Fréttablaðið - 25.01.2019, Blaðsíða 22

Fréttablaðið - 25.01.2019, Blaðsíða 22
Sólveig Gísladóttir solveig@frettabladid.is Það var einstaklega skemmtilegt að fylgja eftir fólki sem kom til okkar fyrst í opnu gönguna, var þá að reima á sig gönguskóna í fyrsta skipti og er í dag búið að ganga Hvannadalshnúk eða fara með okkur til Nepal. 6 KYNNINGARBLAÐ 2 5 . JA N ÚA R 2 0 1 9 F Ö S T U DAG U RMEISTARAMÁNUÐUR Göngur í góðum hópi eru hressandi enda hægt að kynnast góðu fólki með svipuð áhugamál og fá fína líkamsrækt í leiðinni. MYND/TOMASZ ÞÓR VERUSON Göngufólk er beðið um að taka með sér höfuðljós og létta klakabrodda enda orðið dimmt á þessum tíma og oft snjór á stígum. MYND/GARPUR ELÍSABETARSON Það er frábært að byrja vikuna eins og meistari með því að fara í hressandi göngu á Úlfarsfell eftir vinnu á mánudegi,“ segir Vilborg sem tekið hefur þátt í meistaramánuði með einum eða öðrum hætti í nokkur ár. Í ár, líkt og í fyrra, mun ævintýraklúbbur- inn Tindar travel sem Vilborg stendur að með öðrum, skipu- leggja vikulegar göngur á Úlfars- fell. Göngurnar voru afskaplega vinsælar í fyrra en um 80 til 100 manns mættu í hvert sinn. „Skipulagið er þannig að við auglýsum viðburðinn á Facebook. Allir sem vilja ganga eru vel- komnir en við biðjum fólk þó um að skrá sig til að við getum áætlað fjölda leiðsögumanna sem þarf að fylgja hópnum. Síðan mætir fólk á staðinn klukkan 18 á mánudegi, vel klætt, með höfuðljós og létta klakabrodda, og þá er það fært í flestan sjó. Við göngum síðan báða toppana á Úlfarsfelli sem er skemmtilegt og hressandi,“ lýsir Vilborg. Hún segir mjög fjölbreyttan hóp hafa mætt í göngurnar í fyrra. „Þetta var allt frá fólki sem var að stíga sín fyrstu skref í fjallgöngum og upp í vana fjallgöngumenn. Fólk getur gengið á sínum hraða, þeir sem vilja fara hægar gera það og sömuleiðis þeir sem vilja ganga hratt. Við erum með leiðsögumenn fremst, aftast og í miðjunni og pössum vel upp á öryggið.“ Vilborg segist vita til þess að fólk hafi notað þessar göngur sem upp- hafið að einhverju meiru. „Sumir mættu í allar göngurnar og fóru svo í framhaldinu í aðrar göngur, bæði á eigin vegum og með okkur hjá Tindar travel. Það var einstak- lega skemmtilegt að fylgja eftir fólki sem kom til okkar fyrst í opnu gönguna, var þá að reima á sig gönguskóna í fyrsta skipti og er í dag búið að ganga Hvanna- dalshnúk eða fara með okkur til Nepal.“ Fjölskylduferð og mynda- leikur Í ár verður í fyrsta sinn boðið upp á fjölskyldugöngu í meistaramánuði. Farið verður annan sunnudag í febrúar upp úr hádegi en við- Meistaraleg byrjun á vikunni Alla mánudaga í febrúar verður boðið upp á opnar fjallgöngur á Úlfarsfell. Vilborg Arna Gissurardóttir leiðir hópinn ásamt fleirum. Einnig verður boðið upp á eina fjölskyldugöngu. burðurinn verður auglýstur nánar síðar. Einnig verður endurtekinn leikur frá í fyrra. „Við verðum með myndaleik í gangi þar sem fólk póstar myndum undir ákveðnu myllumerki. Síðan verður fólk dregið út og getur fengið alls konar verðlaun, til dæmis fatnað frá Cintamani. Aðalvinningurinn verður dreginn út í lokin en það er ferð á Fimmvörðuháls með Tindar travel,“ segir Vilborg. Hún segir leikinn hafa hafa mælst vel fyrir í fyrra. „Þetta var mjög skemmtilegt, því veðrið var oft dálítil áskorun en fólk lét það ekki á sig fá og fannst gaman að pósta myndum í rokinu,“ segir Vilborg en tekur fram að ekki sé farið af stað ef veðrið er tvísýnt. HLEÐSLA EXTRA FACEBOOK.COM/HLEDSLA ENN MEIRA PRÓTEIN 2 5 -0 1 -2 0 1 9 0 4 :2 5 F B 0 4 0 s _ P 0 2 7 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 2 2 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 1 4 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 1 9 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 2 2 3 -0 7 2 0 2 2 2 3 -0 5 E 4 2 2 2 3 -0 4 A 8 2 2 2 3 -0 3 6 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 B F B 0 4 0 s _ 2 4 _ 1 _ 2 0 1 9 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.