Fréttablaðið - 25.01.2019, Blaðsíða 24
Með þátttöku
minni í fyrra lærði
ég á eigin skinni hversu
mikilvægur svefninn er
fyrir mig. Mér leið miklu
betur og ég fann hversu
kraftmeiri og einbeittari
ég var í vinnunni.
Starri Freyr
Jónsson
starri@frettabladid.is
8 KYNNINGARBLAÐ 2 5 . JA N ÚA R 2 0 1 9 F Ö S T U DAG U RMEISTARAMÁNUÐUR
Birkir Vagn Ómarsson, 36 ára íþróttafræðingur og þjálfari, tók þátt í meistaramánuði
í fyrra í fyrsta skiptið og fannst
þátttakan nokkuð skemmtileg og
var um leið nokkuð ánægður með
árangurinn. „Ég setti mér það mark-
mið að sofna fyrr á kvöldin til þess
að fá almennilegan nætursvefn.
Starf mitt sem einkaþjálfari krefst
mikillar orku en ég þjálfa einn allt
upp í 150 manns á dag. Þess vegna,
eins og raunar alltaf, er svefninn
ótrúlega mikilvægur svo ég geti
mætt vel úthvíldur til vinnu. Ég er
Minnsta mál að finna góð og
gagnleg markmið í febrúar
„Ég setti mér það markmið að sofna fyrr á kvöldin til þess að fá almennilegan
nætursvefn,“ segir Birkir Vagn Ómarsson, íþróttafræðingur og þjálfari, sem
tók þátt í meistaramánuði í fyrra. MYND/EYÞÓR
Birkir Vagn Óm-
arsson, íþrótta-
fræðingur og
þjálfari hjá World
Class, tók þátt í
meistaramánuði í
fyrra í fyrsta sinn.
Helsta markmið
hans var að fara
fyrr í háttinn og
sofa lengur.
hrifinn af þessum meistaramánuði,
sjálfur á ég afmæli í febrúar þannig
að þetta hefur alltaf verið meistara-
mánuður hjá mér. Mér finnst þetta
mjög skemmtilegt og þarft átak, þó
svo allir mánuðir eigi auðvitað að
vera meistaramánuðir. En það er
gaman að taka fyrir einn mánuð,
gera meira úr þessu öllu saman og
breyta til hjá sér og bæta það sem
má betur fara.“
Sund og snjóbretti heilla
Birkir Vagn starfar sem þjálfari hjá
World Class í Laugardal þar sem
hann heldur m.a. úti hópþjálfun
sem heitir MGT. Einnig er hann
tveggja barna faðir en fjölskyldan
býr í Kópavogi. „Helstu áhugamál
mín eru augljóslega íþróttir og bara
allt sem tengist hreyfingu. Börnin
tvö skipa eðlilega stóran sess í lífi
mínu og það að vera með þeim er
það skemmtilegasta sem ég geri.
Það besta sem ég veit er að fara í
sund á köldum vetrarkvöldum,
renna mér á snjóbretti og svo hef ég
gaman af íslenskri tónlist.“
Sigraðist á ýmsum hindrunum
Hann segir þátttöku sína í meistara-
mánuðinum í fyrra hafa gengið
mjög vel. „Auðvitað mætti ég
ýmsum hindrunum á leiðinni. Ég
er með tvö börn og þegar þau sofna
loksins vildi ég stundum njóta smá
gæðastunda fyrir framan sjónvarp-
ið eða klára heimavinnuna. En þá
minnti meistaramánuðurinn mig
á að hætta þessu og að hunskast í
háttinn frekar.
Það komu nokkur skipti þar sem
ég hugsaði um að hætta þessu en
febrúar er stuttur mánuður þannig
að það eiga flestir að geta haldið
þessa áskorun út. Annað finnst mér
vera frekar aumt.“
Skýr lærdómur
Lærdómurinn af meistaramánuði
síðasta árs er skýr að hans sögn.
„Með þátttöku minni í fyrra lærði
ég á eigin skinni hversu mikil-
vægur svefninn er fyrir mig. Mér
leið miklu betur og ég fann hversu
kraftmeiri og einbeittari ég var
í vinnunni og reyndar líka utan
hennar. Ég mæli 100% með því að
sem flestir taki þátt en það er lítið
mál að finna heppileg og gagnleg
markmið sem henta hverjum og
einum, stór eða smá.
Mér fannst líka gott að segja
öðrum frá markmiðum mínum
þannig að það komi smá utanað-
komandi pressa. Sjálfur nýtti ég
mér Instagram til að leyfa fólki að
fylgjast með ferlinu hjá mér. Það var
líka gaman og hvetjandi að fá við-
brögð þar og hvatningu.“
2
5
-0
1
-2
0
1
9
0
4
:2
5
F
B
0
4
0
s
_
P
0
2
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
2
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
1
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
1
7
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
2
2
3
-1
A
E
0
2
2
2
3
-1
9
A
4
2
2
2
3
-1
8
6
8
2
2
2
3
-1
7
2
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
B
F
B
0
4
0
s
_
2
4
_
1
_
2
0
1
9
C
M
Y
K