Fréttablaðið - 07.02.2019, Side 28
Fólk er kynningarblað sem býður auglýsendum
að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og um-
fjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið ritstjórnar-
efni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
Umsjónarmenn efnis. Benedikt Bóas Hinriksson, benediktboas@frettabladid.is s. 550 5725 | Sólveig Gísladóttir,
solveig@frettabladid.is s. 550 5762 | Elín Albertsdóttir, elin@frettabladid.is, s. 550 5761 | Brynhildur Björnsdóttir,
brynhildur@frettabladid.is, s. 550 5765 | Starri Freyr Jónsson, starri@frettabladid.is, s. 550 5763 | Þórdís Lilja
Gunnarsdóttir, thordisg@frettabladid.is s. 550 5768
Útgefandi.
Torg ehf
Ábyrgðarmaður.
Kristín Þorsteinsdóttir
Sölumenn. Arnar Magnússon, arnarm@frettabladid.is, s. 550 5652, Atli
Bergmann, atli@frettabladid.is, s. 550 5657, Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@
frettabladid.is, s. 550 5654, Jóhann Waage, johannwaage@frettabladid.is,
s. 550 5656, Ruth Bergsdóttir, ruth@frettabladid.is, s. 550 5653,
Kópavogskirkja og holtið í kring verða strigi vídeólistakonunnar Hrundar Atladóttur á Safnanótt og mun náttúran vera þar innblástur meðal annars.
Náttúrufræðistofa Kópavogs tekur vel á móti forvitnum vísindamönnum á
öllum aldri og kynnir bæði lífríki og rannsóknir á Safnanótt í Kópavogi.
Sundlauganótt verður að vanda haldin í Sundlaug Kópavogs kvöldið eftir
Safnanótt og þar verður skemmtun fyrir alla fjölskylduna.
Að vanda er dagskrá Safnanæt-ur í Kópavogi fjölbreytt og einkar áhugaverð. Hún ber
yfirskriftina Þín eigin safnanótt þar
sem Ævar Þór Benediktsson er sér-
stakur gestur á Bókasafni Kópavogs
á Safnanótt en hann er höfundur
bókaflokksins góðkunna. Ratleikur
í anda bókanna fer fram á öllum
hæðum safnsins og Ævar Þór leiðir
áheyrendur á vit ævintýranna með
skemmtilegum viðburðum.
„Já, Þín eigin-heimurinn tekur
yfir bókasafnið og þá erum við sér-
staklega að horfa á Þína eigin þjóð-
sögu, Þitt eigið tímaferðalag og
Þína eigin hrollvekju,“ segir Ævar
ánægður. „Svo ætla ég á klukku-
tíma fresti að koma mér fyrir á
nýjum og nýjum stað á bókasafn-
inu og lesa upp úr hverri bók fyrir
sig og leyfa áheyrendum að velja
hvað gerist og eins og við má búast
getur lesturinn bæði endað mjög
vel og mjög illa. Við endum á hroll-
vekjunni enda verður þá komið
svartamyrkur og bara fyrir þá allra
hugrökkustu að vera með þá,“
bætir hann við og segir jafnframt
frá því að persónur úr bókunum
verði á vappi um bókasafnið.
Ævar hefur unnið að hugmynd-
inni frá því komið var að máli við
hann í sumar. „Bókasafn Kópavogs
er eitt af mínum uppáhaldsbóka-
söfnum á landinu því afi og amma
áttu heima rétt hjá og ég laumaðist
til að vera með kort þar þegar ég
var lítill. Þannig að það má alveg
segja að einhverjar af persónunum
úr Þín eigin-bókunum hafi orðið
til á Bókasafni Kópavogs.“
Þess má til gamans geta að yfir-
skrift allra viðburða Safnanætur er
vísun í bækurnar. Þar má til dæmis
geta viðburðarins Þín eigin náttúra
þar sem Kópavogskirkja og Borgar-
holtið taka á sig óvenjulega mynd
með vörpun á vídeóverki Hrundar
Atladóttur en Hrund hefur getið sér
gott orð fyrir óvenjulega og spenn-
andi vídeólist. Inni í kirkjunni
verður Þín eigin raftónlistarupp-
lifun undir stjórn Arnljóts Sigurðs-
sonar, tónlistar- og myndlistar-
manns, og séra Sigurður Arnarson
veitir leiðsögn um nýuppgerða
glugga Gerðar Helgadóttur á suður-
hlið kirkjunnar undir yfirskriftinni
Þínir eigin kirkjugluggar en fáar
kirkjur á Íslandi státa af jafn fögrum
steindum gluggum og Kópavogs-
kirkja. Fleiri skemmtileg dæmi má
sjá á dagskránni sem birt er hér á
síðunni.
Í Náttúrufræðistofu verða lífverur
í vötnum, sýnatökur og rannsóknir
til umfjöllunar, sérfræðingar sýna
aðferðir og svara spurningum for-
vitinna gesta undir yfirskriftinni
og í Gerðarsafni verður boðið upp
á hefðbundna dansleiðsögn um
sýninguna Ó, hve hljótt en sýningin
samanstendur af völdum kvik-
Kl. 18.00 Þín eigin náttúra. Kópavogskirkja og holtið upplýst
með vídeóverki Hrundar Atladóttur.
Þinn eigin ratleikur í anda bókaflokks Ævars Þórs
Benediktssonar í Bókasafni Kópavogs.
Þín eigin rannsókn. Lífverur í vötnum skoðaðar í
Náttúrufræðistofu Kópavogs. Rannsóknarstofan er
opin til kl. 21.00.
Þinn eigin hugur. Slökun og hugleiðsla í Beck-
mannsstofu bókasafnsins á 2. hæð.
Þín eigin svipmynd af Kópavogi. Kvikmyndir frá
ýmsum tímum sýndar undir leiðsögn í Héraðs-
skjalasafni Kópavogs, Digranesvegi 7.
Þín eigin ást. Lauflétt verkefni sem tengjast ástinni
í Midpunkt Galleríi í Hamraborg 22.
Kl. 18.00 Þínir eigin spíralar og mynstur. Tilraunir með liti
og pappír með Doddu Maggý í Gerðarsafni.
Kl. 18.15 Þín eigin raftónlistarupplifun með Arnljóti
Sigurðssyni.
Kl. 19.00 Þín eigin kirkja. Gluggar Gerðar Helgadóttur,
kertaljós og höklar kirkjunnar til sýnis. Hrafnkell
Karlsson nemi leikur á orgelið.
Kl. 19.00 Þín eigin tvíundakóðun. Hressir tölvunarfræði-
nemar kenna gestum í bókasafninu.
Þín eigin dýrateikning. Teiknarinn Árni Jón Gunn-
arsson leiðbeinir í Náttúrufræðistofu.
Kl. 19.00 Þinn eigin dans. Saga Sigurðardóttir dansar með
gesti um sýninguna Ó, hve hljótt í Gerðarsafni.
Kl. 20.00 Þínir eigin kirkjugluggar. Sr. Sigurður Arnarson
sóknarprestur veitir leiðsögn um nýuppgerða
glugga Gerðar Helgadóttur í Kópavogskirkju.
Kl. 20.30 Þín eigin leiðsögn. Kristín Dagmar Jóhannesdóttir
safnstjóri veitir leiðsögn um sýninguna Ó, hve
hljótt í Gerðarsafni.
Kl. 21.00 Þitt eigið vídeóverk. Curver Thoroddsen stýrir við-
burði í Gerðarsafni.
Kl. 21.00 Þinn eigin óperusöngvari. Gissur Páll Gissurarson
flytur sólarlög í fordyri Salarins.
Kl. 21.00 Okkar eigin rannsóknir. Erindi um rannsóknar-
ferðir og fjölbreytta starfsemi Náttúrufræði-
stofunnar.
Kl. 22.00 Þinn eigin taktur. Arabísk dansveisla í Bókasafninu.
Kl. 22.30 Þinn eigin hlátur. Andri Ívars uppistandari kitlar
hláturtaugarnar í Bókasafninu.
Þín eigin hamingjustund. Notalegheit alla Safna-
nótt í Pure Deli í Gerðarsafni.
Opið til 24.
Sundlauganótt í Salalaug
9. febrúar
Aðgangur ókeypis og rómantísk stemning. Tónlist á bakk-
anum og ís fyrir alla!
Dagskrá
Kl. 18.00 Aqua zumba.
Kl. 19.00 Jóga í vatni.
Kl. 20.00 Bjarni töframaður skemmtir sundlaugagestum.
Kl. 21.00 Bjarni töframaður skemmtir sundlaugagestum
enn meira.
Vetrarhátíð í
Kópavogi
Safnanótt 8. febrúar
Framhald af forsíðu ➛
myndum, hljóð- og vídeóverkum
eftir bæði íslenska og alþjóð-
lega samtímalistamenn. Kristín
Dagmar Jóhannesdóttir safnstjóri
veitir hefðbundna leiðsögn en
Saga Sigurðardóttir leiðir gesti með
dansi. Þá leiðir Curver Thoroddsen
viðburð þar sem gestir varpa eigin
vídeóverki á veggi. Midpunkt gallerí
tekur þátt og sýnir einnig brot af
verkum frá síðustu sýningum.
Í Salnum verða tvennir tón-
leikar með Gissuri Páli Gissurar-
syni. „Við Árni Heiðar Karlsson
píanisti verðum með sönglagadag-
skrá þar sem við ætlum að flytja
ítölsk og íslensk lög í bland,“ segir
Gissur Páll aðspurður um efni
tónleikanna og bætir við. „Þetta
verða tvennir hálftíma tónleikar
sem byrja klukkan níu og tíu. Tón-
leikarnir verða í anddyri Salarins
en ekki í stóra salnum sem býður
upp á meira kósí og meiri nánd
og afslöppun. Þetta er eiginlega
hugsað sem svona kaffihúsa salon-
stemming svo fólk getur kíkt við
og hlustað á nokkur lög á leið sinni
um Safnanótt.“
Sjálfur er Gissur Páll upp alinn í
Kópavogi og finnst gaman að koma
á heimaslóðirnar. „Það er frábært
að vera á Safnanótt í Kópavogi, allt
pakkað af skemmtilegum við-
burðum.“
Loks má þess geta að í Héraðs-
skjalasafni Kópavogs verða sýndar
kvikmyndir frá ýmsum tímum
undir leiðsögn valinkunnra sagna-
þula bæjarins.
Dagskráin hefst klukkan 18 og
stendur til 23. Það eru Menningar-
húsin í Kópavogi, Kópavogskirkja
og Midpunkt gallerí sem taka þátt
í Safnanótt auk þess sem Pure
Deli í Gerðarsafni verður opið til
miðnættis en þar verður Þín eigin
hamingjustund og tónlist.
Kvöldið eftir er svo komið að
Sundlauganótt sem að þessu sinni
fer fram í Salalaug en Sundlauga-
nótt hefur notið mikilla vinsælda
undanfarin ár. Dagskrá hefst
klukkan 18.10 með Aqua Zumba
en ókeypis er í laugina frá klukkan
18. Jóga og samflot hefjast klukkan
19 og Bjarni töframaður skemmtir
sundlaugargestum klukkan átta og
svo aftur klukkan níu. Á bakkanum
verður rómantísk stemming og
tónlist og börn fá ís. Sundlauginni
er svo lokað klukkan 22.
Allar nánari upplýsingar má finna á
Facebook undir Þín eigin safnanótt
og Þín eigin Sundlauganótt og á
kopavogur.is.W
til 23.00
2 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 7 . F E B R ÚA R 2 0 1 9 F I M MT U DAG U R
0
7
-0
2
-2
0
1
9
0
4
:2
5
F
B
0
6
4
s
_
P
0
4
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
2
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
2
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
2
4
2
-9
4
E
0
2
2
4
2
-9
3
A
4
2
2
4
2
-9
2
6
8
2
2
4
2
-9
1
2
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
A
F
B
0
6
4
s
_
6
_
2
_
2
0
1
9
C
M
Y
K