Fréttablaðið - 25.01.2019, Blaðsíða 2

Fréttablaðið - 25.01.2019, Blaðsíða 2
Veður Norðaustan 3-10 og stöku él við suður- og suðvesturströndina, annars úrkomulítið. Harðnandi frost. SJÁ SÍÐU 16 Þungur róður við sorphirðu Þótt ýmsir íbúar höfuðborgarsvæðisins hafi vafalaust fagnað því að snjórinn hafi loksins látið sjá sig þennan veturinn veldur fannfergið öðrum erfiðleikum. Starfsmenn í sorphirðu eru þeirra á meðal en íbúar hafa verið hvattir til að ryðja frá sorptunnum við hús sín. FRÉTTABLAÐIÐ/EYÞÓR HEFUR ÞÚ PRÓFAÐ 30% MEIRA MAG N TILBOÐ HOLTA KJÚKLINGABOLLUR? ALÞINGI Inga Sæland, formaður Flokks fólksins, mun halda 50 pró- senta álagi á þingfararkaup þrátt fyrir að tveir af fjórum þingmönn- um flokksins hafi verið reknir úr honum. Í lögum um þingfararlaun er mælt fyrir um að alþingismenn, sem eru formenn stjórnmálaflokka sem hlot- ið hafa að minnsta kosti þrjá þing- menn kjörna og eru ekki jafnframt ráðherra, fái greitt 50 prósenta álag á þingfararkaup. Þessi aukagreiðsla nam 551 þúsund krónum hjá Ingu Sæland í nóvember síðastliðnum. Hún var þá með samtals 1.652 þús- und krónur í mánaðarlaun. Flokkur fólksins fékk eins og kunnugt er fjóra þingmenn kjörna í kosningunum haustið 2017, þar með talda Ingu Sæland, formann flokksins. Auk hennar náðu kjöri þeir Guðmundur Ingi Kristinsson, Karl Gauti Hjaltason og Ólafur Ísleifsson. Tveir þeir síðarnefndu voru reknir nauðugir úr Flokki fólksins í lok nóvember síðastliðins í uppgjöri eftir Klausturmálið svo- kallaða. Aðspurður hvort þessi fækkun á þingmönnum Flokks fólksins hafi orðið til þess að 50 prósenta álagið sem formaður flokksins nýtur sam- kvæmt fyrrnefndum lögum hafi verið tekið af henni svarar Helgi Bernódusson, skrifstofustjóri Alþingis, að greiðslurnar hafi ekki verið endurskoðaðar. „Flokkurinn var kosinn inn með fjórum mönnum og starfar sem þingflokkur í skilningi þingskapa,“ segir Helgi. Í þingskaparlögum er kveðið á um að minnst þrjá þingmenn þurfi til að mynda þingflokk. Helgi vísar hins vegar til þeirrar greinar laganna sem kveður á um að tveir þingmenn geti myndað þingflokk hafi verið til hans stofnað strax að loknum kosningum og þingmenn- irnir séu af lista sama flokks eða samtaka. Þetta á þá við um þau Ingu Sæland og Guðmund Inga. Öðru máli gildir um Ólaf og Karl Gauta sem geta ekki stofnað eigin þingflokk aðeins tveir saman. Þar til þeir voru reknir var Ólafur for- maður þingflokks Flokks fólksins. Sem slíkur fékk hann aukalega 165 þúsund króna álagsgreiðslu. Þessi upphæð hefur nú færst yfir til Guð- mundar Inga sem tekinn er við sem þingflokksformaður og þingfarar- kaup hans hefur þar með hækkað úr 1.101 þúsund krónum á mánuði í 1.266 þúsund. Laun Ólafs lækka að sama skapi. „Nei, ég man ekki eftir fordæmi,“ svarar skrifstofustjóri Alþingis aðspurður hvort fordæmi séu fyrir þeirri stöðu sem lýst var hér að framan. gar@frettabladid.is Halda formannsálagi í þingflokki í undirstærð Þótt venjulega þurfi minnst þrjá til að mynda þingflokk er Flokkur fólksins enn þingflokkur segir skrifstofustjóri Alþingis. Því heldur Inga Sæland 550 þúsunda aukagreiðslu sem formaður stjórnmálaflokks með þrjá eða fleiri kjörna á þing. Inga Sæland og Guðmundur Ingi Kristinsson er tvö eftir af fjögurra manna þing- flokki Flokks fólksins sem kjörinn var 28. október 2017. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR Flokkurinn var kosinn inn með fjórum mönnum og starfar sem þingflokkur í skilningi þingskapa. Helgi Bernódus- son, skrifstofu- stjóri Alþingis INDLAND Mjólkursalar í Tamil Nadu á Indlandi eru foxillir og hafa ítrek- að kvartað til lögreglu yfir því að mjólkurþjófnaður hefur stóraukist í aðdraganda frumsýninga á kvik- myndum í ríkinu. Við ákveðin tilefni hella hindúar mjólk yfir skurðgoð í trúarskyni. Upp á síðkastið hafa áhugamenn um kvikmyndir tekið upp á því að færa helgisiðinn yfir á sín persónu- legu átrúnaðargoð og má því iðu- lega sjá mjólkurblaut plaköt í Tamil Nadu. Samtök mjólkursala í ríkinu hafa því farið fram á við lögreglu að þetta athæfi verði bannað. Í viðtali við BBC sagði S.A. Ponnusamy, leiðtogi samtakanna, að þetta hafi viðgeng- ist í rúma tvo áratugi. „Aðdáendur um gjörvallt ríkið gera þetta því þeir líta á kvikmyndastjörnur sem ein- hvers konar hálfguði.“ – þea Ausa mjólk yfir stjörnurnar Ég get staðfest frá fyrstu hendi að þetta hefur verið gert. Kristinn Hrafnsson, ritstjóri Wikileaks BANDARÍKIN Yfirvöld í Bandaríkj- unum buðu á dögunum einstaklingi sem búsettur er hér á landi friðhelgi frá saksókn að því gefnu að viðkom- andi myndi bera vitni gegn Julian Assange, aðalritstjóra Wikileaks. „Ég get staðfest frá fyrstu hendi að þetta hefur verið gert,“ segir Kristinn Hrafnsson, rit- stjóri Wikileaks. Hann vill ekki gefa upp hvern bandarísk yfirvöld settu sig í samband við hér á landi. Ákæra hefur verið gefin út á hendur Assange, en ekki er vitað hvaða for- sendur búa að baki henni. Assange hefur síðan árið 2012 dvalið í ekvadorska sendiráðinu í Lundúnum, þar sem hann nýtur alþjóðlegrar verndar. U p p l ý s i n g a f u l l t r ú i b a n d a r í s k a s e n d i - ráðsins á Íslandi segist ekki geta tjáð sig um málið. „Vegna skorts á fjár- magni starfar s a m s k i p t a - s k r i f s t o f a okkar með takmarkaða getu,“ segir upplýsinga- fulltrúinn. – jt Friðhelgi fyrir vitnisburð Julian Assange. 2 5 . J A N Ú A R 2 0 1 9 F Ö S T U D A G U R2 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 2 5 -0 1 -2 0 1 9 0 4 :2 5 F B 0 4 0 s _ P 0 3 9 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 0 2 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 2 2 2 -E 9 8 0 2 2 2 2 -E 8 4 4 2 2 2 2 -E 7 0 8 2 2 2 2 -E 5 C C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 B F B 0 4 0 s _ 2 4 _ 1 _ 2 0 1 9 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.