Fréttablaðið - 07.02.2019, Page 12

Fréttablaðið - 07.02.2019, Page 12
T il stendur að banna burðarpoka úr plasti hér á landi. Guð-mundur Ingi Guð-brandsson, umhverfis- og auðlinda ráðherra, mælti í síðustu viku fyrir frum- varpi til laga um breytingu á lögum um mengunarvarnir sem varðar notkun burðarpoka en samkvæmt því verður frá og með 1. júlí 2019 óheimilt að afhenda alla burðar- poka, þar með talið burðarpoka úr plasti, án endurgjalds á sölustöðum vara og skal gjaldið vera sýnilegt á kassakvittun. Frá og með 1. janúar 2021 verður síðan óheimilt fyrir verslanir að afhenda burðarpoka úr plasti. Ekki skiptir máli hvort það er með eða án gjalds. Bannið á sem sé einungis við um plastpoka og ekki burðarpoka úr öðrum efnum. Burðarpokar úr plasti eru bæði þykku pokarnir sem hægt hefur verið að fá eða kaupa í stykkjatali á afgreiðslukössum verslana og þunnu pokarnir sem til dæmis hefur verið hægt að fá endurgjaldslaust í grænmetiskælum matvörubúða. Bannið tekur ekki til plastpoka sem eru söluvara í hillum í versl- unum, svo sem nestispoka og rusla- poka sem seldir eru margir saman í rúllum. Mun bann við burðarplastpok- um leysa plastvanda heimsins? „Banninu við burðarplastpokum er ekki ætlað að vera allsherjarlausn á plastvandanum, heldur ein aðgerð af mörgum. Mikilvægt er að horfa á stóru myndina og takast á við verk- efnið með margvíslegum lausnum. Burðarplastpokar hafa þegar verið bannaðir í fjölda ríkja og brýnt að minnka það magn plastpoka sem er í umferð. Um leið verðum við að horfa til dæmis á plastumbúðir og allt það magn af einnota plasti sem við höfum vanið okkur á að nota. Ég vil taka þessi mál föstum tökum,“ segir Guðmundur Ingi. „Samráðsvettvangur um aðgerðir í plastmálefnum skilaði mér í nóv- ember síðastliðnum 18 tillögum til að takast á við plastmengun. Þær eru afar fjölbreyttar. Á vett- vangi Evrópusambandsins er síðan umfangsmikil vinna í gangi varð- andi plastmengun og gert ráð fyrir að nú í vor verði ný tilskipun sam- þykkt þar sem aðildarríkjum verður m.a. gert skylt að draga úr notkun matarumbúða og drykkjarbolla úr plasti, merkja skuli dömubindi, blautþurrkur og blöðrur til að upp- lýsa um að varan sé úr plasti og hafi neikvæð umhverfisáhrif og ábyrgð sett á framleiðendur tiltekinna vara að sjá um meðhöndlun úrgangs Bann við plastpokum liður í stærri aðgerð Frumvarp um bann á burðarplastpokum hefur verið kynnt. Viðskiptavinir mat- vöruverslana þurfa að finna nýjar leiðir til að bera vörur sínar heim. Skref í átt að minnkun notkunar á einnota plasti hér á landi, enda eflaust kominn tími til. sem af þeim verður. Tilskipunin verður innleidd hér á landi, sam- hliða því sem unnið verður úr öðrum tillögum sem ég fékk afhentar. Margt er þann- ig í kortunum, enda margvíslegra aðgerða þörf.“ Plast er efni sem unnið er úr olíu og nánast ómögu- legt fyrir efnið að eyðast nátt- úrulega. Það er því hentugt til ýmissa nota og iðulega notað sem einnota efni. Gallinn er sá að einnota plast er ekki ein- nota, þó það sé oft notað aðeins einu sinni. Plast getur enst í tugi, jafnvel hundruð ára sem úrgangur. Plast hverfur ekki eða eyðist við náttúrulegt niður- brot heldur brotnar það í smærri einingar og verður á endanum að örplasti. Venjulegur burðarplast- poki sem fæst meðal annars í mat- vöruverslunum tekur um 1.000 ár að brotna niður og eru um tvær milljónir slíkra poka notaðir á hverri mínútu í heiminum. Talið er að hver plastpoki sé notaður að meðaltali í um 12 mínútur. Örplast- ið sem brotnar niður fer svo út í umhverfið og inn í hringrás lífsins. „Eitt af því sem samráðsvett- vangur um aðgerðaáætlun í plastmálefnum lagði til er að hreinlætis- vörur sem innihalda Gunnþórunn Jónsdóttir gunnthorunn@frettabladid.is ✿ Hlynnt/ur eða andvíg/ur banni við einnota plast- pokum í verslunum? 9% 12% 21% 4 1% 17% 2/3 Nærri tveir af hverjum þremur Íslendingum hlynntir banni við einnota plastpokum í verslunum. örplast verði bannaðar. Örplast er að finna í ýmsum vörum eins og sápu, sturtusápu, andlits- og líkams- skrúbbum og tannkremi, og endar því iðulega í niðurföllum, vöskum og sturtubotnum þaðan sem það á greiða leið út í haf. Í fyrra tók í gildi bann í Bretlandi við framleiðslu og sölu hreinlætis- og snyrtivara sem innihalda örplast. Samráðsvett- vangurinn lagði til að frá og með næsta ári yrði bannað að flytja inn og framleiða hreinlætis- og snyrti- vörur sem innihalda örplast hér á landi. Þetta mál er nú til skoðunar og hvernig hægt væri að útfæra þetta.“ Örplast fannst í manns líkömum Óttast hefur verið að örplast rati í líkama manna. Nýlega var í fyrsta skipti rannsakað hvort örplast væri að finna í saursýnum fólks. Rann- sóknin var unnin af Umhverfis- stofnun í Austurríki og tóku átta manneskjur þátt frá Evrópu, Japan og Rússlandi. Örplast fannst í saur- sýnum þeirra allra. Vísindamenn drógu þá ályktun að örplast mætti því finna í saur helmingi mann- kyns en þó þyrfti að staðfesta það með stærri rannsókn. Enn er lítið vitað um áhrif örplasts á bæði manninn og umhverfið en á Íslandi hefur einnig fund- ist örplast í neysluvatni. „Örplast í drykkjar- vatni er áhyggjuefni og sýnir okkur í raun umfang þess sem við er að etja. Daglegt líf okkar er fullt af plasti og mikið af því endar úti í nátt- ú r u n n i m e ð ófyrirsjáanleg- um afleiðingum. Það eyðist ekki og hverfur ekki heldur brotnar bara niður í smærri hluta og verður að endingu að örplasti. Sem líffræðingur hef ég áhyggjur af því hver áhrif þessa á lífríkið verða til lengri tíma litið, bæði á okkur mennina og aðrar lífverur. Við þekkjum þessi áhrif í raun ekki enn,“ segir Guðmundur Ingi. „Mér þótti sláandi að heyra fréttina um búrhvalinn sem fannst dauður í Indónesíu í lok síðasta árs og var með 6 kg af plasti í maganum. Í maganum á honum fundust m.a. tvö pör af sandölum úr plasti, 25 plastpokar og 115 einnota plast- bollar, alls yfir 1.000 plasthlutir. Það góða er að fólk, fyrirtæki og ríki heims eru að ranka við sér.“ Örplast hefur enn ekki fundist í blóðrás mannsins, en ætli það sé aðeins tímaspursmál? Plastnotkun er óheyrilega mikil í heiminum í dag og er notkunin svo samofin okkar hversdagslega lífi að erfitt getur verið fyrir marga að takmarka plast eða minnka notkun þess. Talið er að á hverri mínútu séu um milljón einnota plastflöskur notaðar í heim- inum. Gert er ráð fyrir um 21 pró- sents aukningu fyrir árið 2021. Plastmengun er forgangsmál „Hvað plastflöskurnar varðar þá skila þær sér almennt vel til endur- vinnslu. Hlutfallið hefur verið um 85-90%. Við viljum þó að sjálfsögðu sjá töluna enn hærri og mikilvægt er að róa öllum árum að því að svo verði. Síðan er stór spurning hvort við þurfum yfirhöfuð allar þessar flöskur til að byrja með. Ein leið okkar í umhverfis- og auðlindaráðu- neytinu til að nálgast þetta hefur verið með samstarfssamningi við Umhverfisstofnun um verkefnið „Hreint vatn í krana“. Því er ætlað að fræða ferðamenn um að vatn á Íslandi sé nánast alls staðar hreint og öruggt til neyslu og óþarfi sé að kaupa hér vatn í einnota umbúðum. Af notkun og flutningi plastflaskna hljótist óþarfa loftslagsáhrif og önnur neikvæð umhverfisáhrif,“ segir Guðmundur Ingi. „En, við stefnum hiklaust hærra. Eitt af forgangsmálum mínum sem umhverfis- og auðlindaráðherra er að takast á við plastmengun, neyslu og sóun. Allt tengist þetta saman og þessi ósjálfbæra neysla er á endan- um loftslagsmál. Það er frábært að verða vitni að þeirri miklu vitundar- vakningu sem orðið hefur um þessi mál og það fyllir mig bjartsýni. Í ráðuneytinu er mikil vinna í gangi varðandi þessi mál og plastpoka- bannið er einungis ein aðgerð af mörgum. Almennt varðandi plastið er ágætt að hafa í huga að plast er í of stórum stíl einnota, þ.e.a.s. hent eftir eina notkun. Þetta eru matar- umbúðir sem enduðu beint í tunn- unni, plastbollar sem drukkið var úr í örfáar mínútur, plastpokar sem fóru einungis heim úr versluninni og enduðu síðan í ruslinu. Við þurf- um að takast á við þennan einnota hugsunarhátt og breyta honum yfir í fjölnota.“ n Frá árinu 1950 hafa verið fram- leiddir um 8,3 milljarðar tonna af plasti í heiminum og í raun hefur framleiðslan tvöfaldast á þessum tíma. n Aðeins um 9% af þessum 8,3 milljörðum tonna hafa verið endurunnin. n Sums staðar í heiminum hefur algjört bann verið lagt við notkun á plasti, t.d. í Kenýa. n Í Bandaríkjunum eru um 500 milljón rör notuð á hverjum degi. n 73% af rusli við strandlengjur heimsins eru plastdrasl svo sem flöskur, flöskutappar, sígar- ettustubbar, matarumbúðir, burðarplastpokar og fleira. n Milljón plastflöskur eru keyptar á hverri mínútu í heiminum. n Plast drepur yfir 1,1 milljón sjófugla og annarra dýra á hverju ári. Staðreyndir um plast n mjög andvíg n frekar andvíg n frekar hlynnt n mjög hlynnt n hvorki andvíg né fylgjandi En, við stefnum hiklaust hærra. Eitt af forgangsmálum mínum sem umhverfis- og auðlind- aráðherra er að takast á við plastmengun, neyslu og sóun. Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlindarráðherra TILVERAN 7 . F E B R Ú A R 2 0 1 9 F I M M T U D A G U R12 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 0 7 -0 2 -2 0 1 9 0 4 :2 5 F B 0 6 4 s _ P 0 6 0 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 5 3 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 0 5 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 1 2 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 2 4 2 -8 B 0 0 2 2 4 2 -8 9 C 4 2 2 4 2 -8 8 8 8 2 2 4 2 -8 7 4 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 5 A F B 0 6 4 s _ 6 _ 2 _ 2 0 1 9 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.