Fréttablaðið - 20.12.2018, Blaðsíða 24

Fréttablaðið - 20.12.2018, Blaðsíða 24
Við Íslendingar getum ekki kvartað undan því að ekki hafi verið fjallað nógu mikið um Panamaskjölin hér á landi. Lík- ast til hefur vefmiðillinn Kjarninn fjallað oftar um þau, og marga þá Íslendinga sem þar birtust, en nokk- ur annar innlendur fjölmiðill. Einatt hefur verið gefið skýrt til kynna að þeir, sem fjallað var um í Panama- skjölunum, hafi stundað ólögmæt og/eða ósiðleg viðskipti. Vandlæt- ingin gagnvart sjálfstæðismönnum, sem í skjölunum var að finna, hefur umvafið hvert orð Kjarnans um þá. Minna hefur farið fyrir hneykslan og dómhörku í garð þess manns, sem virðist hafa vafið utan um sig flóknasta vef eignarhaldsfélaga, sem nokkur Íslendingur hefur sett upp, og er þá til nokkurs jafnað. Sá reyndist vera einn stærsti hluthafi Kjarnans auk þess að gegna trún- aðarstörfum fyrir Samfylkinguna. Tæpast hefur tilgangur þess flókna eignarhalds verið að spara kostnað við utanumhald um fjárfestingar þessa eiganda Kjarnans, þar sem ófáir lögmenn, endurskoðendur og bankastarfsmenn í mörgum löndum hafa þurft að koma að uppsetningu og rekstri hins flókna nets eignarhaldsfélaga. En hver var tilgangurinn þá? Við því fáum við varla svör, alla vega ekki í Kjarn- anum, þar sem á þeim bæ virðist áhuginn á naflaskoðun minni en enginn. Þögnin er ærandi. Nýlega mætti Þórður Snær Júlí- usson, ritstjóri Kjarnans, í sjón- varpsviðtal til að kynna nýútgefna bók sína um Kaupþing. Um hana hefur Brynjar Níelsson alþingis- maður fjallað ágætlega. Bókinni gaf hann falleinkunn vegna yfirborðs- kenndrar og einhliða umfjöllunar. Við lestur bókarinnar vekur sér- staka athygli hve gríðarlega ánægð- ur höfundurinn er með sjálfan sig. Sjálfumgleðin er samt fremur ill- skiljanleg því seint verður bókin sögð fagmannlega unnin. Í henni er ekki ein einasta neðanmálsgrein, auk þess sem í henni er hvorki að finna heimilda- né nafnaskrá, sem hlýtur að vera lágmarkskrafa til bóka af þessu tagi. Ætla má að gerðar séu ríkari kröfur til heimilda við ritgerðarsmíð í yngri bekkjum grunnskóla en ritstjóri Kjarnans og útgefandi hans gera til bókarinnar. Ritstjórinn og bókarhöfundurinn hefur raunar ritað ófáa pistlana til að upphefja þá blaðamennsku, sem er stunduð á Kjarnanum, og dásama hve mikilvægur miðillinn sé íslensku samfélagi, sem boðberi sannleika og kyndilberi heiðarleika. Ekki hefur hann veigrað sér við að sá tortryggni í garð annarra veffjöl- miðla, eins og nýleg ummæli hans um nýjan vef Björns Inga Hrafns- sonar, viljinn.is, eru skýrt dæmi um. Lét hann að því liggja að eitthvað annað lægi að baki miðli Björns Inga en heiðarleiki og viljinn til þess að upplýsa almenning. Hver er sannleikurinn? En þolir ritstjórinn sjálfur, að virðing hans fyrir sannleikanum og mikil- vægi þess að upplýsa almenning sé skoðuð til hlítar? Í fyrrnefndu sjón- varpsviðtali tjáði hann spyrjand- anum og alþjóð, að sláandi hefði verið við Al Thani viðskiptin að Kaupþingsmenn hefðu nýtt lausa fjármuni í erlendum gjaldmiðli, sem Al Thani hafði til ráðstöfunar, og selt fyrir íslenskar krónur á afar háu gengi. Með þeim „snúningi“ hefði Kaupþingsmönnum tekist að forða Al Thani frá sjálfskuldarábyrgð sinni. Vegna fjölskyldu- og vináttu- banda við Hreiðar Má Sigurðsson, fyrrum forstjóra Kaupþings, fylgdist ég vel með rekstri Al Thani málsins og mætti m.a. oft í dómssal án þess að sjá Þórð Snæ þar nokkru sinni. Og hver er sannleikurinn í þessu máli – sannleikurinn sem sannleikselskandi og heiðarlegur rannsóknarblaða- maður skyldi ávallt leita? Jú, stað- reyndin er sú, að stjórnendur Kaup- þings bentu sérstökum saksóknara á það strax í fyrstu yfirheyrslum vegna málsins, að nákvæmlega þessi við- skipti þyrfti að skoða vandlega. Og hvers vegna kom þessi ábending frá stjórnendum Kaupþings? Það var einfaldlega vegna þess, að viðskiptin voru ekki framkvæmd með vilja eða samþykki stjórnenda Kaupþings heldur af starfsmanni bankans, án vitundar eða vilja stjórnenda hans. Þessi starfsmaður var fyrsti banka- maðurinn sem sérstakur saksóknari handtók vegna rannsóknar á Kaup- þingi. Hann átti síðar eftir að snúa framburði sínum í 180 gráður í Al Thani málinu og varpa sök af eigin gerðum á stjórnendur Kaupþings til að koma sér undan ákæru vegna meintra innherjasvika, en upplýst er að hann seldi eigin hlutabréf í Kaupþingi á lokadögum bankans á almennum verðbréfamarkaði þegar hann gerði sér grein fyrir erfiðri lausafjárstöðu bankans. Skýrari verða vart innherjasvik. En, þarna hefði sannleikurinn vitanlega skemmt góða sögu og getað dregið úr sölu bókarinnar. Virðingin fyrir sannleikanum virðist ekki meiri en svo, að vísvitandi blekkingum er beitt til að auglýsa bók og auka sölu á henni – bók sem tæpast þætti boðleg sem heimildaritgerð í grunnskóla. Þriðja dæmið um sannleiksást Kjarnamanna, og einbeittan vilja þeirra til að upplýsa almenning af fullkomnum heiðarleika, er hvernig tekið var á kynferðisbroti á rit- stjórnarskrifstofum Kjarnans nú í sumar. Á vefsíðunni hafa birst ófáar greinar um jafnrétti og mikilvægi #metoo byltingarinnar. Hneykslun og yfirlætisleg umfjöllun um ömur- lega og lágkúrulega pólitík á Íslandi hefur verið áberandi. Umfjöllun Kjarnans um Klaustursmálið hefur verið afdráttarlaus og harkaleg í garð þeirra þingmanna, sem heyrast á upptökum frá kvöldi 20. nóvember. Það er í sjálfu sér allt í lagi, þar sem orðhákar þess kvölds verðskulda engin háttvísisverðlaun. Viðbrögðin En hver voru viðbrögðin þegar fyrr- verandi eigandi og stjórnarmaður Kjarnans, og alþingismaður Sam- fylkingarinnar, braut kynferðislega gegn ungum blaðamanni vefsíðunn- ar í gleðskap inni á ritstjórnarskrif- stofum fjölmiðilsins? Jú, þöggun. Lesendur voru ekki upplýstir, lög- reglan var ekki upplýst, en málið var sent á nýstofnaða „trúnaðar- nefnd“ Samfylkingarinnar, sem í orði kveðnu er óháð flokknum og einstaklingum innan hans, en er samt eingöngu skipuð fólki, sem gegnt hefur trúnaðarstörfum fyrir flokkinn. Í marga mánuði þagði Kjarninn um alvarlega háttsemi þingmannsins og vart þarf að efast um að ærandi þögnin bergmálaði enn ef ekki hefði verið fyrir Klaust- ursmálið. Vafasamt er, að til séu augljósari dæmi um skinhelgi og hræsni fjölmiðils. Lénið hraesni.is ku vera laust – eitthvað til umhugs- unar fyrir forráðamenn Kjarnans. Hræsni.is Ólafur Arnarson hagfræðingur og rithöfundur Við lestur bókarinnar vekur sérstaka athygli hve gríðar- lega ánægður höfundurinn er með sjálfan sig. Sjálfum- gleðin er samt fremur ill- skiljanleg því seint verður bókin sögð fagmannlega unnin. LAND ROVER Discovery 5 TD6 HSE Luxury Nýskr. 2/2018, ekinn 9 þús. km, dísil, sjálfskiptur. Verð 15.890.000 kr. Rnr.103826. LAND ROVER Discovery Sport SE. Nýskr. 8/2016, ekinn 22 þús. km, dísil, sjálfskiptur. Verð 5.990.000. kr. Rnr. 103736. LAND ROVER Discovery 5 SE Nýskr. 11/2017, ekinn 54 þús. km, dísil, sjálfskiptur. Verð 10.500.000 kr. Rnr. 145504. RANGE ROVER Evoque HSE Dynamic Nýskr. 2/2016, ekinn 40 þús. km, dísil, sjálfskiptur. Verð 6.990.000 kr. Rnr. 103733. JAGUAR - LAND ROVER Hesthálsi 6-8 / 110 Reykjavík 525 6500 / jaguarlandrover.is Allir bílar sem merktir eru APPROVED hafa farið í gegnum gæðaferli notaðra Jaguar og Land Rover bíla. Sjón er sögu ríkari – komdu í reynsluakstur strax í dag. NOTAÐIR LÚXUSBÍLAR SÝNINGARSALUR - HESTHÁLSI 6 RANGE ROVER Sport HSE Nýskr. 6/2017, ekinn 30 þús. km, dísil, sjálfskiptur. Verð 11.500.000 kr. Rnr. 103773. RANGE ROVER Evoque Autobiography Nýskr. 1/2017, ekinn 21 þús. km, dísil, sjálfskiptur. Verð 7.990.000 kr. Rnr. 450002. LAND ROVER Discovery Sport HSE Nýskr. 4/2016, ekinn 30 þús. km, dísil, sjálfskiptur. Verð 6.890.000 kr. Rnr. 103786. LAND ROVER Discovery 4 SE Nýskr. 9/2015, ekinn 140 þús. km, dísil, sjálfskiptur. Verð 6.690.000 kr. Rnr. 145505. E N N E M M / S ÍA / N M 9 1 3 5 7 J a g u a r n o t a ð ir 5 x 2 0 1 2 d e s 2 0 . d e s e m b e r 2 0 1 8 F I m m T U d A G U r24 s k o ð U n ∙ F r É T T A b L A ð I ð 2 0 -1 2 -2 0 1 8 0 4 :4 2 F B 0 6 4 s _ P 0 4 1 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 4 0 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 2 4 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 2 5 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 1 D E -2 F F 4 2 1 D E -2 E B 8 2 1 D E -2 D 7 C 2 1 D E -2 C 4 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 8 B F B 0 6 4 s _ 1 9 _ 1 2 _ 2 0 1 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.