Fréttablaðið - 20.12.2018, Blaðsíða 22

Fréttablaðið - 20.12.2018, Blaðsíða 22
Frá degi til dags Halldór Útgáfufélag: torg ehf. Stjórnarformaður: Einar Þór Sverrisson forStjóri: Ingibjörg Stefanía Pálmadóttir Útgefandi: Kristín Þorsteinsdóttir kristin@frettabladid.is ritStjórar: Kjartan Hreinn Njálssson kjartanh@frettabladid.is, Ólöf Skaftadóttir olof@frettabladid.is, markaðurinn: Hörður Ægisson hordur@frettabladid.is fréttablaðið.iS: Sunna Karen Sigurþórsdóttir sunnak@frettabladid.is. Fréttablaðið kemur út í 85.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSN 1670-3871 fréttablaðið kalkofnsvegur 2, 101 reykjavík Sími: 550 5000, ritstjorn@frettabladid.is helgarblað: Kristjana Björg Guðbrandsdóttir kristjanabjorg@frettabladid.is menning: Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrunb@frettabladid.is ljóSmyndir: Anton Brink anton@frettabladid.is framleiðSluStjóri: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrunb@frettabladid.is Ef þingmenn gera alvöru úr því að draga öryrkja fyrir dóm er það ekki einungis fréttaefni hér á landi heldur víða um heim. Afar sérstakt er að Um­ hverfisstofn­ un aðhafist ekkert á meðan undan þágu­ beiðnin er til meðhöndl­ unar því ekkert í lögum um mat á um­ hverfisáhrif­ um segir að ráðuneytinu sé heimilt að veita hana. Meira en hálft ár er nú liðið frá því laxeldisfyrir-tækið Arnarlax hóf meðvitað að brjóta gegn skilyrðum starfsleyfis fyrir sjókvíaeldi sem það starfrækir í Arnarfirði. Þær stofnanir sem eiga að hafa eftirlit með starfseminni vita af brotinu en aðhafast þó ekkert af ástæðum sem ekki hafa verið skýrðar. Samkvæmt þeim skilyrðum sem sett voru í starfs- leyfi fyrir Arnarlax ber að hvíla eldissvæði við Hringdal í Arnarfirði í að lágmarki sex til átta mánuði áður en ný kynslóð af eldislaxi er sett út í sjókvíar á svæðinu. Með hvíldinni fengi umhverfið tíma til að ná jafn- vægi áður en næsti skammtur af botnfalli og annarri mengun frá hundruðum þúsunda fiska bætist við það sem fyrir er. Arnarlax hafði þessi skilyrði að engu og setti út fisk í kvíar á svæðinu í byrjun júní, aðeins þremur mánuð- um eftir að slátrað hafði verið fiski upp úr kvíum þar. Rétt er að taka fram að starfsleyfi fyrirtækisins er gefið út meðal annars á forsendum umhverfismats sem það lét sjálft gera, en þar kemur fram að hvíla þurfi eldissvæði í umræddan tíma. Umhverfisstofnun staðfesti þann 19. júní sl. að um frávik væri að ræða og krafði Arnarlax um úrbætur. Fyrirtækið hafði þá kröfu hins vegar að engu. Þann 16. júlí boðaði Umhverfisstofnun því að það yrði áminnt. Viðbrögð Arnalax voru þá að óska eftir undanþágu til umhverfisráðuneytisins. Síðan hefur ekkert gerst nema hvað Umhverfis- stofnun sendi umsögn til ráðuneytisins í september þar sem lagst er gegn því að Arnarlax fái undanþágu. Afar sérstakt er að Umhverfisstofnun aðhafist ekkert á meðan undanþágubeiðnin er til meðhöndlunar því ekkert í lögum um mat á umhverfisáhrifum segir að ráðuneytinu sé heimilt að veita hana. Vinnubrögð ráðuneytisins eru að sama skapi ill- skiljanleg en undanþágubeiðnin hefur nú legið þar óafgreidd í fimm mánuði. Á meðan geldur umhverfið fyrir. Furðu vekur að þessi starfsemi virði ekki þau skil- yrði sem henni eru sett í starfsleyfi. Enn furðulegra er að Umhverfisstofnun og ráðuneyti málaflokksins skuli ekki tryggja að þau skilyrði séu virt. Lögbrot í skjóli hins opinbera Árni Finnsson formaður Náttúruverndar- samtaka Íslands Þegar minnst er á Klausturmálið alræmda í fréttum, og það er sannarlega gert ansi oft þessa dagana, er iðulega nefnd hugsanleg málsókn fjögurra þingmanna Miðflokksins gegn Báru Halldórsdóttur, konu sem er öryrki. Það að þingmennirnir skuli íhuga alvarlega að fara í mál við öryrkja og leggi kapp á að hann sæti refsingu og greiði þeim miskabætur bendir sannar- lega ekki til þess að mikil iðrun ríki í huga þeirra. Ekki verður annað séð en að þingmennirnir séu for- hertir og neiti staðfastlega að horfast í augu við eigin gjörðir. Ljóst er að þeim finnst þeir hafa verið beittir miklum órétti og telja að ráðist hafi verið að æru þeirra með því að hljóðrita subbuleg fylliríssamtöl þeirra. Í bréfi lögmanns þeirra, Reimars Péturssonar hæstaréttarlögmanns, segir að aðgerðin hafi falið í sér „saknæma og ólögmæta meingerð gegn frelsi, friði, æru eða persónu“ þeirra. Enginn þvingaði þingmennina til að hella sig fulla á vinnutíma Alþingis. Það var þeirra ákvörðun. Það er vissulega óheppilegt fyrir þá að viðbjóðurinn sem þeir létu út úr sér hafi verið opinberaður, en þeir geta ekki vikið sér undan ábyrgð. Þingmenn þjóðar- innar eiga ekki að klæmast og spýta út úr sér sora á opinberum stöðum. Geri þeir slíkt verða þeir að líta í eigin barm og íhuga stöðu sína mjög alvarlega. Því miður virðist þessum þingmönnum gjörsamlega fyrirmunað að gera það. Þeir hafa fundið þann seka, öryrkjann Báru Halldórsdóttur, og beina spjótum sínum að henni. Reynar virðast þeir um leið telja hana peð í einhvers konar samsæri illa þenkjandi pólitískra andstæðinga, jafn fjarstæðukennt og það nú hljómar. Í stað þess að viðurkenna forkastanlegt tal sitt á bar benda þingmennirnir á Báru sem þeir segja að hafi brotið á rétti þeirra. Þeir telja sig vera að beina athygli almennings frá sér en svo er alls ekki. Ef þing- menn gera alvöru úr því að draga öryrkja fyrir dóm er það ekki einungis fréttaefni hér á landi heldur víða um heim. Þingmennirnir treysta á það að dóm- stólar muni dæma upptökuna ólöglega, og vel má vera að það verði niðurstaðan. Það myndi þó ekki breyta neinu um það að skömmin er þingmannanna og þjóðin mun ekki láta þá gleyma því. Besta leiðin til að gera Báru Halldórsdóttur að enn meiri þjóð- hetju en hún er þegar orðin er að þingmennirnir dragi hana fyrir dóm. Þjóðin mun fylkja sér um hana og víst er að efnt verður til söfnunar til að greiða kostnað eða sektir sem hún þarf að bera. Þingmenn- irnir munu standa eftir á berangri, ærulausir. Öllum verður á í lífinu. Ekki allir, en sem betur fer ansi margir, læra af því og iðrast innilega. Ekki verður séð að þessir þingmenn geri það. Þeir virðast ætla að halda dauðahaldi í lagabókstaf og vonast til að fá dómstóla í lið með sér. Jafnvel þótt það takist mun það ekki duga til að þeim hlotnist náð fyrir augum þjóðarinnar. Þingmennir hafa fallið á sið- ferðisprófinu, ekki einu sinni heldur ítrekað. En þeir sjá það ekki og einmitt í því er fall þeirra fólgið. Án iðrunar THE FUTURE IS EVERYONE’S Kynntu þér Opel atvinnubíla á opel.is eða hafðu samband við sölumann í síma eða á opel@opel.is og fáðu nánari upplýsingar Sýningarsalir: Krókháls 9, Reykjavík, 590 2000 Njarðarbraut 9, Reykjanesbæ, 420 3330 OPEL ATVINNUBÍLAR ÁRAMÓTA SPRENGJA! Nýttu þér skattalegt hagræði ársins sem er að líða Nokkrir sendi- og hópferðabílar á dúndur afslætti Flateyjarráðgáta Sjónvarpsþættirnir Flateyjargát- an runnu sitt skeið á RÚV nýlega án þess að gera sérstaka lukku. Leikararnir virkuðu ráðvilltir og endurtekningar og stagl bentu til þess að leikstjórinn væri álíka ringlaður. Þær gleðifréttir að handrit þáttanna hafi verið tilnefnt til Nordisk Film- og TV Fond-verðlaunanna á alþjóð- legu kvikmyndahátíðinni í Gautaborg í ár, fyrir besta hand- ritið í flokki sjónvarpsþáttaraða á Norðurlöndum, koma því eins og þruma úr heiðskíru lofti og eru hálfgerð Flateyjarráðgáta. Eða þannig … Flateyjargáta var vitaskuld rædd á Facebook og þar má segja að þættirnir hafi lent í ófærð, ef ekki beinlínis blindbyl, en þar var fólk með „kjánahroll“ yfir leiknum, býsnaðist yfir lélegu handriti, þættirnir ábyggilega sagðir „fínir fyrir þolinmótt fólk“ en hljóðsetningin væri slæm. Huggun harmi gegn væri að „lopapeysurnar eru voða fínar“. Leikhúsrýnirinn Jón Viðar Jónsson afgreiddi þættina ágætlega þegar hann sagði að eftir að hafa „horft upp á þennan gjörning eða hvað á að kalla þetta sem fólk var að fremja þarna á sviði Hörpu til heiðurs Danadrottningu – ja, þá held ég bara mér finnist Flateyjargátan hreint ekki svo afleit. – Eða þannig.“ thorarinn@frettabladid.is 2 0 . d e s e m b e r 2 0 1 8 F I m m T U d A G U r22 s k o ð U n ∙ F r É T T A b L A ð I ð SKOÐUN 2 0 -1 2 -2 0 1 8 0 4 :4 2 F B 0 6 4 s _ P 0 4 3 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 3 8 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 2 2 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 2 7 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 1 D E -1 C 3 4 2 1 D E -1 A F 8 2 1 D E -1 9 B C 2 1 D E -1 8 8 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 6 B F B 0 6 4 s _ 1 9 _ 1 2 _ 2 0 1 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.