Fréttablaðið - 25.01.2019, Blaðsíða 9
Eflaust hefðu margir útlend-ingar rekið upp stór augu í morgun ef þeir voru snemma
á vappi. Eins og allir Íslendingar
vita er það nefnilega í dag—Bónda-
daginn—sem Þorri gengur í garð
og þá fylgja öll íslensk heimili
fornum siðum sem tengjast
þessum degi.
Þeir hafa því verið margir
heimilis feðurnir sem ruku út í
morgun að fornum sið til þess að
fagna Þorra og bjóða hann vel-
kominn í garð. Húsbóndinn á að
fara fyrstur á fætur og láta ekki
undrunaraugu útlendinga trufla
sig þegar hann fylgir þeirri gömlu
hefð að fara út á skyrtunni einni
klæða, en bæði berlæraður og
berfættur nema með annan fótinn
ofan í brókarskálm, hoppa svo á
þeim fæti sem brókin hangir á í
kringum bæinn eða húsið, hrópa
svo upp „Vertu velkominn Þorri,
vertu ekki mjög grimmur.“
Velkominn Þorri
Frá þessari góðu hefð er sagt í Sögu
daganna eftir Árna Björnsson og
þess getið að elstu heimildir um
þessa fornu hefð komi frá síra Jóni
Halldórssyni, sem skrifaði um
þennan sið í bréfi árið 1728.
Reyndar er síra Jón ekki bara
elsta heimildin um þessa hefð
heldur sú eina. Og þar sem ekki er
vitað til þess að nokkur hafi séð
einn einasta mann viðhafa þetta
furðulega háttalag hér á landi
eða annars staðar þá er líklegasta
ályktunin sú að hér sé um að ræða
fyrsta íslenska trollið—og að síra
Jón, í einhverju húmorskasti,
vetrarþunglyndi, sveppatrippi
eða fylleríisrugli, hafi ákveðið að
skálda upp úr sér þennan Fóst-
bræðraskets og halda því að
sagnfræðingum framtíðarinnar
að hann væri órækur vitnisburður
um raunverulega siði á Íslandi árið
sautjánhundruð og súrkál.
Kannski var síra Jón óheppinn
að þessi siður hafi ekki náð að
festa rætur. Stundum þarf ekki svo
mikið til. Ef nokkrir bændur hefðu
tekið sig saman um það í upphafi
átjándu aldar að halda þennan
sið þá hefðu óinnvígðir—nýjar
kynslóðir og nýir nágrannar—í
raun aldrei nokkra hugmynd um
að öll þessi kostulega seremónía
væri ekkert annað en hugarfóstur
drukkins fulltrúa kirkjuvaldsins.
Og kannski værum við enn í dag
hoppandi með brókina lafandi á
ökklanum á þessum degi.
Og þá myndu blessaðir ferða-
mennirnir sannarlega telja sig hafa
komist í feitt og hver veit nema
hefðin myndi dreifast um alla
jarðarkringluna eins og Föstudag-
urinn svarti, Valentínusardagurinn
og Hrekkjavakan.
Sinn er siður
Þær eiga nefnilega ekki alltaf djúpar
rætur hefðirnar sem við teljum
sjálfsagðar og ef maður verður vitni
að einhverju framandi í nýju landi
þá dregur maður umsvifalaust þá
ályktun að um sé að ræða rótgróna
hefð. Ég var til dæmis gestur í ákaf-
lega fallegu brúðkaupi í sumar þar
sem brúðhjónin voru gefin saman
undir berum himni á kirkjulóðinni.
Fjöldi gesta var á svæðinu og stór
hópur ferðamanna fylgdist með.
Eftir að athöfnin sjálf hafði farið
fram fóru brúðhjónin ásamt presti
inn í kirkjuna en gestirnir biðu fyrir
utan eftir að fagna þeim.
Útlensku áhorfendunum hefur
eflaust þótt að þeir hafi komist í
feitt og gátu hróðugir sagt fólki
frá því þegar heim kom hvernig
íslenskir brúðkaupssiðir eru. „Þar
er það sko þannig að giftingin sjálf
fer fram úti í garði, en svo þegar
hún er búin þá fara brúðhjónin
ein inn í kirkjuna í stutta stund og
gestirnir bíða fyrir utan. Þannig er
þetta sko á Íslandi—ég sá það með
eigin augum.“ Og hver veit nema
einhvers staðar í heiminum verði
boðið upp á „Icelandic Style Wedd-
ing“ pakka sem byggist á einmitt
þessari hugmyndafræði.
Hefðirnar móta okkur
Það eru örugglega ýmsar hefðir
og venjur sem við tökum sem
sjálfsögðum hlutum en eiga rætur
sínar í einhverjum súrum innherja-
brandara, herfilegum misskilningi
eða vanhugsuðum öfgum.
Hvernig byrjaði sú krafa að mús-
limskar konur hyldu andlit sitt?
Af hverju voru nánast allir grískir
karlmenn allsberir á sprellanum
á höggmyndum en sumar konur
máttu hafa yfir sér slæðu? Af hverju
er eðlilegra að sýna morð í sjón-
varpi heldur en konubrjóst og af
hverju er hryllilegra að sjá typpi í
bíómynd heldur en kvenmanns-
sköp?
Og svo er það nú þetta með lista-
verkið í Seðlabankanum. Það er
kannski ekki bein ógn við frjálslynd
lífsviðhorf að Seðlabankinn hætti
að hafa til sýnis listaverk með konu-
brjóst á skrifstofum stjórnenda—og
kannski var myndin ósmekkleg og
fáránleg í þessu samhengi.
En samt—þetta var ekki góður
kafli í opinberri umræðu. Allt þetta
upphlaup skiptir nefnilega máli. Út
frá svona uppákomum geta smám
saman myndast ný viðmið sem á
örskömmum tíma geta orðið að
hefð og vana. Ofurviðkvæmni gagn-
vart sífellt sakleysislegri hlutum er
nefnilega farin að ráða býsna miklu
um mótun samfélagsins.
Hoppandi rugl
Er þessi litli og tapaði slagur á
virðulegri skrifstofu hluti af þróun
sem mun leiða til þess að skólar
munu skirrast við að sýna nem-
endum í sagnfræði og listasögu
svipaðar myndir? Kennarar vilja
ekki lenda í vandræðum ef þeir
sýna heimssögulegar myndir af
allsberum körlum og konum. Er
þá ekki bara betra að sleppa því?
Ættum við að mála yfir typpin á
grísku styttunum—eins og spé-
hræddir Ameríkanar hafa málað
yfir brjóst á alls konar listaverkum
og skemmt þau?
Jújú, vissulega er þetta ekki 100%
sambærilegt—en hver ætlar að
mótmæla því að nú þurfi bara einn
nemandi að kvarta undan sýningu
á Venusarstyttu í kennslustofu til
þess að allt fari í bál og brand?
Hverjir ætla að vera dómendur
í þeirri eilífu jafnvægislist að við-
halda almennu frjálslyndi og
almennri skynsemi—en jafnframt
segja aldrei neitt eða gera nokkuð
sem gæti farið öfugt ofan í einn
einasta mann? Verða það ef til vill
þeir öfgafyllstu þegar allt kemur til
alls?
Ruglaðir Íslendingar
Ef samansafn mestu listamanna
og frjálslyndra hugsuða mann-
kynssögunnar yrði vitni að þessari
umræðu á Íslandi þá þætti þeim
hún örugglega umtalsvert miklu
fáránlegri heldur en ef þeir sæju
menn hoppandi á öðrum fæti
kringum húsin sín, með brókina
hangandi á öðrum hælnum, í
myrkri og kafaldsbyl að bjóða vel-
kominn Þorra. Það væri að minnsta
kosti hægt að hafa gaman af því.
Þær eiga nefnilega ekki alltaf
djúpar rætur hefðirnar sem
við teljum sjálfsagðar.
fundir
FUNDARHERBERGIÐ
12 MANNS
RAUÐA HERBERGIÐ
30 ― 45 MANNS
Tilvalið að enda fundi í
HAPPY HOUR á barnum
frá 16 ― 19:00
Bókanir og fyrirspurnir
bar@101hotel.is
Fyrsta íslenska trollið
Í DAG
Þórlindur
Kjartansson
S K O Ð U N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 9F Ö S T U D A G U R 2 5 . J A N Ú A R 2 0 1 9
2
5
-0
1
-2
0
1
9
0
4
:2
5
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
0
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
0
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
2
2
2
-F
D
4
0
2
2
2
2
-F
C
0
4
2
2
2
2
-F
A
C
8
2
2
2
2
-F
9
8
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
B
F
B
0
4
0
s
_
2
4
_
1
_
2
0
1
9
C
M
Y
K