu hans,
það hét Wings, lítinn áhuga líkt
og börn nýskilinna hjóna eiga það
til að taka nýjum fósturforeldrum
fálega. John Lennon gerði gys að
fyrstu plötu Pauls eftir skilnaðinn.
Þeir fornvinirnir sættust síðar. Paul
minnist fallins félaga síns oft og
með mikilli hlýju, samdi fallegan
minningarsöng um hann og flytur
stundum lögin hans á tónleikum.
Ég kynntist tónlist þeirra
félaga fyrir fermingu líkt og flestir
jafnaldrar mínir og hef fylgzt með
henni síðan. Paul var og er minn
maður í bransanum, nánar tiltekið í
því sem Jakob Frímann Magnússon
kallar nýgilda tónlist til aðgrein
ingar frá sígildri tónlist en hana
vildi Leonard Bernstein heldur
kalla nákvæma tónlist af því að hún
er skrifuð niður tón fyrir tón. Paul
kann hvorki að lesa né skrifa nótur.
Það er ekkert sérlega sígilt við
sígilda tónlist, sumt af henni gengur
úr sér eins og annað, sagði Bern
stein sem hefði orðið 100 ára í ár.
Samvizka eða súkkulaði?
Á unglingsárum mínum mátti með
nokkurri einföldun skipta ungu
fólki í tvo flokka, þau sem tóku
Bítlana fram yfir Rolling Stones og
hin. Fyrri flokknum mátti svo aftur
skipta í tvo undirflokka, þau sem
tóku John fram yfir Paul og okkur
hin. Ég tilheyrði sem sagt flokki
1B. Flokkarnir töluðust við. Ég gaf
Gesti Guðmundssyni, nú prófessor
í félagsfræði, plöturnar mínar með
Rolling Stones. Hann átti löngu
síðar eftir að rita Rokksögu Íslands.
Þau sem voru í flokki 1A virtust
sum líta á John sem samvizku
heimsins; hinn var bara súkkulaði,
sögðu þau sum, og áttu þá við útlitið,
málflutninginn og músíkina. Þau
tóku ekki eftir því, og það gerði ég
ekki heldur fyrr en nýlega, að þegar
bandarískir blaðamenn spurðu
Bítlana nýkomna til Bandaríkjanna
1964 hvað þeim fyndist um stríðs
rekstur Bandaríkjamanna í Víet
nam, þá var það ekki John heldur
Paul sem tók af skarið og sagðist
vera andvígur stríðinu. Bandarískir
mótmælasöngvarar stigu um líkt
leyti fram af fullum þunga – Bob
Dylan, Joan Baez, Peter, Paul og
Mary o.fl. – og beittu sér gegn Víet
namstríðinu líkt og þau studdu rétt
indabaráttu blökkumanna. Nokkru
síðar samdi Paul lagið Blackbird til
stuðnings blökkumönnum. Hann
er grænmetisæta. Hann segir: Ef
sláturhús hefðu glerveggi værum við
öll grænmetisætur.
600 sönglög
Við vorum á ferð um Suðurland
hjónin fyrir mörgum árum, komum
á Hvolsvöll undir kvöld og sáum
þar handskrifað skilti neglt á ljósa
staur: Hljómar skemmta í kvöld,
húsið opnar kl. 11. Við vorum mest
Við Paul
hissa á því hvað þeir ætluðu sér að
vaka, menn á miðjum aldri.
Paul McCartney þeysist nú um
heiminn ásamt félögum sínum til
að halda 34 tónleika á 30 stöðum
í 13 löndum. Við heyrðum hann í
Vín í byrjun desember. Hvort hann
gat vakað! Hann er 76 ára, söng 36
lög af lífs og sálar kröftum á þrem
klukkustundum og dró hvergi af
sér tvö kvöld í röð. Hann þarf ekki
á þessu flandri að halda. Hann er
ríkasti tónlistarmaður Bretlands
eyja, þrisvar til fjórum sinnum
ríkari en Mick Jagger og Ringo Starr.
Hann er skráður höfundur tæplega
600 sönglaga. Franz Schubert er til
samanburðar skráður höfundur
1.500 tónverka, þ.m.t. um 600 söng
lög, og hann féll frá á 32. aldursári.
Frá Rauða torginu
til Grand Central Station
Paul McCartney hélt fyrstur
manna rokktónleika á Rauða
torginu í Moskvu. Til hans að
tjaldabaki kom einn ráðherrann í
ríkisstjórninni í Kreml eftir kon
sertinn og sagði: Þakka þér fyrir.
Við lærðum ensku með því að
hlusta á bítlaplöturnar. Hann hefði
getað bætt því við að þær voru
bannaðar á valdatíma kommún
ista, menn þurftu að smygla þeim
milli kjallara til að komast í þær.
Fyrir fáeinum vikum gerðist það
á Grand Central Station á miðri
Manhattaneyju í New York að
glaðlegur maður bankaði í hljóð
nema og sagði við fólksmergðina á
stöðinni líkt og okkur stúdentana
í Manchester forðum: Ég heiti Paul
McCartney. Megum við félagarnir
taka fyrir ykkur nokkur lög? – m.a.
af nýju plötunni okkar, Egypt Stat
ion. Hófst svo söngurinn. Diskur
inn fær góða dóma og selst vel. Mér
finnst hann fínn.
Þorvaldur
Gylfason
Í dag
Jólabæklingur Smith & Norland er kominn út.
Glæsilegar vörur á sérstöku jólaverði.
Sjá nánar á sminor.is.
Afgreiðslutímar:
Opið virka daga frá kl. 8.30 - 18 og á laugardögum frá kl. 11 - 16.
Auk þess gildir:
Sunnud. 23. des.: kl. 13 - 16.
Mánud. 24. des.: kl. 8.30 - 12.
Öll tilboð gilda út desember 2018 eða meðan birgðir endast.
Jól2018
Orkuflokkur
Uppþvottavél
SN 436W01MS, iQ300
14 manna. Sex kerfi, þar á meðal
hraðkerfi á 60° C. Þrjú sérkerfi,
meðal annars tímastytting.
Hnífaparaskúffa. Hljóð: 44 dB.
Fullt verð: 119.900 kr.
Jólaverð:
92.900 kr.
Þvottavél
WM 14W768DN, iQ700
Vindur upp í 1400 sn./mín.
Kolalaus, hljóðlátur og sparneytinn
mótor með 10 ára ábyrgð. Sérkerfi
eru meðal annars: Útifatnaður,
skyrtur, mjög stutt kerfi (15 mín.),
„sensoFresh“ o.fl. „sensoFresh“:
Virkar eins og þurrhreinsun. Notar
hvorki vatn né sápu.
Fullt verð: 174.900 kr.
Jólaverð:
133.900 kr.
Tekur mest
8
Orkuflokkur
10 ára
ábyrgð
á
iQdrive
mótorn
um.
Orfeus
Hangandi ljós
15728-25
Fullt verð: 19.900 kr.
Jólaverð:
15.900 kr.
Blandari
MMB 42G0B
700 W. Einstaklega hljóðlátur.
„Thermo-safe“ gler sem þolir
heita og kalda drykki.
Fullt verð: 17.500 kr
Jólaverð:
12.900 kr.
Töfrasproti
MSM 66150
600 W. Hljóðlátur og laus við
titring. Skál með loki, þeytari
og hakkari fylgja með.
Fullt verð: 12.900 kr.
Jólaverð:
8.900 kr.
Handþeytari
MFQ 22100
375 W. Fjórar hraðastillingar og
ein púlsstilling. Hrærispaðar og
hnoðkrókar fylgja með.
Fullt verð: 7.300 kr.
Jólaverð:
5.500 kr.
S k o ð u n ∙ F R É T T a B L a ð i ð 23F i M M T u d a g u R 2 0 . d e S e M B e R 2 0 1 8
2
0
-1
2
-2
0
1
8
0
4
:4
2
F
B
0
6
4
s
_
P
0
4
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
2
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
2
6
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
1
D
E
-2
B
0
4
2
1
D
E
-2
9
C
8
2
1
D
E
-2
8
8
C
2
1
D
E
-2
7
5
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
8
A
F
B
0
6
4
s
_
1
9
_
1
2
_
2
0
1
C
M
Y
K