Ljósmæðrablaðið

Volume

Ljósmæðrablaðið - 01.12.2010, Page 24

Ljósmæðrablaðið - 01.12.2010, Page 24
24 Ljósmæðrablaðið - desember 2010 Norðurlandaráðstefna ljósmæðra var haldin í Kaupmannahöfn dagana 3.- 5. júní 2010. Sól og blíða var allan tímann, allt skipulag á ráðstefnunni var til fyrirmyndar og svo var félagskapurinn náttúrulega frábær. Vel var hugsað um að næra ljósmæðurnar bæði á líkama og sál og var einn af hápunktum ráðstefnunnar hátíðarkvöldverðurinn í Tívolíinu. Óhætt er að segja að þar sem ljósmæður eru samankomnar þar getur ekki verið leiðinlegt. Stemningin hjá íslensku ljósmæðrunum var frábær þó hópurinn væri ekki stór. Við fórum út að borða, lágum í sólinni milli erinda og nutum lífsins til hins ýtrasta fullar innblásturs eftir fróðlega fyrir- lestra annarra ljósmæðra. Íslenskar ljósmæður voru áberandi á ráðstefnunni með mörg mjög góð erindi. Í byrjun hélt Hildur Kristjánsdóttir formaður NJF tölu og var íslenskum ljósmæðrum til sóma. Aðrar ljósmæður sem voru með erindi voru Helga Gottfreðsdóttir, en hún var með tvö erindi. Annað þeirra fjallaði um reynslu kvenna af mænurótardeyfingu og hitt um foreldra sem hafna fósturskimun. Sigríður Sía Jónsdóttir hélt erindi um hvernig ljósmæður skima fyrir ofbeldi í nánum samböndum á meðgöngu. Hulda Þórey Garðarsdóttir ljósmóðir í Hong Kong sagði frá reynslu sinni af því að starfa sem ljós- móðir í Hong Kong. Sigfríður Inga Karls- dóttir flutti erindi um hvað einkennir góða ljósmóður og Ólöf Ásta Ólafsdóttir var með erindi þar sem hún kynnti líkan sem hún er að þróa ásamt ljósmæðrunum Marie Berg og Ingela Lundgren, en um er að ræða líkan sem mun gagnast í menntun og störfum ljós- mæðra á Norðurlöndum. Undirritaðar kynntu svo lokaverkefni sitt um viðhorf og reynslu kvenna af fæðingum fjarri hátækni. Það var frábær upplifun að standa fyrir framan fullan sal af áhugasömum ljósmæðrum og fá tækifæri til að kynna verkefnið okkar og leyfa röddum kvenna sem fæða fjarri hátækni að heyrast. Fjöldi áhugaverðra erinda var á ráðstefnunni og oft var erfitt að velja úr. Þar sem við erum að stíga okkar fyrstu skref sem heimafæðingaljósmæður og höfum mikinn áhuga á að koma á fót sjálfstætt starfandi ljósmæðrahópum sem bjóða uppá samfellda þjónustu í barneignaferlinu völdum við gjarnan erindi tengd heimafæðingum eða ljósmæðrareknum einingum. Það var mjög hvetjandi að sjá að mjög víða eru ljós- mæður að leggja sig fram um að gera heimafæðingar að raunhæfum valkosti fyrir verðandi foreldra. Einnig eru víða verkefni í gangi sem miða að því að veita samfellda þjónustu ljósmóður í barneignaferlinu. Upphafserindið á fyrsta degi ráðstefnunnar hélt Hanne Kjærgaard, ljósmóðir í Danmörku en erindið hennar hét „Medicalisation of childbirth - have we gone too far?“ Með erindi sínu gaf hún tóninn fyrir það sem koma skyldi á ráðstefnunni. Þetta erindi hreyfði mikið við okkur og því langar okkur að segja frá því. Hún fjallaði um sjúkdóm- svæðingu barneignaferlisins og velti hún fyrir sér hvort við hefðum gengið of langt í þeim efnum. Hún benti á að um leið og við eigum tækninni margt að þakka hvað varðar betri útkomu fæðinga þá væri ekki mikið til af rannsóknum sem styddu læknisfræðileg inngrip við eðlilegar fæðingar. Þrátt fyrir það hefðu læknisfræðileg inngrip á síðustu 30-40 árum „troðið sér“ inn í eðlilegar fæðingar og þá sérstaklega í hinum vestræna heimi, þ.á.m. á Norðurlöndunum. Þessi þróun ögrar hugtakinu „eðlileg fæðing“. Erum við jafn- vel farin að líta á notkun mænurótardeyfinga og örvun með syntocinon sem hluta af eðlilegum fæðingum? Eins og fram kom í erindi hennar er örvun með syntocinon algengasta inngripið í fæðingum þrátt fyrir að skilgreiningar á langdregnum fæðingum séu á reiki og ekki allir sammála hvað það varðar. Fram kom að hjá 50% hraustra frum- byrja á Norðurlöndum er syntosinon notað til að örva fæðinguna. Einnig hafði hún áhyggjur af aukinni keisaratíðni og talaði um mikilvægi þess að sporna við ónauðsyn- legum keisurum. Kallaði þá því skemmtilega nafni „unnescaesarians“. Hún talaði á mjög áhugaverðan hátt um sögu barnsfæðinga og það hvernig aukinn áhugi karlmanna á fæðingum hefur í gegnum tíðina haft í för með sér aukin inngrip í fæðingarferlið. Hún nefndi einnig greiningarviðmið frá 1920 á langdregnum fæðingum en þá var tímaramminn mun víðari og eðlileg fæðing gat staðið frá 18 klukkustundum upp í nokkra daga. Ef búið var að útiloka misræmi fósturs og grindar og móður og barni leið vel var meðferðin við langdregnum fæðingum ekki mjög flókin en það var þolinmæði. Í því samhengi talaði hún um hvernig meðferð á langdregnum fæðingum hefði þróast úr þolinmæði yfir í óþolinmæði. Í nýrri skilgreiningum á lang- dreginni fæðingu væri jafnvel miðað við að útvíkkun sé 1.2 cm/klst og ef ferlið gengur hægar er brugðist við með belgjarofi og örvun með syntocinoni. Því er sífellt meiri krafa um að fæðingar taki styttri tíma, jafn- vel styttri tíma en eðlilegt er. Hún talaði um hlutverk ljósmæðra í sjúkdómsvæðingu fæðinga og mikilvægi þess að ljósmæður standi vörð um eðlilegar fæðingar, það hefur að hennar mati aldrei verið eins mikilvægt og nú. Hún talaði líka um yfirsetuna og að það væri sífellt algengara á stórum sjúkrahúsum að konur fengju mænurótardeyfingu og enga yfirsetu. Ljósmæður væru meira og meira inni á vakt þar sem þær gætu fylgst með nokkrum konum í einu á mónitor inni á vaktinni. Hún vakti athygli á því að munur væri á þjáningu og sársauka. Að kona með mænurótardeyfingu og enga yfirsetu finni kannski ekki fyrir sársauka en geti svo sannarlega þjáðst í fæðingunni þar sem Norðurlandaráðstefna ljósmæðra Kaupmannahöfn 3.-5. júní 2010 Arney Þórarinsdóttir, Ljósmóðir Hrafnhildur Halldórsdóttir, Ljósmóðir

x

Ljósmæðrablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ljósmæðrablaðið
https://timarit.is/publication/862

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.