Stjarnan - 01.10.1930, Side 12
STJARNAN
156
orÖiS fyrir vonbrigÖum, er þeir hafa kall-
að til hans um hjálp.
4. Vita menn hvaðar teffund af engi-
sprettum og skógarhunangi það var, sem
Jóhannes skírari borðaði? Mark. 1:6.
VersiÖ hljóðar þannig: “En Jóhannes
var í klæðum af úlfaldahári og girtur leð-
urbelti um lendar sér, og át engisprettur
og villihunang.” Jóhannes gekk fram í
anda og krafti Elíasar spámanns. Undir
handleiðslu GuSs Anda var hann verk-
færið, sem Guð notaði til að sýna tízku-
þrælum á þeim dögum hversu viðbjóðs-
legt það er í augum Drottins að dubba sig
upp á óeðlilegan hátt, því að alt sem ó-
eölilegt er í fari manna leiðir þá út á
braut hræsninnar, og víða í guðspjöllun-
um uppkveður Kristur harðan dóm yfir
hræsnurum.
•Er það nú rétt að sá, sem af Kristi er
talinn mestur í þessum heimi af þeim, sem
af konum eru fæddir, skyldi nærast á
engisprettum ? Á latínu heitir engispretta
“locusta,” en það er einnig fallegur belg-
ávöxtur, sem á latínu heitir “locusta”. Á
ensku er þessi belgávöxtur nefndur “John
the Baptist Bread” fbrauð Jöhannesar
skírara) og má kaupa það hvar sem er í
stórbúðum. Hefir ritstjóri Stjörnunnar
etið margt pundið af brauði Jóhannesar
skírara á ferðum sínum. f mörgum lönd-
um er mjög mikið af villihunagi og sjá-
um vér á mörgum stöðum í Ritningunni,
að það var alment að eta það á Gyðinga-
landi, sem í fyrndinni flóði í mjólk og
hunangi. Bæði Samson og Jónatan átu
þaö, því að það er eins holt og bragðgott
og hunangið frá ræktuðum bíflugum.
Hreinlegasta skepnan, sem vér þekkjum,
er bíflugan. Jafnvel þótt rok þyrli ryki
upp í geiminn, þangað til að loftið er orð-
ið svart, sést aldrei rykkorn inni í bí-
flugnabúi.
5. Er Jóhannes skírari nefndur engill?
Mark. 1 -.2-4.
Versin eru á þessa leið: “Svo sem ritað
er hjá Jesaja spámanni:—Sjá, eg sendi
sendiboða minn [engil í eldri þýðingunni]
á undan þér, er búa mun þér veg. Rödd
manns, er hrópar í óbygðinni: Greiðið veg
Drottins og gjörið beinar brautir hans;—
kom Jóhannes skírari fram í óbygðinni og
prédikaði iðrunarskírn til syndafyrir-
gefningar.”
Orðið “engill” kemur frá griska orð-
inu angelos, sem þýðir sá sem sendur er
með boðskap, hvort sem það er jarðnesk
eða himnesk vera. Eldri þýðingin notar
orðið “engill,” en nýja þýðingin “sendi-
boði.” Hvorttveggja er rétt einungis að
maður skilur merkingu orðanna. Jó-
hannes var sem sé sendur á undan Kristi
með ákveðinn boðskap, til að greiða
Frelsaranum götu og undirbúa jarðveg-
inn fyrir boðskap Jesú. Stundum er orð-
ið “engill” notað um heímsvíða hreyfingu,
eins og til dæmis í Opinb. 14:6-14. Þar
er orðið “engill” notað um þá miklu
hreyfingu, sem boðar endurkomu Krists,
dómsstundina, fall kirkjudómsins, og við-
vörun við því að fylgja honum.
Dásemdaverk Drottins
('Niðurl. frá bls. 148)
áríðandi, þegar hann ljóslega bendir á
hvers vegna Jesús kom í heiminn: “Því
að Manns-Sonurinn er kominn til að leita
að hinu týnda og frelsa það.” Eúk. 19:10.
Jesús staðfestir þetta ennfremur er
hann segir: ‘Ekki þurfa heilbrigðir
læknis við, heldur þeir sem sjúkir eru;
eg er eigi kominn til a, kalla réttláta,
heldur syndara.” Mark. 2:17.
Stærsta bifreiðageymsluhús í Norður-
álfunni er í Svíþjóð. Þessi bygging var
nýlega smíðuð í Stockhólmi. Flatarmál
hennar er 340,000,000 ferhyrningsfet.
Hún rúmar fimtán hundruð bíla og hefir
auk þess verkstæði, skrifstofur, gasolíu
stöðvar. Á efsta lofti er sýningar salur,
sem á að nota fyrir bíla og iönaðarsýn-
mgar.