Fréttablaðið - 20.12.2018, Page 24
Við Íslendingar getum ekki kvartað undan því að ekki hafi verið fjallað nógu mikið
um Panamaskjölin hér á landi. Lík-
ast til hefur vefmiðillinn Kjarninn
fjallað oftar um þau, og marga þá
Íslendinga sem þar birtust, en nokk-
ur annar innlendur fjölmiðill. Einatt
hefur verið gefið skýrt til kynna að
þeir, sem fjallað var um í Panama-
skjölunum, hafi stundað ólögmæt
og/eða ósiðleg viðskipti. Vandlæt-
ingin gagnvart sjálfstæðismönnum,
sem í skjölunum var að finna, hefur
umvafið hvert orð Kjarnans um þá.
Minna hefur farið fyrir hneykslan
og dómhörku í garð þess manns,
sem virðist hafa vafið utan um sig
flóknasta vef eignarhaldsfélaga,
sem nokkur Íslendingur hefur sett
upp, og er þá til nokkurs jafnað. Sá
reyndist vera einn stærsti hluthafi
Kjarnans auk þess að gegna trún-
aðarstörfum fyrir Samfylkinguna.
Tæpast hefur tilgangur þess flókna
eignarhalds verið að spara kostnað
við utanumhald um fjárfestingar
þessa eiganda Kjarnans, þar sem
ófáir lögmenn, endurskoðendur
og bankastarfsmenn í mörgum
löndum hafa þurft að koma að
uppsetningu og rekstri hins flókna
nets eignarhaldsfélaga. En hver var
tilgangurinn þá? Við því fáum við
varla svör, alla vega ekki í Kjarn-
anum, þar sem á þeim bæ virðist
áhuginn á naflaskoðun minni en
enginn. Þögnin er ærandi.
Nýlega mætti Þórður Snær Júlí-
usson, ritstjóri Kjarnans, í sjón-
varpsviðtal til að kynna nýútgefna
bók sína um Kaupþing. Um hana
hefur Brynjar Níelsson alþingis-
maður fjallað ágætlega. Bókinni gaf
hann falleinkunn vegna yfirborðs-
kenndrar og einhliða umfjöllunar.
Við lestur bókarinnar vekur sér-
staka athygli hve gríðarlega ánægð-
ur höfundurinn er með sjálfan sig.
Sjálfumgleðin er samt fremur ill-
skiljanleg því seint verður bókin
sögð fagmannlega unnin. Í henni
er ekki ein einasta neðanmálsgrein,
auk þess sem í henni er hvorki
að finna heimilda- né nafnaskrá,
sem hlýtur að vera lágmarkskrafa
til bóka af þessu tagi. Ætla má að
gerðar séu ríkari kröfur til heimilda
við ritgerðarsmíð í yngri bekkjum
grunnskóla en ritstjóri Kjarnans og
útgefandi hans gera til bókarinnar.
Ritstjórinn og bókarhöfundurinn
hefur raunar ritað ófáa pistlana til
að upphefja þá blaðamennsku,
sem er stunduð á Kjarnanum, og
dásama hve mikilvægur miðillinn
sé íslensku samfélagi, sem boðberi
sannleika og kyndilberi heiðarleika.
Ekki hefur hann veigrað sér við að
sá tortryggni í garð annarra veffjöl-
miðla, eins og nýleg ummæli hans
um nýjan vef Björns Inga Hrafns-
sonar, viljinn.is, eru skýrt dæmi um.
Lét hann að því liggja að eitthvað
annað lægi að baki miðli Björns
Inga en heiðarleiki og viljinn til þess
að upplýsa almenning.
Hver er sannleikurinn?
En þolir ritstjórinn sjálfur, að virðing
hans fyrir sannleikanum og mikil-
vægi þess að upplýsa almenning sé
skoðuð til hlítar? Í fyrrnefndu sjón-
varpsviðtali tjáði hann spyrjand-
anum og alþjóð, að sláandi hefði
verið við Al Thani viðskiptin að
Kaupþingsmenn hefðu nýtt lausa
fjármuni í erlendum gjaldmiðli,
sem Al Thani hafði til ráðstöfunar,
og selt fyrir íslenskar krónur á afar
háu gengi. Með þeim „snúningi“
hefði Kaupþingsmönnum tekist að
forða Al Thani frá sjálfskuldarábyrgð
sinni. Vegna fjölskyldu- og vináttu-
banda við Hreiðar Má Sigurðsson,
fyrrum forstjóra Kaupþings, fylgdist
ég vel með rekstri Al Thani málsins
og mætti m.a. oft í dómssal án þess
að sjá Þórð Snæ þar nokkru sinni. Og
hver er sannleikurinn í þessu máli –
sannleikurinn sem sannleikselskandi
og heiðarlegur rannsóknarblaða-
maður skyldi ávallt leita? Jú, stað-
reyndin er sú, að stjórnendur Kaup-
þings bentu sérstökum saksóknara á
það strax í fyrstu yfirheyrslum vegna
málsins, að nákvæmlega þessi við-
skipti þyrfti að skoða vandlega. Og
hvers vegna kom þessi ábending frá
stjórnendum Kaupþings? Það var
einfaldlega vegna þess, að viðskiptin
voru ekki framkvæmd með vilja eða
samþykki stjórnenda Kaupþings
heldur af starfsmanni bankans, án
vitundar eða vilja stjórnenda hans.
Þessi starfsmaður var fyrsti banka-
maðurinn sem sérstakur saksóknari
handtók vegna rannsóknar á Kaup-
þingi. Hann átti síðar eftir að snúa
framburði sínum í 180 gráður í Al
Thani málinu og varpa sök af eigin
gerðum á stjórnendur Kaupþings
til að koma sér undan ákæru vegna
meintra innherjasvika, en upplýst
er að hann seldi eigin hlutabréf í
Kaupþingi á lokadögum bankans
á almennum verðbréfamarkaði
þegar hann gerði sér grein fyrir
erfiðri lausafjárstöðu bankans.
Skýrari verða vart innherjasvik. En,
þarna hefði sannleikurinn vitanlega
skemmt góða sögu og getað dregið
úr sölu bókarinnar. Virðingin fyrir
sannleikanum virðist ekki meiri en
svo, að vísvitandi blekkingum er
beitt til að auglýsa bók og auka sölu á
henni – bók sem tæpast þætti boðleg
sem heimildaritgerð í grunnskóla.
Þriðja dæmið um sannleiksást
Kjarnamanna, og einbeittan vilja
þeirra til að upplýsa almenning af
fullkomnum heiðarleika, er hvernig
tekið var á kynferðisbroti á rit-
stjórnarskrifstofum Kjarnans nú í
sumar. Á vefsíðunni hafa birst ófáar
greinar um jafnrétti og mikilvægi
#metoo byltingarinnar. Hneykslun
og yfirlætisleg umfjöllun um ömur-
lega og lágkúrulega pólitík á Íslandi
hefur verið áberandi. Umfjöllun
Kjarnans um Klaustursmálið hefur
verið afdráttarlaus og harkaleg í
garð þeirra þingmanna, sem heyrast
á upptökum frá kvöldi 20. nóvember.
Það er í sjálfu sér allt í lagi, þar sem
orðhákar þess kvölds verðskulda
engin háttvísisverðlaun.
Viðbrögðin
En hver voru viðbrögðin þegar fyrr-
verandi eigandi og stjórnarmaður
Kjarnans, og alþingismaður Sam-
fylkingarinnar, braut kynferðislega
gegn ungum blaðamanni vefsíðunn-
ar í gleðskap inni á ritstjórnarskrif-
stofum fjölmiðilsins? Jú, þöggun.
Lesendur voru ekki upplýstir, lög-
reglan var ekki upplýst, en málið
var sent á nýstofnaða „trúnaðar-
nefnd“ Samfylkingarinnar, sem í
orði kveðnu er óháð flokknum og
einstaklingum innan hans, en er
samt eingöngu skipuð fólki, sem
gegnt hefur trúnaðarstörfum fyrir
flokkinn. Í marga mánuði þagði
Kjarninn um alvarlega háttsemi
þingmannsins og vart þarf að efast
um að ærandi þögnin bergmálaði
enn ef ekki hefði verið fyrir Klaust-
ursmálið. Vafasamt er, að til séu
augljósari dæmi um skinhelgi og
hræsni fjölmiðils. Lénið hraesni.is
ku vera laust – eitthvað til umhugs-
unar fyrir forráðamenn Kjarnans.
Hræsni.is
Ólafur
Arnarson
hagfræðingur
og rithöfundur
Við lestur bókarinnar vekur
sérstaka athygli hve gríðar-
lega ánægður höfundurinn
er með sjálfan sig. Sjálfum-
gleðin er samt fremur ill-
skiljanleg því seint verður
bókin sögð fagmannlega
unnin.
LAND ROVER Discovery 5
TD6 HSE Luxury
Nýskr. 2/2018, ekinn 9 þús. km,
dísil, sjálfskiptur.
Verð 15.890.000 kr.
Rnr.103826.
LAND ROVER Discovery
Sport SE.
Nýskr. 8/2016, ekinn 22 þús. km,
dísil, sjálfskiptur.
Verð 5.990.000. kr.
Rnr. 103736.
LAND ROVER Discovery 5 SE
Nýskr. 11/2017, ekinn 54 þús. km,
dísil, sjálfskiptur.
Verð 10.500.000 kr.
Rnr. 145504.
RANGE ROVER Evoque
HSE Dynamic
Nýskr. 2/2016, ekinn 40 þús. km,
dísil, sjálfskiptur.
Verð 6.990.000 kr.
Rnr. 103733.
JAGUAR - LAND ROVER
Hesthálsi 6-8 / 110 Reykjavík
525 6500 / jaguarlandrover.is
Allir bílar sem merktir eru APPROVED hafa farið í gegnum
gæðaferli notaðra Jaguar og Land Rover bíla.
Sjón er sögu ríkari – komdu í reynsluakstur strax í dag.
NOTAÐIR LÚXUSBÍLAR
SÝNINGARSALUR - HESTHÁLSI 6
RANGE ROVER Sport HSE
Nýskr. 6/2017, ekinn 30 þús. km,
dísil, sjálfskiptur.
Verð 11.500.000 kr.
Rnr. 103773.
RANGE ROVER Evoque
Autobiography
Nýskr. 1/2017, ekinn 21 þús. km,
dísil, sjálfskiptur.
Verð 7.990.000 kr.
Rnr. 450002.
LAND ROVER
Discovery Sport HSE
Nýskr. 4/2016, ekinn 30 þús. km,
dísil, sjálfskiptur.
Verð 6.890.000 kr.
Rnr. 103786.
LAND ROVER Discovery 4 SE
Nýskr. 9/2015, ekinn 140 þús. km,
dísil, sjálfskiptur.
Verð 6.690.000 kr.
Rnr. 145505.
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
9
1
3
5
7
J
a
g
u
a
r
n
o
t
a
ð
ir
5
x
2
0
1
2
d
e
s
2 0 . d e s e m b e r 2 0 1 8 F I m m T U d A G U r24 s k o ð U n ∙ F r É T T A b L A ð I ð
2
0
-1
2
-2
0
1
8
0
4
:4
2
F
B
0
6
4
s
_
P
0
4
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
4
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
2
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
2
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
1
D
E
-2
F
F
4
2
1
D
E
-2
E
B
8
2
1
D
E
-2
D
7
C
2
1
D
E
-2
C
4
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
8
B
F
B
0
6
4
s
_
1
9
_
1
2
_
2
0
1
C
M
Y
K