Stjarnan - 01.03.1932, Blaðsíða 10

Stjarnan - 01.03.1932, Blaðsíða 10
42 STJARNAN hefir haft nógu langan tíma, 2500 ár til a8 koma fram. Eg sé ekkert yfirnáttúr- legt í því.” Þegar hr. Einarsson settist niður létu menn í ljósi velþóknun sína meÖ lófa- klappi. Lilja strauk hönd föSur síns, GuÖ- mundur hneigði höfuðið til samþykkis. ‘‘Eg var að vonast eftir, Hr. Einarsson að þú mundir koma með einhverjar slíkar röksemdir,” sagði hr. Djarfur, eftir að lófaklappinu linti. “Framsetning þín sýnir að þú kannast við að spádómurinn sé uppfyltur, að þú hvorki álítur að hann hafi verið gefinn eftir að viðburðirnir áttu sér stað, eða að viðburðirnir hafi verið teygðir og snúnir, til þess þeim bæri sarnan við spádóminn. “Það er eftirtektavert, að þegar upp- fylling spádómsins á sér stað stuttu eftir að hann er gefinn, þá er strax komið með þá mótbáru, að spádómurinn hljóti að hafa verið skrifaður seinna heldur en skýrt er frá, eða ef til vill eftir að við- burðirnir áttu sér stað. En ef spádómur- inn er fyrst uppfyltur eftir 2000 ár, þá er því haldið fram að hvaða spádómur sem væri, yrði að líkindum uppfyltur ef nógu langur tími væri gefinn. “En til allrar ólukku fyrir þessar skýr- ingar, þá hafa spádómar þegar verið nefndir, og eg skal benda á fleiri, sem ekki verða skýrðir á þenna hátt—” “Getur þú gefið nokkuð óhrekjandi dæmi?” greip hr. Einarsson fram í. “Memphis, borgin, sem vér þegar höf- um minst á, er gott dæmi, því tíminn hefir ekki eyðilagt sknrðgoð og líkneski annara borga Egyptalands, sem eru pó eins gaml- ar. HlustiS nú á þessi orð Amelíu B. Edwards í bók hennar “1000 mílur upp með ánni Níl,” bls. 97-99: “Þetta er alt, sem eftir er af Memphis, elztu borginni, fáeinir ruslahaugar, um 12 brotnar mvndastyttur og nafnið........Hvar eru tiirnarlegu rústirnar, sem jafnvel á mið- öldunum voru svo víðáttumiklar að menn álitu þær vera hálfa dagleið í allar áttir frá miðju rústanna. Það er varla hægt að trúa því að stórborg hafi nokkurn tíma staðið hér í blóma, eða skilja hvernig hún hefir orðið svo algjörlega afmáð.” “En gjörum nú ráð fyrir, að alt sem þurfti í þessu atriði væri nóg tímalengd til þess að spádómurinn yrði uppfyltur, en svo skulum vér athuga Ez. 30:12. Eg mun .... selja Egyptaland í hendur ill- menna.” Þetta bendir á að þeir muni komast í óvina hendur, eins og þegar þrælar eru seldir. Þrællinn hefir engin réttindi, illmennið sýnir enga miskunn. “Volney, franskur vantrúarmaður, sem ferðaðist þvers og langs yfir Egyptaland, kallar það land þrældóms og harðstjórn- ar. Malta-Brun, annar ferðamaður skrif- ar um harðstjórn þeirra, sem völdin hafa á Egyptalandi. Saga Egyptalands þessi síðastliðnu 1800 ár er undraverð skýring á þessum orðum: “Eg mun .... selja Egvptaland í hendur illmenna.” Það má hvarvetna þar sjá merki þess hvað landsmenn hafa orðið að líða.” “Það er óhætt að segja fyrir að vondir menn yrðu stjórnendur landsins,” greip Einarsson fram í, “því flestir sem ríkj- um réðu í fyrndinni, sérstaklega sigur- vegararnir voru vondir menn.” “Það er satt,” svaraði hr. Djarfur, “það gleður mig að þú kannast við upp- fyllingu spádómsins, hver sem skýring þín annars er, en taktu nú eftir öðrum spádómi, sem stendur í sama versi: “Eg mun . . . . láta útlenda menn eyða landið og öllu sem í því er. “Ekki eitt einasta skifti öll þessi 2500 ár, hefir Egyptaland verið undir stjórn innlendra höfðingja, heldur alt af, undan- tekningarlaust verið undirgefið og háð stjórn útlendinga, Persa, Grikkja, Róm- verja, Saracena, Tyrkja, Frakka og Eng- lendinga nú upp á síðkastið. Útlending- ar, alt af útlendingar, hafa stjórnað þar eins og fyrir var spáð. “Þetta er spádómur, sem meiri líkindi væru til að tímalengdin mundi kollvarpa, heldur en uppfylla, því aðrar þjóðir hafa

x

Stjarnan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Stjarnan
https://timarit.is/publication/1304

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.