Fréttablaðið - 23.02.2019, Síða 12
27. FEBRÚAR – 3. MARS
SEX RÉTTA VEISLA
APOTEK KITCHEN+BAR Austurstræti 16 apotek.is
EKKI MISSA AF ÞESSU!
Borðapantanir á apotek.is og í síma 551 0011
HÆGELDUÐ BLEIKJA með grænmetis
„escabeche“, reyktum kartöflum, gulrótar- og lauk
„coulis“ og soðsósu
ÖND með tamarind-sósu með sellerírótarmauki
og perum og þurrkaðri og sýrðri sellerírót
KOLKRABBI með sykraðri sítrónu, kjúklinga-
bauna- mousseline, heimagerðu mjúku harissa
og sýrðum rauðlauk
„FISKI GBOMAN“ léttreyktur skarkoli með
spínati, graskersfræ-dufti og rækjusnjó
LAMBA RUMP með beinasósu, svartbaunum,
bakaðri gulrót og Vierge-sósu
„MAURESQUE“ FROÐA, fennel-marengs,
sykraður fennel og sítrus-sorbet
8.900 kr.
Framreitt eftir kl. 17
Gestakokkur Apoteksins er franska
matreiðslustjarnan, MasterChef keppandinn
og töarinn GEORGIANA VIOU.
Hún hefur sett saman gómsætan 6 rétta
matseðil, spennandi blöndu afrískrar
og suður-franskrar matargerðar.
Ferðumst saman
Morgunverðarfundur um almenningssamgöngur milli byggða
Fimmtudaginn 28. febrúar stendur samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið
fyrir fundi um nýja stefnumótun um almenningssamgöngur fyrir allt landið.
Fundurinn fer fram í Iðnó við Tjörnina í Reykjavík og stendur frá kl. 8:30–10.
Boðið verður upp á morgunverð frá kl. 8.
Dagskrá:
• Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu- og sveitarstjórnar ráðherra, setur fundinn
• Árni Freyr Stefánsson, sérfræðingur í samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu
„Ferðumst saman – í átt að heildstæðu almennings samgöngukerfi milli byggða“
• Jóna Árný Þórðardóttir, framkvæmdastjóri Austurbrúar
„Mikilvægi almenningssamgangna fyrir landsbyggðina“
• Annette Skaarnæs, framkvæmdastjóri markaðs mála hjá Entur í Noregi
„Entur – connecting public transport across Norway“
• Pallborðsumræður með fyrirlesurum
Fundarstjóri er Ragnhildur Hjaltadóttir ráðuneytisstjóri.
Fundurinn er opinn öllum. Skráning fer fram á stjornarradid.is.
INDLAND Harðnandi deila kjarn-
orkuveldanna Indlands og Pakist-
ans náði í gær inn á svið íþrótta.
Ríkin hafa lengi deilt um yfirráð yfir
Kasmírhéraði og átt í kjarnorkuvíg-
búnaðarkapphlaupi frá því á átt-
unda áratugnum.
Hiti færðist í leikinn þegar fjöru-
tíu herþjálfaðir Indverjar voru
myrtir í Pulwama í indverska hluta
Kasmír. Pakistönsk hryðjuverka-
samtök, JeM, lýstu yfir ábyrgð á
árásinni en stjórnvöld á Indlandi
áfellast stjórnvöld í Pakistan fyrir að
leyfa starfsemi JeM að grassera þar í
landi. Pakistanar neita allri ábyrgð
á árásinni.
Krikketsamband Indlands, BCCI,
tilkynnti í gær að vegna árásarinnar
ætti Alþjóðakrikketsambandið
(ICC) að reka aðildarsambönd frá
ríkjum þar sem hryðjuverkastarf-
semi viðgengst. Áttu greinilega við
Pakistan. Annars myndu Indverjar
neita að taka þátt í heimsmeistara-
mótinu sem fer fram í Englandi og
Wales í sumar.
Krikket er langvinsælasta íþrótt-
in í bæði Indlandi og Pakistan og
krikketstjörnur geta haft umtals-
verð áhrif. Sachin Tendulkar, ind-
versk krikketgoðsögn, sagði á
Twitter að hann myndi styðja snið-
göngu gegn Pakistan. Þá er vert að
taka fram að Imran Khan, forsætis-
ráðherra Pakistans, er af mörgum
álitinn einn besti krikketmaður
allra tíma. Löndin eiga að etja
kappi þann 16. júní á Old Trafford í
Man chester. Samkvæmt skýranda
BBC er afar ólíklegt að sá leikur
fari fram, nema einhver kúvending
verði í indverskum stjórnmálum
eftir kosningar í maí.
Fjarri íþróttaleikvöngum deila
stjórnmálamenn ríkjanna. Nitin
Gadkari, samgönguráðherra Ind-
lands, sagði frá því á Twitter á
fimmtudag að ríkisstjórnin hefði
ákveðið að hætta að deila vatni
með Pakistönum. Indverjar hafa
hingað til leyft vatni að renna með
ám sínum til hins nokkuð þurra
Pakistans en munu nú beina því til
Indverja í Kasmír og Púnjab.
Samkvæmt skýrendum sem The
New York Times ræddi við er þetta
alvarlegasta aðgerð sem Indverjar
hafa ráðist í frá árásinni í Pulwama.
Eiginlegt vatnsstríð sem þetta gæti
valdið þeim hundruðum milljóna
Pakistana og Indverja sem reiða
sig á ár til að fá vatn miklum þján-
ingum. Ekki liggur fyrir hvenær eða
hvernig Indverjar ætla að koma í
veg fyrir að vatn renni til Pakistans.
Pakistanar eru ekki aðgerðar-
lausir heldur. Pakistanski miðill-
inn Express Tribune sagði frá því
í gær og hafði eftir stjórnvöldum í
pakistanska ríkinu Púnjab að her-
menn væru búnir að taka yfir höf-
uðstöðvar JeM. Þá hafði miðillinn
einnig eftir Asif Ghafoor, upplýs-
ingafulltrúa pakistanska hersins,
að þótt Pakistanar vildu ekki fara
í stríð væri herinn tilbúinn og Ind-
verjar gætu aldrei komið Pakistön-
um á óvart. thorgnyr@frettabladid.is
Þjóðarsportið í hættu
vegna Kasmírdeilu
Indverjar vilja ekki spila við Pakistana á HM í krikket. Vilja raunar ekki
sjá þá taka þátt vegna meints skeytingarleysis Pakistana í garð hryðju-
verkastarfsemi. Indverjar ætla einnig að skera á rennsli vatns til Pakistans.
Kjarnorkuveldin tvö hafa mikið dálæti á krikket en nú er þátttaka á heims-
meistaramótinu í hættu vegna árásarinnar í Pulwama. NORDICPHOTOS/AFP
2 3 . F E B R Ú A R 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R12 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
2
3
-0
2
-2
0
1
9
0
4
:3
0
F
B
1
2
0
s
_
P
1
1
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
1
0
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
0
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
1
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
2
6
3
-5
8
7
4
2
2
6
3
-5
7
3
8
2
2
6
3
-5
5
F
C
2
2
6
3
-5
4
C
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
A
F
B
1
2
0
s
_
2
2
_
2
_
2
0
1
9
C
M
Y
K