Ljósmæðrablaðið

Árgangur

Ljósmæðrablaðið - 01.12.2010, Síða 28

Ljósmæðrablaðið - 01.12.2010, Síða 28
28 Ljósmæðrablaðið - desember 2010 Í októberbyrjun gaf Ljósmæðrafélagið út skýrsluna Barneignarþjónusta á Íslandi 2010, uppbygging og framtíðarsýn á breytingatímum. Skýrslan var unnin af Guðlaugu Einarsdóttur formanni LMFÍ og Helgu Sigurðardóttur varaformanni LMFÍ með aðstoð Ólafar Ástu Ólafsdóttur formanns námsbrautar í ljósmóðurfræði við Háskóla Íslands og Hildar Kristjáns- dóttur ljósmóður hjá Landlæknisembættinu. Fengnar voru upplýsingar um barneignar- þjónustu í hverju heilbrigðisumdæmi frá lykilljósmæðrum og haldnir voru fundir um allt land til að ræða framtíðarsýn ljós- mæðra um skipulag og gæði þjónustunnar. Lykilljósmæður umdæma voru: Helga Sigurðardóttir LSH, G. Erna Valentínusdóttir HVE, Brynja Pála Helgadóttir Hvest, Jenný Inga Eiðsdóttir HSKrókur, Jónína Salný Guðmundsdóttir og Gunnþóra Snæþórsdóttir HSA, Björk Steindórsdóttir HSu og Jónína Birgisdóttir HSS. Eins kallaði félagið eftir upplýsingum frá framkvæmdastjórum heil- brigðistofnana um framtíðarsýn og fyrir- hugaðar breytingar á barneignarþjónustu á upptökusvæði hverrar stofnunar. Kveikjan að þessari skýrslu voru ítrekaðar ábendingar félagsins til heilbrigðisyfirvalda, á tilfinnanlegum skorti á heildrænni stefnu- mótun fyrir landið í barneignarferlinu. Eftir hrun íslenska efnahagskerfisins varð þörfin enn brýnni þar sem ýmsar breytingar í heilbrigðiskerfinu eru óhjákvæmilegar. Í einhverjum tilfellum hefur sparnaður heil- brigðisstofnana nú þegar leitt til skerðingar á þjónustu við barnshafandi konur og fjöl- skyldur þeirra og óttast ljósmæður að öryggi og lagalegum réttindum skjólstæðinga sé ógnað. Tilgangur skýrslunnar er að kortleggja þjónustu ljósmæðra eins og hún er nú og leggja fram tillögur um stefnumótun barneignarþjónustu sem uppfyllir faglegar kröfur um gæði og öryggi. Þegar skýrslan kom út, lá fyrir 4 daga gamalt frumvarp til fjárlaga sem kveður á um mun meiri niðurskurð en flestar heil- brigðisstofnanir væntu. Skýrslan ásamt yfir- lýsingu stjórnar um óraunhæfan niðurskurð, var send öllum þingmönnum, fjölmiðlum og framkvæmdastjórum heilbrigðisstofnana í þeirri von um að nýtast til að tryggja barna- fjölskyldum þá grunnheilbrigðisþjónustu sem veita ber í heimabyggð, þrátt fyrir mikinn niðurskurð. Þegar þessi orð eru skrifuð, er enn allt á huldu um afdrif heil- brigðisstofnana, en mótmælafundir haldnir víða um land. Í skýrslunni kemur fram að brýnt sé að við endurskipulag þjónustu sé litið til heildar- áhrifa breytinga, bæði m.t.t. skjólstæðinga, atvinnu heilbrigðisstarfsmanna og kostnaðar. Þekking og reynsla við heilbrigðisþjónustu í barneignarferli tapast þegar þjónustu reynds heilbrigðisstarfsfólks nýtur ekki lengur við og getur slíkur sparnaður hæglega snúist upp í andhverfu sína þegar til lengri tíma er litið. Það er dýrt að spara grunnheil- brigðisþjónustu eins og ljósmæðraþjónustu, sérstaklega á landsbyggðinni þar sem langur og kostnaðarsamur sjúkraflutningur er stundum eini valkosturinn. Ljósmæðrafélag Íslands leggur áherslu á að viðhalda þarf og styrkja grunnheil- brigðisþjónustu í landinu, og að samþætta þarf og nýta sérfræðiþekkingu heilbrigðis- fagfólks á hagkvæman og skynsaman hátt. Meðgönguvernd, fæðingarhjálp, sængurlega og ungbarnavernd er hluti af þeirri grunn- þjónustu sem tryggja þarf og veita sem næst heimabyggð. Ljósmæður starfa í öllum heilbrigðisumdæmum landsins og nýtist sérfræðiþekking þeirra vel í heimabyggð. Efla þarf samvinnu bæði innan umdæma og milli mismunandi þjónustustiga til að tryggja öryggi skjólstæðinga og hagkvæma nýtingu þess mannauðs sem heilbrigðiskerfið hefur yfir að búa. Ljósmæðrafélagið lagði fram tillögur um úrbætur í barneignarþjónustunni og áherslur félagsins í þeim efnum, en þær eru að: • Samfelld þjónusta verði höfð að leiðarljósi í skipulagi barneignarþjónustu á landinu. • Efla þurfi þjónustu utan stofnana. • Auka hlutdeild ljósmæðra í ungbarnavernd. • Efla samráð milli stofnana. • Þjónustan verði löguð að landfræðilegum aðstæðum á hverjum stað með jöfnuð og öryggi að leiðarljósi. • Barneignarþjónustan verði sérstök þjón- ustueining innan heilbrigðiskerfisins sem þverar starfsemi heilsugæslu og sjúkrahúsa í viðkomandi heilbrigðisumdæmi. • Skipulögð verði teymi ljósmæðra sem sinna barneignarþjónustu ákveðins fjölda kvenna og í hverju heilbrigðisumdæmi verði gott aðgengi að ljósmóður og a.m.k. einn aðalfæðingarstaður. • Huga verði sérstaklega að hagsmunum foreldra sem þurfa að leita um langan veg til fæðingarstaðar og taka þurfi tillit til röskunar á fjölskyldulífi með rýmkun foreldraorlofs og fæðingarstyrkja þessa hóps. • Brjóstagjöf þarf að efla í samræmi við hugmyndafræði sem grundvallast á sameiginlegri yfirlýsingu WHO og UNICEF um næringu nýbura og ungbarna og vinna að vottun barnvænna sjúkrahúsa (baby-friendly hospital). • Forgangur verði á vinnu við gerð og innleiðingu rafrænnar og samræmdar sjúkraskrár á landsvísu sem spara mun bæði vinnu og fjármuni auk þess að stuðla að auknu öryggi skjólstæðinga. Skýrsluna má kaupa innbundna hjá félaginu fyrir 1000 kr. eða fá senda endurgjaldslaust á rafrænu formi. Guðlaug Einarsdóttir Barneignarþjónusta á Íslandi 2010 – uppbygging og framtíðarsýn á breytingartímum Október 2010 Ljósmæðrafélag Íslands Barneignarþjónusta á Íslandi 2010 Uppbygging og framtíðarsýn á breytingatímum

x

Ljósmæðrablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ljósmæðrablaðið
https://timarit.is/publication/862

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.