Ljósmæðrablaðið

Árgangur

Ljósmæðrablaðið - 01.12.2010, Blaðsíða 25

Ljósmæðrablaðið - 01.12.2010, Blaðsíða 25
25Ljósmæðrablaðið - desember 2010 hana vantar þann stuðning sem ljósmóðirin annars veitir. Það var mjög áhrifaríkt þegar hún spilaði upphafsstef lagsins „Bridge over troubled water“ til að leggja áherslu á mikil- vægi yfirsetunnar, við leyfum þessum línum að fylgja hér með: When you´re weary, feeling small. When tears are in your eyes, I will dry them all I´m on your side, when time get rough Ekki var laust við að tár féllu í salnum þegar þetta var spilað. Þetta er eitthvað sem vert er að hafa í huga nú á tímum niðurskurðar og með auknu álagi á fæðingardeildum. Þó ástandið sé kannski ekki orðið svona slæmt hjá okkur þá getur það orðið það ef við stöndum ekki vörð um yfirsetu ljósmóður í fæðingu. Á föstudeginum var ekki síður áhugavert upphafserindi en þá talaði Cathty Warwick ljósmóðir í Bretlandi um mikilvægi þess að konur í barneignaferlinu hefðu val á þjónustu því það stuðlar að jákvæðri upplifun, eflir konur og er mikilvægt fyrir vöxt og þroska ljósmóðurstéttarinnar. Hún nefndi sérstaklega mikilvægi þess að konur hefðu aðgang að ljósmæðrastýrðum einingum, það væri einn stærsti þátturinn í að stuðla að eðlilegum fæðingum. Hún talaði um að þrátt fyrir fjölda ljósmæðrastýrðra eininga í Bret- landi byggju 40% kvenna þar við það að hafa ekki aðgang að slíkum einingum. Einnig talaði hún um að ljósmæður þyrftu að vera duglegar við að kynna fyrir skjólstæðingum sínum þá valkosti sem standa þeim til boða því ef konur vita ekki af valkostunum sem í boði eru þá hafa þær ekki raunverulegt val. Það kom vel fram á ráðstefnunni að á öllum Norðurlöndunum eru ljósmæður að heyja sömu baráttuna, þ.e.a.s. að standa vörð um skjólstæðinga okkar og þá þjónustu sem við viljum veita þeim. Baráttan er hörð og mjög víða er verið að fækka fæðingarstöðum og öllum fæðingum beint á stærri sjúkrahúsin þar sem álag og tímaskortur ræður ríkjum og tíðni inngripa í eðlilegar fæðingar eykst í takt við það. Ljósmæðrastýrðar einingar sem reknar hafa verið með góðum árangri á hagkvæman hátt berjast í bökkum við að halda starfsemi sinni gangandi. Fjöldi erinda fjallaði um ljósmæðrahópa eða fæðingar- heimili sem sýndu gríðarlega góða útkomu en biðu þess þó að verða lokað og þá helst af því að þau „framleiddu“ ekki eins mikið af börnum og stóru sjúkrahúsin. Alls staðar standa því ljósmæður frammi fyrir því að valkostum verðandi foreldra er að fækka eða það sem enn verra er að aukinn fjöldi fólks þarf að sækja þjónustu í barneignaferlinu um langan veg með tilheyrandi óþægindum og kostnaði. Einnig er öryggi mæðra og barna þeirra ógnað með aukinni miðstýringu þegar þessi grunnþjónusta er lögð niður í smærri samfélögum. Nú sjáum við hér á Íslandi fram á enn meiri niðurskurð í barneignaþjónustunni en nokkru sinni fyrr sem bitnar á skjól- stæðingum okkar. Við verðum að taka höndum saman og standa vörð um þjónustu við fjölskyldur í barneignferlinu, eðlilegar fæðingar og ljósmæðrastéttina. Það eru skilaboðin sem við tókum með okkur heim eftir þessa vel heppnuðu ráðstefnu. Slappað af í sólinni milli fyrirlestra. Hildur Kristjánsdóttir flytur erindi. Formenn ljósmæðrafélaga á Norðurlöndum.

x

Ljósmæðrablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ljósmæðrablaðið
https://timarit.is/publication/862

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.