Fréttablaðið - 23.02.2019, Blaðsíða 96
Listaverkið Þessa mynd af hafmeyju fengum við senda frá henni Sólveigu Tinnu Leifsdóttur.
„Almáttugur,“ hrópaði
Róbert upp yfir sig.
„Við erum föst hérna
inni og munum aldrei
komast út,“ bætti hann
við skelfingu lostinn.
„Enginn mun nokkurn
tímann finna okkur
og við munum svelta í
hel.“ „Svona nú Róbert
minn,“ sagði Kata
höstug. „Þetta er nú bara
völundarhús og það er
alltaf einhver leið út úr
völundarhúsum,“ bætti
hún við og leit í kringum
sig. „Eða er það ekki?“
Spurði hún og glotti
þegar hún sá hvað
Róbert hvítnaði.
Konráð
á ferð og flugi
og félagar
341
Getur
þú hjálpað Róberti og Kötu að komast út úr völundar-húsinu?
?
?
?
Guðmundur Þór Ólafsson, átta ára,
varð hlutskarpastur þeirra sem
kepptu á yngsta stigi í vísnasam-
keppni grunnskólanna.
Hvar lærðir þú að yrkja, Guð-
mundur? Hjá mömmu minni.
Hvað fékkst þú í verðlaun fyrir
vísubotninn þinn? Ég fékk bókina
Ljóðpundari eftir Þórarin Eldjárn
og viðurkenningarskjal.
Kanntu margar vísur, er kannski
einhver í uppáhaldi? Ekki margar
en ljóðið Bókagleypir eftir Þórarin
Eldjárn er uppáhaldsljóðið mitt,
það er um strák sem heitir Guð-
mundur og hann borðar bækur.
Það er þó ekki um þig? Hvernig
finnst þér mest gaman að leika
þér? Með Lego.
Hvað finnst þér fallegast á Íslandi?
Náttúran, sérstaklega fossar.
Hvaða dýr eru í mestu uppáhaldi
hjá þér? Fuglar eru uppáhaldsdýrin
mín.
Hver vildir þú helst vera ef þú
værir ekki þú sjálfur? Ég myndi
ekki vilja vera neinn annar en ég er.
Hvað er það sniðugasta sem hefur
komið fyrir þig? Það var mjög
gaman að vinna núna í Vísnakeppni
grunnskólanna.
Hvað langar þig að verða þegar þú
verður stór? Það er svo margt, ég er
ekki enn þá búinn að ákveða mig,
bara eitthvað skemmtilegt.
Má ég birta verðlaunavísuna
þína? Já, hér kemur hún:
Margt er gott að glíma við,
gaman er að lita.
Líka er hægt af gömlum sið,
góða bók að rita.
Margt er gott
að glíma við
Áhugi á vísnagerð virðist aukast ár frá ári
hjá börnum og ungmennum. Samtals 900
vísubotnar bárust frá 22 skólum í síðustu
Vísnasamkeppni grunnskólanna. Hjá
yngsta stigi var einkum hugað að rími.
Guðmundur myndi ekki vilja vera annar en hann er. FRÉTTABLAÐIÐ/EYÞÓR
LJÓÐIÐ BÓKAGLEYPIR
EFTIR ÞÓRARIN
ELDJÁRN ER UPPÁHALDSLJÓÐIÐ
MITT, ÞAÐ ER UM STRÁK SEM
HEITIR GUÐMUNDUR OG HANN
BORÐAR BÆKUR.
2 3 . F E B R Ú A R 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R44 H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
KRAKKAR
2
3
-0
2
-2
0
1
9
0
4
:3
0
F
B
1
2
0
s
_
P
0
9
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
9
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
2
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
2
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
2
6
3
-7
B
0
4
2
2
6
3
-7
9
C
8
2
2
6
3
-7
8
8
C
2
2
6
3
-7
7
5
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
8
B
F
B
1
2
0
s
_
2
2
_
2
_
2
0
1
9
C
M
Y
K