Fréttablaðið - 23.02.2019, Síða 57
Leikskólinn Tjarnarskógur á
Egilsstöðum auglýsir lausa
stöðu aðstoðarleikskólastjóra
frá og með næsta skólaári
Aðstoðarleikskólastjóri óskast til starfa við leikskólann
Tjarnar skóg á Egilsstöðum. Leikskólinn Tjarnarskógur er
9 deilda leikskóli með 189 börn á tveimur starfsstöðum.
Tjarnar skógur horfir til fjölgreindarkenningar Howards
Gardners í starfsaðferðum sínum og einkunnarorð skólans
eru: gleði, virðing, samvinna og fagmennska.
Leitað er að metnaðarfullum einstaklingi sem er tilbúinn að
taka þátt í að stjórna og leiða gott faglegt starf í lýðræðislegu
skólaumhverfi. Í Tjarnarskógi leggjum við áherslu á sam
vinnu, nýtingu mannauðs og skapandi lausnaleit. Jákvæðni
og lipurð í samskiptum eru eiginleikar sem við metum mikils.
Starfsvið:
• Aðstoðarleikskólastjóri er aðstoðarmaður leikskólastjóra
og ber ásamt honum ábyrgð á rekstri og faglegu starfi
leikskólans.
• Er staðgengill í fjarveru leikskólastjóra og starfar þá
samkvæmt starfslýsingu hans.
• Vinnur ásamt leikskólastjóra að daglegri stjórnun
leikskólans og skipulagningu uppeldisstarfsins.
• Sinnir þeim verkefnum sem varðar stjórnun leikskólans sem
yfirmaður felur honum hverju sinni.
Menntun, reynsla og hæfni:
• Leikskólakennaramenntun
• Framhaldsmenntun á sviði stjórnunar æskileg
• Stjórnunarreynsla í leikskóla mikilvæg
• Færni í samskiptum
• Frumkvæði í starfi og faglegur metnaður
• Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
• Góð tölvukunnátta
• Góð íslenskukunnátta
Hæfniskröfur byggja á 10. gr. laga um menntun og ráðningu
kennara og skólastjórnenda við leikskóla, grunnskóla og
framhaldsskóla nr. 87/2008. Laun eru skv. kjarasamningi
Félags stjórnenda í leikskólum og launanefndar Sambands
íslenskra sveitarfélaga.
Upplýsingar veitir Sigríður Herdís Pálsdóttir leikskólastjóri, í
símum 4700650/4700660/8544585 eða á netfanginu
sigridurp@egilsstadir.is. Nánari upplýsingar um Tjarnarskóg
má einnig finna á veffanginu:
http://tjarnarskogur.leikskolinn.is
Æskilegt væri að umsækjandi ætti þess kost að hefja störf
1. júní nk. en það er þó ekki skilyrði. Umsóknir um stöðuna
skulu berast til Leikskólans Tjarnarskógar Skógarlöndum 5,
700 Egilsstaðir eða á netfangið sigridurp@egilsstadir.is.
Umsóknarfrestur er til og með 15. mars 2019.
Umsókninni skal fylgja greinargott yfirlit yfir störf
umsæk janda og menntun, stjórnunarreynslu og hver þau
verkefni eru sem hann hefur unnið við og varpað geta ljósi á
færni hans til að sinna stjórnunarstarfi.
ÖRYGGISVÖRÐUR
SECURITY GUARD
Sendiráð Bandaríkjanna auglýsir stöðu
öryggisvarðar lausa til umsóknar.
Umsóknarfrestur er til og með 1. mars 2019.
Frekari upplýsingar er að finna á heimasíðu sendiráðsins:
https://is.usembassy.gov/embassy/jobs/
The U.S. Embassy in Reykjavik is seeking an individual for the
position of Security Guard. The closing date for this postion is
March 1, 2019. Application forms and further information can
be found on the Embassy’s home page:
https://is.usembassy.gov/embassy/jobs/
Please send your application and resumé to :
reykjavikvacancy@state.gov
Ármúli 2 ı 108 Reykjavík ı Sími 480 6000
Lögfræðingur
Samgöngustofa auglýsir lausa til umsóknar stöðu lögfræðings í lögfræðideild stofnunarinnar.
Helstu verkefni eru samning lagafrumvarpa og reglugerða, þátttaka í vinnu við innleiðingu
reglugerða Evrópusambandsins á sviði samgöngumála í samvinnu við samgöngu- og
sveitarstjórnarráðuneytið, skrif álitsgerða og framsetning lögfræðilegs efnis í riti og á vef, að
veita svör við almennum lagalegum fyrirspurnum á starfssviði Samgöngustofu, samskipti við
innlend stjórnvöld og hagsmunaaðila og þátttaka í alþjóðlegu samstarfi. Þá er lögfræðingur
starfsmönnum til ráðgjafar við úrvinnslu á erindum sem berast stofnuninni þar sem lögfræði-
legrar þekkingar er þörf. Um er að ræða eitt stöðugildi. Einnig verður ráðið í tvær tímabundnar
stöður til tólf mánaða með möguleika á áframhaldandi ráðningu. Starfshlutfall er 100%.
Í boði eru spennandi störf
hjá metnaðarfullri stofnun
í alþjóðlegu umhverfi. Við
bjóðum góða starfsaðstöðu
og frábæra vinnufélaga.
Við hvetjum jafnt konur
sem karla til að sækja um.
Tvö spennandi
og krefjandi störf
Menntunar- og hæfniskröfur
• Grunn- og meistaranám í lögfræði
• Haldgóð reynsla eða þekking á sviði opinberrar stjórnsýslu er nauðsynleg
• Reynsla eða þekking á Evrópurétti og EES-samningnum er nauðsynleg
• Reynsla og/eða þekking á sviði flugs, siglinga eða umferðarmála er kostur
• Mjög gott vald á íslensku og ensku, í rituðu og töluðu máli er nauðsynlegt
Góð færni í einu Norðurlandamáli er æskileg
• Frumkvæði, skipulögð, sjálfstæð og nákvæm vinnubrögð, gagnrýnin og
lausnamiðuð hugsun, góð samskiptahæfni og sjálfstæði í vinnubrögðum
Umsóknarfrestur
er til 11. mars 2019
Hægt er að sækja
um störfin rafrænt á
samgongustofa.is/storf
Upplýsingar um
Samgöngustofu má finna
á samgongustofa.is
Fagstjóri ökunáms og leyfisveitinga
Samgöngustofa auglýsir lausa til umsóknar stöðu fagstjóra ökunáms og leyfisveitinga á
farsviði stofnunarinnar. Í starfinu felst m.a. skipulag ökukennslu og prófa, gerð námskráa
og samning bóklegra prófa, umsjón með innihaldi og framkvæmd ökuprófa, umfjöllun um
lög og reglugerðir á sviði umferðarmála, og leyfisveitingar (t.d. fyrir ökuskóla, til reksturs
vöru- og farþegaflutninga og fyrir leigubíla og ökutækjaleigur). Starfshlutfall er 100%.
Menntunar- og hæfniskröfur
• Háskólamenntun sem nýtist í starfi
• Frumkvæði, sjálfstæði og fagmennska ásamt skipulagningu og ögun
í verkum eru áskilin. Þarf að geta unnið undir álagi
• Hæfni til að tjá sig í rituðu og mæltu máli. Mjög góð enskukunnátta er skilyrði
og kunnátta í einu eða fleiri Norðurlandamálum er kostur
• Reynsla af námskrár- og prófagerð er kostur
• Þekking á umferðarmálum kostur
RÁÐUM EHF • Sími 519 6770
www.radum.is • radum@radum.is
Við ráðum
Ráðum býður upp á ráðgjöf og ráðningar
sniðnar að þörfum viðskiptavinarins.
ATVINNUAUGLÝSINGAR 15 L AU G A R DAG U R 2 3 . F E B R ÚA R 2 0 1 9
2
3
-0
2
-2
0
1
9
0
4
:3
0
F
B
1
2
0
s
_
P
0
6
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
6
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
5
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
5
7
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
2
6
3
-B
6
4
4
2
2
6
3
-B
5
0
8
2
2
6
3
-B
3
C
C
2
2
6
3
-B
2
9
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
B
F
B
1
2
0
s
_
2
2
_
2
_
2
0
1
9
C
M
Y
K