Stjarnan - 01.07.1932, Qupperneq 1

Stjarnan - 01.07.1932, Qupperneq 1
STJARNAN <r^ Hvenær verður betra í þessum heimi? Þegar fólk gengur oftar í kirkju og sjaldnar í leik- húsin. Þegar menn munu kæra sig minna um hiÖ opinbera og meira um f jölskylduna. Þegar eiginkonur vildu hugsa: Heimurinn minn er heimili mitt, þar á eg heima. Þegar sérhver maÖur hefir uppgötvaÖ: Konan mín er hin bezta; og hver kona: það er einn góður maður og hann er minn. Þegar börn fara að sýna hinum eldri hlýðni og lotn- ingu. Þegar lítillæti, einfalt líf, hæverska, sparsemi og regla komast aftur í heiðurssætið. Þegar menn 'takmarka skemtanir sínar í mesta máta. Þegar menn ganga meira í staðinn fyrir að nota flutningstæki, og stýra sporum sínum út í fegurö nátt- úrunnar. Þegar menn nota Biblíuna og sálmabókina oftar en spilin. Þegar maður skoðar áfengi og nikotín ekki sem vini heldur sem arga óvini. Þegar menn munu sníða útsvörin eftir tekjunum. Þegar sérhver vildi daglega taka dálitla stund til að vera einn með Guði. Þegar maður fer að skoða hvern mann sem bróður sinn. Frá “Pilger aus Sachsen.’’ JÚU, 1932 WINNIPEG, MAN. Verð i5c

x

Stjarnan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stjarnan
https://timarit.is/publication/1304

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.