Stjarnan - 01.03.1932, Blaðsíða 8

Stjarnan - 01.03.1932, Blaðsíða 8
40 STJARNAN ásamt fjölskyldum þeirra, og svo sem 20 útlagar. Okkur var sagt í Narym, að eini út- laginn sem við gætum haft félagsskap við á Kolguyak væri Austuriskur stríðsfangi. Hann hafði heyrt af okkur og heilsaði okkur mjög vingjarnlega þegar við kom- um. Aðrir útlagar vortt einnig ntjög vin- gjarnlegir og buðu oss hjálp. En vér þektum suma þeirra, höfðum verið sarnan með þeim í fangelsi áður og vissum að þeirn var ekki að trevsta. Það var líka hægra að forðast félagsskap þeirra strax, heldur en aS slíta sig frá þeim seinna. Við afþökkuðum því aðstoð þeirra með öllu, en einn þeirra ællaði ekki að láta vísa sér á bug, hann greip nokkuð af fam angrinum, og fór með okkur til að leita uppi gistihús. Við heimsóttum efnaðasta manninn á eyjunni, hann var kaupmaður. Hann hýsti aldrei útlaga, en vinur okkar, stríðsfanginn, og hinn útlaginn, sem bar farangur okkar, fullvissuðu hann um að það væri hættulaust fvrir hann að ljá oss húsnæði. því vér værum engir glæpa- menn. Fyrir meðmæli þeirra vorum við svo heppnir að fá húsnæði hjá þessari f jölskyldu. Kolguyak er eyðilegt pláss, ekki svo mjög vegna náttúrunnar eða fjarlægðar frá mannabygðum, heldur vegna inn- byggjenda þess, sem flestir eru glæpa- rnenn eða hálfviltir Ostyaks. Hinir fáu Rússar þar, eru samt sem áður ekki eins óupplýstir eins og ætla mætti. Þeir eru jafnvel fróðari en margir landar þeirra í sjálfu Rússlandi. Hvað trúarbrögð snerti þá höfðum vér meira frelsi hér en í Alatayevo. Sóknar- presturinn átti heima í þorpi 20 mílur í burtu, og kom hann mjög sjaldan til Kol- guyak. Þegar hann kom var það aðeins til að fá sér áfengan drykk sem konurn- ar á eynni bjuggu til, jafnvel þó ölgerð hefði verið bönnuð í byrjun stríðsins. Einu sinni meðan vér dvöldum þar kom prestur þessi, og er hann sté á land hvíslaði hann einhverju að manni, sem hjá stóð, þessi flýtti sér af stað til að út- rétta erindi prestsins, en er honum dvald- ist varð prestur mjög órólegur, því bát- urinn átti aðeins að standa við stutta stund. Rétt í því bili, sem báturinn fór að hreifa sig til brottferðar kom sendimað- urinn aftur. Hann kastaði ákaflega stórri flösku til prestsins, hann greip hana á lofti, en tappinn flaug úr henni svo nokk- uð af þvi, sem í henni var, spýttist upp í andlit og skegg prestsins, þrátt fyrir þetta sýndist hann vel ánægður með árangur- inn af ferð sinni. Húsbóndi okkar bæði drakk og spilaði, en allir voru mjög vingjarnlegir við okkur. Það voru aðeins tvö herbergi i húsinu, þar bjó Gorelic og eg, húsbændur okkar, systir húsmóðurinnar og maður hennar. Þjófarnir reyndu ennþá að endurnýja kunningsskapinn við okkur, en fyrri tíma reynsla fullvissaði okkur um, að tilgang- ur þeirra var að fá aðgang að húsinu svo þeir gætu rænt. Hefðum við haft félags- skap við þá, hefði afleiðingin orðið sú, að við yrðum að flytja burt af heimilinu, en í stað þess unnum vér fullkomið traust og hylli húsbóndans. Þegar veður var hagstætt þá sváfum við úti. Eina nótt þegar við sváfum inni í húsinu brutust þjófar inn í húðina, og stálu því litla af peningum sem þar var. Kaupmaðurinn inti aldrei að því að hann grunaði okkur um nokkra hluttöku í þjófnaðinum, enda hefði það verið ó- mögulegt, því við hefðum ekki komist út úr herberginu án þess að stíga vfir hús- bóndann þar sem hann lá á gólfinu. Hér eins og í Alatayevo voru þau ó- sköp af smáflugum, að þær stundum myrkvuðu dagsbirtuna. Það var ekki hættulaust að fara út úr þorpinu án þess að hafa vörn gegn pest þessari. Það var ekki eins mikið af þeim rétt í kring um húsin.

x

Stjarnan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Stjarnan
https://timarit.is/publication/1304

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.