Fréttablaðið - 23.02.2019, Side 2
Veður
Suðaustan 13-20 og rigning. Snýst
í suðvestan 18-25 með éljum eftir
hádegi á morgun. Hiti 2 til 5 stig
fyrir hádegi. SJÁ SÍÐU 46
595 1000
Madeira
Blómahátíð á
Bir
t m
eð
fy
rir
va
ra
um
pr
en
tvi
llu
r.
He
im
sfe
rð
ir
ás
kil
ja
sé
r r
étt
til
le
iðr
étt
ing
a á
sl
íku
. A
th.
að
ve
rð
ge
tur
br
ey
st
án
fy
rir
va
ra
Verð frá kr.
256.995
29. apríl í 10 nætur
Fyrsta loftslagsverkfall ungmenna hér á landi fór fram þegar ungt fólk safnaðist
saman á Austurvelli í hádeginu í gær. Krafan var einföld; að stjórnvöld bregðist
við neyðarástandi í loftslagsmálum. Það voru Landssamtök íslenskra stúdenta
sem boðuð til verkfallsins sem á sér sænska fyrirmynd. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
HEILBRIGÐISMÁL Matvælastofnun
og Lyfjastofnun vara nú við neyslu
á efninu tian eptine og annarra efna
sem seld eru á netinu undir heitinu
Nootrop ics. Talið er að einstaklingur
hafi látist hér á landi nýlega eftir að
hafa tekið inn tianeptine, efni sem
finna má í fæðubótarefnum sem seld
eru á netinu. Læknar telja að efnið
hafi valdið dauða viðkomandi en
ekki er hægt að veita nánari upp-
lýsingar um málið að svo stöddu.
Tianeptine er ekki selt hér á landi
en það er selt sem þynglyndislyf í
sumum Evrópulöndum,
Asíu og Suður-Ameríku
undir heitunum Coaxil
og Stablon. MAST segir
það ekki ljóst hvort við-
komandi hafi flutt efnið
inn sem lyf eða keypt það
sem fæðubótarefni af net-
inu. Dæmi eru um að tia-
neptine hafi verið notað
af sprautufíklum í Rúss-
landi og Bandaríkjunum en
þegar því er sprautað í æð er víman
sambærileg neyslu ópíóða.
Einföld leit leiðir í ljós að auðvelt
er að nálgast efnið á netinu sem
fæðubótarefni, en ekki eru gerðar
jafn ríkar kröfur til framleiðslu
fæðubótarefna og lyfja. Er efnið þá
yfirleitt markaðssett sem „snjall-lyf“
og sagt að það örvi minni, sköpunar-
gáfu og einbeitingu. Sagt er að það
„opni heilann“ og geti jafnvel gert
einstaklinga gáfaðri.
MAST bendir á að engar, eða fáar,
rannsóknir styðji staðhæfingar
framleiðenda. Vaxandi
notkun á Nootropics-
efnum valdi áhyggjum
því ekki er vitað með
vissu hvaða áhrif lang-
tímanotkun þeirra hefur
á líkamann og heilastarf-
semina. – ab
Lést af völdum snjall-lyfs
Ungmenni fóru í verkfall fyrir loftlagsmál
Tianeptine er selt undir
vörumerkinu Stablon.
NORDICPHOTOS/GETTY
SAMKEPPNI Aðalfundi Íslandspósts
ohf. (ÍSP), sem halda átti í gær, var
frestað um ótilgreindan tíma að
beiðni handhafa hlutabréfa félags-
ins, það er fjármálaráðherra. Í svari
ÍSP við fyrirspurn Fréttablaðsins
segir að stefnt sé að því að halda
hluthafafund áður en aðalfundur
fer fram. Samtímis frestast birting
ársskýrslu. Ekki er tilgreint hvers
vegna þetta var ákveðið.
Í upphafi mánaðar var boðað
til aðalfundar ÍSP og átti hann að
fara fram í höfuðstöðvum félagsins
þann 22. febrúar kl. 16. Síðla þann
21. febrúar barst hins vegar tilkynn-
ing þar sem fram kom að aðalfund-
inum hefði verið frestað og að stjórn
myndi boða til aðalfundar á ný í
samræmi við samþykktir félagsins
og ákvæði hlutafélagalaga.
Samkvæmt samþykktum ÍSP skal
halda aðalfund fyrir lok júlímán-
aðar ár hvert. Undanfarin ár hefur
hann verið haldinn síðasta föstudag
febrúarmánaðar og var stefnt að því
nú áður en til hinnar skyndilegu
frestunar kom.
Sem kunnugt er hefur rekstur
ÍSP verið þungur undanfarin ár. Af
fundargerðum stjórnar, sem Frétta-
blaðið fékk afrit af að hluta, má
meðal annars sjá að í árslok 2015
tók fyrirtækið 500 milljóna króna
lán til að auka við handbært eigið
fé. Samkvæmt ársreikningi þess árs
var handbært eigið fé jákvætt í árs-
lok um 419 milljónir.
Af koma áranna 2016 og 2017
var aftur á móti viðunandi vegna
óvænts hagnaðar af einkaréttar-
bréfum eftir að í ljós kom að fækkun
dreifingardaga skilaði meira hag-
ræði en ráð var gert.
Árið 2017 hækkaði stjórn ÍSP
laun forstjóra fyrirtækisins um 25
prósent og í ársbyrjun 2018 greiddi
félagið launauppbót til starfsmanna
sinna í ljósi góðrar afkomu. Á haust-
mánuðum var staðan hins vegar sú
að eigið fé reyndist uppurið og veð-
rými í fasteignum sömuleiðis. Því
lokaði viðskiptabanki þess, Lands-
banki Íslands, fyrir frekari lán. Þess
vegna leitaði ÍSP á náðir ríkisins
sem lánaði félaginu 500 milljónir
og veitti heimild til að lána allt að
milljarð til viðbótar á þessu ári þótt
ekki væri búið að greina í hverju
rekstrarvandinn liggur.
Fréttablaðið beindi fyrirspurn
til fjármálaráðuneytisins um hví
ákveðið hefði verið að fresta fund-
inum. Svar hafði ekki borist þegar
blaðið fór í prentun. Með því að
fresta aðalfundi frestast jafnframt
birting ársskýrslu ÍSP en hún hefur
meðal annars að geyma upplýs-
ingar um kaup og kjör stjórnenda.
Af fundargerðum stjórnar má ráða
að þau hafi tekið breytingum milli
ára. Áreiðanlegar heimildir Frétta-
blaðsins herma að laun forstjóra
hafi hækkað ríf lega á árinu 2018,
á sama tíma og fyrirtækið stefndi í
gjaldþrot. joli@frettabladid.is
Óútskýrð frestun á
aðalfundi Póstsins
Aðalfundi Íslandspósts og þar með birtingu ársskýrslu hefur verið frestað.
Fréttablaðið hefur ekki fengið svar við því hví sú ákvörðun var tekin. Meðal
upplýsinga í ársskýrslu eru breytingar á kaupi og kjörum stjórnenda félagsins.
Framkvæmdir við flutningamiðstöð Póstsins að Stórhöfða kosta um 700
milljónir króna en áttu upphaflega að vera enn meiri. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Áreiðanlegar heimildir
Fréttablaðsins herma að
laun forstjóra hafi hækkað
ríflega á árinu 2018.
Fleiri frá loftslagsverkfallinu er að finna á
+Plússíðu Fréttablaðsins. Fréttablaðið +Plús er
í Fréttablaðs-appinu og PDF-útgáfu á Frétta-+PLÚS
FJÖLMIÐLAR Vegna yfirlýsingar
sem Efling stéttarfélag sendi frá sér
í gær í tilefni af frétt Fréttablaðs-
ins um launakröfur aðildarfélaga
Starfsgreinasambandsins (SGS) vill
blaðið taka fram að það stendur við
frétt sína að öllu leyti. Útreikningar
í fréttinni byggja á kröfugerð SGS
sem Efling hefur haldið til streitu í
viðræðum við SA.
Í umræddum útreikningum er,
eins og skýrlega var tekið fram í
fréttinni, miðað við regluleg heildar-
laun nokkurra starfsstétta innan
aðildarfélaga SGS miðað við sam-
setningu launaliða árið 2017.
Auk óbreytts fjölda greiddra yfir-
vinnutíma er gert ráð fyrir því að
hlutfallið á milli reglulegra launa
og grunnlauna haldist óbreytt og að
hæsta aldursþrep verði hækkað úr
fimm árum í sjö ár, í samræmi við
kröfur Eflingar, sem gerir ráð fyrir
tveggja prósenta bili á milli aldurs-
þrepa.
Athugasemd frá
Fréttablaðinu
2 3 . F E B R Ú A R 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R2 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
2
3
-0
2
-2
0
1
9
0
4
:3
0
F
B
1
2
0
s
_
P
1
1
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
1
0
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
0
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
1
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
2
6
3
-3
5
E
4
2
2
6
3
-3
4
A
8
2
2
6
3
-3
3
6
C
2
2
6
3
-3
2
3
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
B
F
B
1
2
0
s
_
2
2
_
2
_
2
0
1
9
C
M
Y
K