Stjarnan - 01.03.1932, Blaðsíða 4
36
STJÁRNAN
og hann svarar þeim og segir: . . . . Hver
sem gjörir vilja Guös, sá er bróðir minn
og systir og móÖir.” Mark. 3 :32-35-
Jesús hafði mikinn áhuga fyrir vilja
föðursins. Því fór svo fjarri að hann
hefði komið til að afnema Guðs vilja eða
lögmál hans, þvert á móti, hann kom til
að halda því á lofti. Jesajas spámaður
segir um hann: “Fyrir sakir réttlætis síns
hefir Drotni þóknast að gjöra kenninguna
háleita og vegsamlega.” Jes. 42:21. Líf
hans var ljós mannanna í fullu samræmi
við lögmál Guðs, hann sýndi þannig að
syndin hefir enga afsökun, hann fyrir-
dæmdi syndina. Farísearnir og hinir
skriftlærðu ásökuðu hann unr margt, en
hann gat öruggur sagt við þá: “Hver
yðar getur sannað á mig synd?” Jóh. 8:4Ö.
Enginn gat bent á neitt rangt í fari hans.
Fyrir rnunn sálmaskáldsins segir Jesús
um sjálfan sig: “Sjá eg kem, i bókroll-
unni eru mér reglur settar, að gjöra vilja
þinn Guð minn er mér yndi, og lögmál
þitt er hið innra í mér.” Sálm. 40 :J. 8.
Jesús geymdi Guðs orð í hjarta sínu svo
hann syndgaði ekki. Hann kom ekki tij
að afnema lögmálið, heldur til að full-
komna það í lífi sínu og þannig eftirlét
hann oss fyrirmynd til að breyta eftir. 1.
Pét. 2:2i.
Heimurinn liggur í hinu vonda. Hann
hefir vikið burtu frá Guöi og fylgir nú
sínum eigin vilja i stað Guðs vilja, en Páll
postuli áminnir oss: “Hegðið yður eigi
eftir öld þessari, heldur takið háttaskift-
um með endurnýjung hugarfarsins, svo
að þér fáið að reyna hver sé vilji Guðs,
hið góða, fagra og fullkomna.” Róm.
12:2.
Samt sem áður er það ekki nóg að vita
og skilja vilja Guðs, vér verðurn að
fylgja honum og framkvæma hann. Ann-
ar postuli kemst svo að orði: “Eins og því
Kristur leið i holdinu, svo skuluð þér og
herklæðast sama hugarfari . . . . til þess
að þér ekki framar lifið tímann, sem eftir
er í holdinu fyrir fýsnir manna, heldur
fyrir vilja Guðs, því að það es; nóg að
hafa tímann sem liðinn er gjört vilja heið-
ingjanna og lifað í saurlifnaði, girndum,
ofdrykkju, óhófi, samdrykkjiun og sví-
virðilegri skurðgoðadýrkun.” 1. Pét.
4:1-3. “Því að hyggja holdsins er fjand-
skapur gegn Guði, með því að hún lýtur
ekki lögmáli Guðs, enda getur hún það
ekki, en þeir, sem eru holdsins menn
geta ekki þóknast Guði.” Róm. 8 :ý, 8.
Einungis með því að gjöra Guðs vilja
af hjarta getum vér þóknast Guði. En
enginn nema Jesús getur breytt hjörtum
vorum, svo að vér fáum löngun til þess.
Þetta verður aðeins á þann hátt aö vér
leyfum hans anda að hafa áhrif á oss, og
vér gefum oss með lifi og sálu á hans
vald. “Þvi eins og þér hafið framboðið
limi yðar óhreinleikanum og ranglætinu
fyrir þjóna til ranglætis, svo skuluð þér
nú frambjóða limi yðar réttlætinu fyrir
þjóna til helgunar.” Róm. 6:19. Þvi að
það er vilji Guðs að þér verðið heilagir.”
1. Þess. 4:3.
Hvað mun Drottinn gjöra fyrir oss
þegar vér þannig gefum oss honum á
vald ? Heyrum hvað hann segir: “Og
eg mun gefa yöur nýtt hjarta og leggja
yður nýjan anda í brjóst, og eg mun taka
steinhjartað úr líkama yðar og gefa yður
hjarta af holdi, og eg mun leggja yður
anda minn í brjóst og koma því til vegar
að þér hlýðið boðorðum mínum og varð-
veitið setningar mínar, og breytið eftir
þeim.” Ez. 36:26,27; Jer. 33:34; Hebr.
10:15-18. Hann mun rita lögmál sitt í
hjörtu vor og gefa oss bæði viljann og
máttinn til að breyta eftir því. Lögmálið
sýnir hvað er rétt en gefur ekki kraft til
að framkvæma verk réttlætisins. Það er
Guðs heilagi andi sem gefur oss kraftinn
til að gjöra það sem Guði er þóknanlegt.
Lögmálið er heilagt, réttlátt og gott, en
vér erum holdlegir seldir undir synd.
“Það sem lögmálinu var ómögulegt, að
því leyti sem það mátti sín einskis fyrir
holdinu, það gjörði Guð, er hann, með
því að senda sinn eigin son í líkingu synd-
ugs holds og vegna syndarinnar, for-