Fréttablaðið - 23.02.2019, Síða 4
UMBOÐSAÐILI RAM TRUCKS Á ÍSLANDI • ÞVERHOLT 6 • 270 MOSFELLSBÆR • S. 534 4433
WWW.ISBAND.IS • ISBAND@ISBAND.IS • OPIÐ VIRKA DAGA 10-18 • LAUGARDAGA 12-16
RAM 3500 - HÖRKUTÓL SEM ENDIST
ramisland.is
EIGUM ALLAR ÚTFÆRSLUR TIL AFHENDINGAR, SLT, LARAMIE, LARAMIE SPORT, LIMITED OG LIMITED TUNGSTEEN.
BJÓÐUM UPP Á 37” TIL 42” BREYTINGARPAKKA.
40” BREYTTUR
UMBOÐSAÐILI RAM Á ÍSLANDI
TÖLUR VIKUNNAR 17.02.2019 TIL 23.02.2019
20
þúsund
króna hækkun á
mánaðarlaunum
undir 600 þúsund
krónum er tilboð
Samtaka atvinnu-
lífsins í yfirstandandi
kjaraviðræðum.
prósenta skatt-
þrep verður
það lægsta
hérlendis sam-
kvæmt tillögum
sem ríkisstjórnin
hefur kynnt.
starfsmönnum
Ölgerðarinnar
var sagt upp
störfum síðast-
liðinn miðviku-
dag.
þúsund lítrar af
mysu renna frá
Mjólkursam-
sölunni í Lagarfljót
í hverri viku.
32,94 25120
K JARAMÁL „Þetta er grafalvar-
legt ástand og við höfum miklar
áhyggjur af þessu. Ég vænti þess að
við fáum einhverjar leiðbeiningar
frá Samtökum atvinnulífsins um
helgina varðandi framkvæmdina.
Við munum auðvitað fara að lögum
og reglum,“ segir Ingibjörg Ólafs-
dóttir, hótelstjóri Hótels Sögu,
um mögulegar verkfallsaðgerðir
Ef lingar.
Atkvæðagreiðsla hefst næstkom-
andi mánudag meðal þeirra félags-
manna Ef lingar sem heyra undir
kjarasamning félagsins og Samtaka
atvinnulífsins vegna vinnu starfs-
fólks í veitinga- og gistihúsum.
Viða r Þor stei ns son, f r a m-
kvæmdastjóri Ef lingar, segir að
allir félagsmenn sem vinni sam-
kvæmt umræddum kjarasamningi
hafi atkvæðisrétt en sjálf verkfalls-
boðunin nær einungis til þeirra
sem starfa við þrif, hreingerningar
og frágang á hótelum og gisti-
húsum.
Greiði mei r i h lut i at k væði
með verkfallsboðuninni munu
umræddir starfsmenn leggja niður
störf kl. 10 föstudaginn 8. mars og
mun vinnustöðvuninni ljúka kl.
23.59 um kvöldið nema samningar
hafi tekist. Komi til verkfallsins
munu þeir starfsmenn sem leggja
niður störf fá greiddar 12 þúsund
krónur fyrir skatt.
„Þetta er í rauninni bara einstök
og mjög afmörkuð aðgerð. Hún
stendur svolítið sjálfstætt utan við
okkar stærra móðurplan,“ segir
Viðar.
Ingibjörg, sem situr einnig í stjórn
Samtaka ferðaþjónustunnar þar
sem hún fóstrar gististaðanefnd,
segir að nefndin muni koma saman
í næstu viku til að fara yfir stöðuna.
Hún segir að allir séu sammála um
að fólk eigi að hafa í sig og á.
„Ég held að þrátt fyrir að það hafi
kannski stefnt í þetta hafi samt
allir vonað að þarna væri einhver
glæta og það væri hægt að halda
áfram og semja. Við vonum auð-
vitað áfram að þetta leysist en við
verðum líka að vera með aðgerða-
áætlanir og bregðast við þessu eins
og við mögulega getum,“ segir Ingi-
björg.
Ingibjörg bendir á að nú sé tölu-
verð niðursveif la í gestafjölda og
það sé staðreynd að þegar gestir
heyri af verkfallsaðgerðum sem
snúi jafnvel beint að þeim þá hætti
þeir við að koma.
„Þetta hef ur áhr if bæði til
skemmri og lengri tíma. Það sem
ég hef kannski persónulega mest-
ar áhyggjur af er það sem gerist í
kjölfarið. Þetta hefur bein áhrif
á viðskiptin því allar okkar áætl-
anir byggjast á því að það sé ekki
röskun á starfseminni.“
Um þriðjungur starfsmanna
Hótels Sögu er í Ef lingu. Ingibjörg
segir að staðan þar sé því ekki alveg
vonlaus þótt verkfallsaðgerðir yrðu
mjög slæmar fyrir starfsemina.
sighvatur@frettabladid.is
Afmörkuð aðgerð utan við
móðurplan stéttarfélaganna
Hótelstjóri og stjórnarmaður í Samtökum ferðaþjónustunnar hefur miklar áhyggjur af áhrifum mögu-
legra verkfallsaðgerða á starfsemi hótela og gistihúsa. Framkvæmdastjóri Eflingar segir aðgerðina
afmarkaða og standa utan við stærra móðurplan. Atkvæðagreiðsla um aðgerðirnar hefst á mánudag.
Aðilar í ferðaþjónustu óttast afleiðingar verkfallsaðgerða á greinina til skemmri og lengri tíma. FRÉTTABLAÐIÐ/EYÞÓR
Þetta hefur bein
áhrif á viðskiptin
því allar okkar áætlanir
byggjast á því að það sé ekki
röskun á starfseminni.
Ingibjörg
Ólafsdóttir,
hótelstjóri
Hótels Sögu
Kristján Þór Júlíusson
sjávarútvegs- og landbúnaðarráð-
herra
kynnti í vikunni
frumvarp um
afnám frysti-
skyldu á inn-
fluttu kjöti og
um að heimilt
verði að flytja
inn hrátt kjöt, hrá
egg og ógerilsneydda mjólk.
Helga Björk Eiríksdóttir
formaður bankaráðs
Landsbankans
sagði að ef laun
bankastjórans
hefðu ekki verið
hækkuð um 1,2
milljónir króna
á mánuði hefði
verið erfiðara að
finna þann hæfasta í
starfið.
Þorsteinn Sæmundsson
þingmaður Miðflokksins
bað Þórhildi
Sunnu Ævars-
dóttur, þing-
mann Pírata,
afsökunar á
því að hafa
spurt hana
úr ræðustól á
Alþingi hvort hún hefði „persónu-
lega reynslu“ af því að láta eyða
fóstri.
Þrjú í fréttum
Kjöt, kjör og
iðrun
Fáðu blað dagsins í tölvupósti
kl. 5.00 á morgnana.
Skráðu þig á póstlista Frétta-
blaðsins á www.frettabladid.is/
nyskraning. Það kostar ekkert.
Vertu fyrst/ur
að lesa blaðið
2 3 . F E B R Ú A R 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R4 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
2
3
-0
2
-2
0
1
9
0
4
:3
0
F
B
1
2
0
s
_
P
1
1
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
1
0
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
0
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
1
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
2
6
3
-4
9
A
4
2
2
6
3
-4
8
6
8
2
2
6
3
-4
7
2
C
2
2
6
3
-4
5
F
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
B
F
B
1
2
0
s
_
2
2
_
2
_
2
0
1
9
C
M
Y
K