Ljósmæðrablaðið

Árgangur

Ljósmæðrablaðið - 01.12.2010, Blaðsíða 9

Ljósmæðrablaðið - 01.12.2010, Blaðsíða 9
9Ljósmæðrablaðið - desember 2010 eftir fæðingu tilheyrðu þjónustustigum B og C. Fjölbyrjur fóru hlutfallslega fyrr heim af fæðingarstofnun miðað við frum- byrjur en á mynd 2 má sjá að 46% fjölbyrja samanborið við 8% frumbyrja fóru heim fyrstu 12 tímana eftir fæðingu. Þjónustuform heimaþjónustu ljósmæðra, umfang þjónustunnar Kynni sængurkvenna af ljósmóður áður en til heimaþjónustu kom. Langflestar skýrslurnar (98,8%) gáfu upplýsingar um það hvort sængurkonurnar hefðu kynnst ljósmóðurinni áður en heima- þjónustan hófst og reyndist svo vera í 60% tilfella. Í 207 skýrslum (60%) kom fram hvernig kynni sængurkonu af ljósmóður hefði átt sér stað. Flestar konurnar kynntust ljós- móðurinni á meðgöngu eingöngu eða um 58,5% þeirra og sumar höfðu auk þess kynnst þeim í fæðingu, fyrri fæðingu í sængurlegu eða persónulega, þannig að kynni á meðgöngu áttu sér stað í um 70% tilfella. Einnig var nokkuð algengt að konurnar kynntust ljósmæðrunum í sæng- urlegu (14,5-38,2%) eða þekktu þær pers- ónulega (5-6,8%). Fæstar konur kynntust heimaþjónustuljósmóður í fæðingu (3,2- 4,4%). Heildarfjöldi, tímalengd og tímasetningar vitjana í heimaþjónustu Heildarfjöldi vitjana í heimaþjónustu fyrir hverja konu spannaði frá 1 til 11 vitjana. Meðalfjöldi vitjana fyrir allar konurnar var 6,71 skipti. Flestar konurnar fengu 8 vitjanir frá heimaþjónustuljósmóður eða í 39,4% tilfella (n=135), 19,8% kvenna fengu 7 vitjanir, 17,2% 6 vitjanir, 9,9% 5 vitjanir og 6,4% 4 vitjanir. Fjórtán konur fengu færri vitjanir en 4 og 11 konur fengu fleiri en 8 vitjanir (sjá mynd 3). Þegar fæstar vitjanirnar voru var skýr- ingin gjarnan sú að um afleysingu annarrar ljósmóður var að ræða eða skiptingu vitj- ana á milli mánaða þ.e. maí og júní en gagnasöfnunin náði einungis til vitjana í júní og júlí. Nokkrum sinnum var engin skýring gefin fyrir færri vitjunum en oftar en ekki var um fjölbyrjur að ræða. Þær skýringar sem komu fram sem ástæður fleiri vitjana en 8 voru oftast margþættar en gildar ástæður komu fram í öllum tilfellum utan einnar skýrslu þar sem engin skýring var gefin. Þær ástæður sem helst skýrðu þörf fyrir fleiri vitjanir voru eftirfarandi: Um tvær heimafæðingar var að ræða sem eðlilega fela í sér fleiri en 8 vitjanir; fimm konur áttu við brjóstagjaf- arvanda að stríða þar sem mikil þörf var á stuðningi, fræðslu og eftirfylgni. Erfið- leikum við brjóstagjöfina fylgdu oftast fleiri vandamál s.s. óeðlileg gula barns, of lítil þyngdaraukning barns, blæðing hjá móður eða önnur heilsufarsvandamál hjá móður eða barni. Þrjár konur glímdu Mynd 1. Fjöldi barna eftir aldri við útskrift af fæðingarstofnun Aldur barna við útskrift heim/þegar heimaþjónusta hófst (klst.) Fj öl di b ar na (n ) <6 90 80 70 60 50 40 30 20 10 0 6-12 12-18 18-24 24-36 36-48 Mynd 2. Dreifing á hlutfallslegum fjölda kvenna við útskrift eftir tíma frá fæðingu og barneignareynslu (frumbyrja/fjölbyrja) Tími frá fæðingu/aldur barns við útskrift (klst.) H lu tf al ls le gu r fjö ld i k ve nn a (% ) <6 1,4 7,7 6,9 38,5 19,1 20,9 31,9 9,9 33,3 17,0 6,9 6,0 45 40 35 30 25 20 15 10 5 0 6-12 12-18 18-24 24-36 36-48 Hlutfall frumbyrja Hlutfall fjölbyrja Mynd 3. Dreifing heildarfjölda vitjana í heimaþjónustu Heildarfjöldi vitjana Fj öl di k ve nn a (n ) 1 2 3 4 5 6 7 8 6 3 5 22 34 59 68 135 160 140 120 100 80 60 40 20 0

x

Ljósmæðrablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ljósmæðrablaðið
https://timarit.is/publication/862

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.