Fréttablaðið - 25.01.2019, Blaðsíða 26
Mitt markmið er
að þurfa ekki að
taka nein lyfseðilsskyld
lyf og lengja um leið líf
mitt. Mér finnst ótrúlega
gaman að hreyfa mig og
ég er alltaf hressa týpan
þegar ég mæti í vinnuna.
Kristín er mjög skipulögð þegar kemur að æfingum og segist í gamni vera ófag-
lærður einkaþjálfari. „Við hjónin
erum saman í þessu og ég bý sjálf
til æfingaplanið fyrir okkur. Við
vöknum klukkan hálfsex alla
morgna og æfum lyftingar og sund
til skiptis sex daga vikunnar. Á
þriggja vikna fresti tökum við eina
viku í brennslu, sem er á við alvöru
herþjálfun,“ segir hún létt í bragði.
Rúm tuttugu ár eru frá því að
Kristín steig fyrst fæti sínum inn
á líkamsræktarstöð en þá var hún
plötuð í pallatíma. „Það þurfti
virkilega að ganga á eftir mér því ég
nennti sko ekki að hreyfa mig. En
síðan fékk ég bakteríuna og síðustu
árin hef ég hreyft mig nær daglega.
Þetta er minn lífsstíll og mér finnst
jafn sjálfsagt að stunda hreyfingu
eins og að fá mér morgunmat. Mitt
markmið er að þurfa ekki að taka
nein lyfseðilsskyld lyf og lengja
um leið líf mitt. Mér finnst ótrú-
lega gaman að hreyfa mig og ég er
alltaf hressa týpan þegar ég mæti
í vinnuna,“ segir Kristín með bros
á vör, enda er hún svo sannarlega í
besta formi lífs síns.
Litrík dagbók
Kristín heldur nákvæmt yfirlit
yfir hvað hún hreyfir sig mikið.
„Ég skrái hjá mér hvað ég geri á
hverjum degi og færi það síðan
inn í dagbók. Hver æfing hefur
sinn lit. Ég eyði töluverðum tíma
í að lita en mér finnst gott að
hafa þetta myndrænt. Þannig get
ég skoðað hvernig ég get bætt
mig eða hvers vegna ég sleppi
æfingu. Ég hef þurft að sleppa
æfingu því ég var með svo miklar
harðsperrur,“ segir hún og bætir
við að lykillinn að árangri sé að
setja sér raunhæf markmið. „Við
hjónin ætlum að hlaupa Reykja-
víkurmaraþon í ágúst á næsta ári
og strax í janúar byrjuðum við að
æfa markvisst fyrir það með því að
setja fleiri brennsluæfingar inn í
planið.“
Aðeins eru tvö ár frá því að
Kristín fór að synda reglulega en
hún þurfti um tíma að hætta að
lyfta vegna bakverkja. „Ég vildi alls
ekki hætta að hreyfa mig svo ég fór
að stunda sund. Maðurinn minn,
Ragnar Smári, hafði synt í mörg ár
en ég var ekki hrifin af því að fara
út í kuldann, hálfnakin. Ég synti
aðallega bringusund en það fer
ekki vel með bakið svo mig langaði
að læra skriðsund. Þar sem ég hafði
ekki tíma til að fara á skriðsunds-
námskeið var mér bent á að skoða
myndbönd á YouTube. Þar lærði ég
réttu sundtökin og í dag syndi ég
skriðsund, sem er það besta sem ég
geri við bakverkjum.“
Lof eða last
Kristín segir að þau hjónin hafi
tekið mataræðið í gegn og samtals
Hörkuvinna að halda sér í formi
Kristín Jónsdóttir æfir lyftingar og sund af miklum krafti, hjólar og skokkar inn á milli. Hún segir
þetta vera mikla vinnu en launin eru góð því Kristín er í besta formi lífs síns, 54 ára.
Kristín segir nauðsynlegt að skipuleggja sig vel og ekki sé verra að hafa brennandi áhuga á heilbrigðum lífsstíl. Sjálf
hefur hún aldrei verið í betra formi en nú. Hún hafði engan áhuga á líkamsrækt fyrir nokkrum árum. MYND/SIGTRYGGUR
Kristín og Ragnar telja ofan í sig hitaeiningar og á einu ári hafa þau lést sam-
tals um 30 kg. Kristín býr til matseðil fyrir heimilið langt fram í tímann.
Litríka dagbókin. Hugmyndin kom
frá Pinterest og er mjög gagnleg.
lést um 30 kg á síðasta ári. „Við
teljum bókstaflega ofan í okkur
hitaeiningarnar og notum smá-
forritið MyFitnessPal til að hjálpa
okkur við það. Við ákváðum að
hafa einhverja gulrót og hún felst
í því að ef við léttumst fáum við
verðlaun. Við köllum þetta Lof
eða last. Verðlaunin þurfa ekki að
vera sérlega merkileg en þau mega
ekki vera neitt matarkyns, heldur
eitthvað sem okkur langar í. Ég
hef t.d. fengið peysu, snyrtivörur
og pottablóm í verðlaun. Ef við
stöndum í stað á vigtinni eru engin
verðlaun en ef annað hvort okkar
þyngist þarf sá hinn sami að gera
eitthvað sem honum finnst hræði-
lega leiðinlegt. Eitt sinn var Ragnar
búinn að ákveða að ef ég þyngdist
yrði ég að þrífa bílinn að innan, en
ég gat ekki hugsað mér það svo ég
borðaði bara appelsínur dagana
fyrir vigtun,“ segir Kristín kankvís.
Ræktin er aðalumræðuefnið
Hún býr til matseðil fyrir heimilið
langt fram í tímann og eyðir tölu-
verðum tíma í að undirbúa nesti
sem hún tekur með sér í vinnuna.
„Flestir gefast upp á að passa
mataræðið en það þarf að gefa sér
tíma til að huga að því. Dæmi-
gerður dagur hjá mér er þannig að
ég fæ mér AB-mjólk með ferskum
berjum í morgunmat og stundum
fæ ég mér Cheerios. Um tíuleytið
fæ ég mér appelsínu og í hádeginu
borða ég oft salat með kjúklingi
eða fiski. Hjá mér eru engar öfgar,
ég borða oft og fremur lítið í einu.
Ég borða ekki mikið unninn mat
og les alltaf á umbúðir matvæla,“
segir Kristín og bætir við að
stundum fái hún hálfgert sjokk
þegar hún sjái hversu hitaeininga-
ríkur matur getur verið, t.d. pasta
og hrísgrjón. Hún segir að aðalum-
ræðuefnið á heimilinu sé ræktin
og það sé gaman fyrir þau hjónin
að vera saman í þessu. „Ég les mér
mikið til og við hjónin erum alltaf
hress. Við finnum líka mikinn
mun á okkur andlega. Þetta er
rosaleg vinna, það er því mikil-
vægt að skipuleggja sig vel og hafa
brennandi áhuga á heilbrigðum
lífsstíl.“Askalind 3 • 201 Kópavogur • Sími: 562 1500 • friform.is
Opið:
Mán. - fim. kl. 09 til 18
Föstudaga kl. 09 til 17
Laugardagar kl. 11 til 15
styrkur - ending - gæði
í öll herbergi heimilisins
hágæða DansKar innrÉTTingar
ÞvOTTahúsinnrÉTTingar
elDhúsinnrÉTTingar
baðherbergisinnrÉTTingar
FaTasKápar & rennihurðir
við gerum ÞÉr
hagsTæTT TilbOð
í innrÉTTingar,
raFTæKi, vasKa Og
blönDunarTæKi
vasKar & blönDunarTæKi
speglar
vasKar & blönDunarTæKi
hillur Og FylgihluTir
vasKar & blönDunarTæKi
raFTæKi
raFTæKi
6 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 2 5 . JA N ÚA R 2 0 1 9 F Ö S T U DAG U R
2
5
-0
1
-2
0
1
9
0
4
:2
5
F
B
0
4
0
s
_
P
0
2
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
2
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
1
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
1
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
2
2
3
-1
5
F
0
2
2
2
3
-1
4
B
4
2
2
2
3
-1
3
7
8
2
2
2
3
-1
2
3
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
A
F
B
0
4
0
s
_
2
4
_
1
_
2
0
1
9
C
M
Y
K