Velferð - 01.12.2007, Qupperneq 29
c?
Hagsmunagæsla - SÍBS hefur lagt áherslu
á að gæta hagsmuna félagsmanna sinna.
Vorið 2006 var t.d. haldin i Norræna
húsinu ráðstefnan: „ Líf með lyfjum” þar
sem fjöldi hagsmunaaðila fjallaði um
lyfjamál. Samtökin stóðu einnig að opn-
um fundi með fulltrúum stjórnmála-
flokkanna þar sem sérstaklega var rædd
hugmynd um afnám virðisaukaskatts af
lyfjum. Ráðstefna um gildi hreyfingar var
haldin í tengslum við þing SÍBS árið
2006. SÍBS hefur einnig mótmælt
fyrirhuguðum stjórnvaldsaðgerðum s.s.
upptöku „analog” kerfis í verðlagningu
lyfja. Þá mótmæltu samtökin að sjálf-
sögðu fyrirhugaðri helgarlokun bráða-
þjónustu fyrir hjartasjúklinga og til-
vísanaskyldu til hjartalækna.
SÍBS dagurinn - SÍBS dagurinn er
haldinn hátíðlegur fyrsta sunnudag í
október ár hvert. í ár var SÍBS dagurinn
7. október og þá voru, líkt og undanfarin
ár, skrifstofur samtakanna og aðildar-
félaga að Síðumúla 6 opnar gestum og
gangandi. Starfsemin var kynnt og efni
frá samtökunum lá frammi.
Þjónusta við félagsmenn SÍBS - SÍBS
hefur lagt áherslu á að auka þjónustu við
félagsmenn samtakanna. SÍBS blaðið
kemur út þrisvar á ári. Þar er oftast tekið
fyrir ákveðið þema í hverju tölublaði þar
sem athygli er m.a. beint að sérstökum
sjúkdómum eða þjónustu við sjúklinga.
Vegna brýnnar þarfar var ráðinn
félagsráðgjafi til þjónustu við félagsmenn
aðildarfélaga SÍBS. Því starfi gegnir
Margrét Albertsdóttir. Frá því að SÍBS hóf
að bjóða upp á þjónustu félagsráðgjafa á
skrifstofum samtakanna hafa fjölmargir
félagsmennn notið góðs af - enda mikil
þörf fyrir þjónustuna. Starfshlutfall
félagsráðgjafa SÍBS er nú 40 %.
Aðildarfélög samtakanna standa að
öflugu starfi með það markmið að
leiðarljósi að auka lífsgæði og bæta heilsu
félagsmanna sinna. Haldnir eru félags- og
fræðslufundir í Síðumúla 6 þar sem
félagsmenn njóta nú mun betri aðstöðu
en áður var.
Fundur með fulltrúum Trygginga-
stofnunar ríkisins - SÍBS hefur komið á
formlegu samstarfi við TR. Ákvörðun um
það var tekin á kynningarfundi sem SÍBS
stóð fyrir þar sem fulltrúar TR kynntu
starfsemi stofnunarinnar.
Fundur með Landlækni - Fundað var
með Aðstoðarlandlækni. Starfsemi SÍBS
var kynnt og helstu baráttumál. Að-
stoðarlandlæknir tók vel í samstarf við
SÍBS og ákveðið var að fulltrúar SÍBS hitti
hann reglulega.
Sýningin 3L EXPO, í Egilshöll - SÍBS var
meðal 200 sýnenda á sýningunni 3L
EXPO um heilbrigði og vellíðan sem
haldin var 7.-11. september 2006.
Kvikmyndir - SÍBS lét gera mynd um
sögu og starfsemi samtakanna sem
frumsýnd var í sjónvarpinu snemma árs
2006. Samtök lungnasjúklinga, Astma-
og ofnæmisfélagið og Vífill, félag fólks
með svefnháðar öndunartruflanir/-
kæfisvefn létu einnig hver fyrir sig gera
myndir um þá sjúkdóma sem samtökin
standa fyrir sem sýndar voru í
sjónvarpinu. Nú stendur yfir vinna við
gerð tveggja kvikmynda. Annars vegar
um bakverki og hins vegar um offitu
barna.
Erlend samskipti - Eins og áður eru
samskipti SÍBS út fyrir landsteinana og
fólgin í aðild sambandsins að NHL
(Nordiska Hjárt- och Lungsjukas För-
bund), enda er það bundið í lögum SÍBS.
Hvert Norðurlandanna á einn fulltrúa í
stjórn NHL. Þing, stjórnarfundur og
vinnufundur á vegum NHL var haldið
hér á landi í byrjun september s.l.
Aðild að ÖBÍ - SÍBS er fjölmennasta
aðildarfélag Öryrkjabandalags íslands.
Mikilvægt er að undirstrika að
félagsmenn aðildarfélaga SÍBS hafa
þannig fullan rétt á og aðgang að þeirri
þjónustu sem ÖBÍ hefur upp á að bjóða.
Ferð um landið - í september s.l. var farin
hringferð um landið á vegum SÍBS þar
sem samtökin voru kynnt og mælingar
framkvæmdar á blóðþrýstingi, blóðfitu
og súrfefnismettun. Á tíu dögum voru 17
staðir heimsóttir á svæðinu frá Sauðár-
króki til Kirkjubæjarklausturs.
Afmælisár framundan - SÍBS var stofnað
24. október 1938 og verða því 70 ára á
næsta ári og verður þeirra tímamóta
minnst á árinu. Samtökin NHL verða 60
ára sama ár. Þess hefur verið farið á leit
við SÍBS að þeirra tímamóta verði
jafnframt minnst hér á landi einnig á
næsta ári. Þá verða samtökin Hjartaheill á
næsta ári 25 ára. Þannig að næsta ár
verður ár tímamóta.
Eins og að framan greinir, er um að ræða
víðtæka starfsemi á vegum SÍBS. Eitt af
meginmarkmiðum samtakanna er og
hefur verið að gæta hagsmuna félags-
manna sinna. Hjartaheill er lang
fjölmennasta aðildarfélag SÍBS með
rúman helming félagsmanna sam-
takanna. Afar mikilvægt er því að
samstarf SÍBS við Hjartaheill sem og
önnur aðildarfélög sé gott og gjöfult og
velferð samtakanna og félagsmanna
þeirra verði höfð að leiðarljósi. Ég vil f.h.
SÍBS nota þetta tækifæri og þakka
starfsfólki og stjórnarmönnum Hjarta-
heilla farsælt samstarf og óska
samtökunum áfram alls hins besta.
Nóvember, 2007, Helgi Hróðmarsson.
Aðalstöðvar SÍBS í Reykjavík, Síðumúla 6, þar sem skrifstofur Hjartaheilla og Neistans eru einnig til
húsa
velferð 29