Stjarnan - 01.03.1932, Blaðsíða 15
STJARNAN
47
Sumarfríið
“ViS getum ekkert ferÖast í sumar,
elskan mín,” sagði Mrs Bird, þegar litla
Betty dóttir hennar spurði hana hvenær
J?ær myndu fara af stað í sumarfríið.
“Og hvers vegna ekki,” spurði Betty
með tárin í augunum, “við erum alt af
vanar að fara eitthvað á hverju sumri?”
“Já, J>að er einmitt orsökin. Við för-
um alt af okkur til skemtunar, en það eru
svo margir sem aldrei geta farið neitt. Ef
við óskum eftir að hafa það reglulega
skemtilegt í sumar, þá getum við alveg
eins haft það hér undir eikartrénu okkar.
Eg er að hugsa um nokkuð, sem mun
gefa okkur meiri skemtun í sumar heldur
en við höfum nokkurn tíma áður haft,
það getur líka orðið öörum til gagns og
ánægju um leið.”
“Mamma, hvað er það?” spurði Betty
með ákefð.
“Þegar eg var lítil telpa þá átti eg vin-
stúlku, hún var á aldur við mig. Við
gengurn saman á skólann, skiftum matn-
um okkar hvor með annari, lékum saman
og skemtum okkur ágætlega. Foreldrar
hennar voru vel efnuð en mínir voru fá-
tækir, en við hugsuðum ekkert um það.
Þegar eg var átta ára gömul sagði
pabbi að við skyldum flytja í annað hérað.
Við skrifuðumst á í mörg ár. Þegar við
vorum orðnar fullorðnar giftumst við
báðar, og eignuðumst sína dótturina hvor.
Hún misti bæði manninn sinn og foreldr-
ana, lengi vissi eg ekki hvað af henni
varð. Vikuna sem leið frétti eg að hún
véri hér í bænum með Mabel, litlu stúlk-
una sína, svo eg fór að heimsækja hana.
H3ún er föl og veikluleg.”
“Ó, mamma, var það ekki skrítið að
sjá hana fullorðna?”
“Og það besta af þvi öllu er að Mabel
kernur hingað til að vera hjá okkur í
sumar, en mamma hennar fer út á land
sér til heilsubótar.”
“Ó, það verður þó gaman,” svaraði
Betty frá sér numin af gleði. “Nú er
STJARNAN
kemur út mánaðarlega
Útgefendur: The Western Canadian
Union Conference S.D.A. Stjarnan kost-
ar $1.50 um árið I Canada, Bandaríkj-
unum og á Islandi. (Borgist fyrirfram).
Ritstjóri og ráðsmaður:
DAVÍÐ GUÐBKANDSSON.
Skrifstofa:
306 Sherbrooke St., Winnipeg, Man.
Phone: 31 708
mér sama þó við förum ekkert í sumar
fyrst eg fæ vinstúlku til að leika mér
við.”
Betty varð glaðari en orð fá’lýst þeg-
ar móðir hennar sagði henni aS þær mættu
báðar sofa úti á veggsvölunum, og að
frændi ætlaði að smíða dálítið hús fyrir
þær úti undir eikartrénu, þar sem þær
gætu leikið sér, þær gætu haft þar brúð-
urnar sínar og bækurnar, einnig lítið borð
og stóla til að borða þar kvöldmatinn
þegar þær hefðu vinstúlkur sínar í heim-
sókn.
, Sumarið leið alt of fljótt fyrir litlu
stúlkurnar, þær sögðust aldrei hafa haft
skemtilegra skólafri. Og það besta af
öllu var að móðir Mabels komst aftur til
góðrar heilsu.
Rauða kross félagið útbýtti 10,000
pökkum af fræi meðal bænda í héruð-
um þeim, sem mest höfðu liðið vegna of-
þurka vorið 1931. í hverjum pakka voru
14-18 tegundir af fræi, sem kostaði frá
3-4 dollara.
Mrs. Hbover keypti 40 pör af kerta-
stikum í vetur, fyrir 80 dollara, til að
gefa í jólagjafir. Sjúklingar á Walter
Reed spítalanum höfðu búið þá til, en
lögregludeildin í Washington hafði lagt
til efnið, það var kopar, sem þeir tóku
frá ólöglegum ölgerðarhúsum.