Fréttablaðið - 23.02.2019, Blaðsíða 56
Fjarðarkaup óskar eftir öflugum einstaklingi til að hafa
umsjón með grænmetisdeild verslunarinnar.
• Líflegt starf.
• Njóti þess að vinna með góðu fólki og
umgangast ánægða viðskiptavini.
• Kostur ef viðkomandi hefur auga fyrir
framstillingu á grænmeti og ávöxtum.
• Vinnutími er eftir samkomulagi.
Umsóknarfrestur er til 4. mars n.k. - um er að ræða framtíðarstarf.
Nánari upplýsingar hjá starfsfólki upplýsingaborðs Fjarðarkaupa eða í síma 555 3500.
Vinsamlegast sendið umsóknir á netfangið fjardarkaup@fjardarkaup.is.
1
SÆTI *
Deildarstjóri
grænmetisdeildar
Helstu verkefni og ábyrgð
Megin starfssvið er skólaheilsugæsla, almenn móttaka
á heilsugæslustöð og ungbarnavernd.
Skólahjúkrunarfræðingur sinnir reglubundnu
heilbrigðiseftirliti nemenda og fræðslu. Auk þess
sinnir hann öðrum viðfangsefnum sem upp kunna
að koma í samstarfi við annað starfsfólk skólans og
foreldra eftir þörfum hverju sinni.
Starfssvið í móttöku er mjög víðtækt, allt frá
símaráðgjöf til bráðaþjónustu. Hjúkrunarmóttakan
sinnir fólki á öllum aldri og skiptist í opna móttöku,
bókaða móttöku og símaráðgjöf. Í opinni móttöku er
tekið á móti bráðaerindum, í bókaðri móttöku
er tekið á móti erindum sem eru ekki bráð s.s.
ferðamannaheilsuvernd og sárameðferð. Einnig er
boðið upp á lífsstíls- og sykursýkisráðgjöf.
Hæfnikröfur
Íslenskt hjúkrunarleyfi
Faglegur metnaður, sjálfstæði í starfi,
skipulagshæfni og öguð vinnubrögð
Framúrskarandi samskiptahæfni, áreiðanleiki,
jákvæðni og sveigjanleiki
Reynsla af og áhugi á þverfaglegri teymisvinnu
Íslenskukunnátta er nauðsynleg
Ábyrgð – Fagmennska – Traust – Þjónusta – Framþróun
Hjúkrunarfræðingur - Heilsugæslan Efstaleiti
Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins auglýsir laust til umsóknar starf hjúkrunarfræðings Heilsugæslunni
Efstaleiti. Starfshlutfall er 100% og verður ráðið í starfið frá og með 1. júní nk. eða eftir nánara
samkomulagi. Um er að ræða ábyrgðarmikið og krefjandi starf og spennandi vettvang fyrir
hjúkrunarfræðing sem hefur áhuga á nýsköpun og framþróun í heilsugæslu.
Umsóknarfrestur er til og með 11. mars 2019
Nánari upplýsingar:
Áslaug Birna Ólafsdóttir, fagstjóri hjúkrunar - 513 5350 aslaug.b.olafsdottir@heilsugaeslan.is
Sjá nánar á www.heilsugaeslan.is. Sækja skal um á vef Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins www.heilsugaeslan.is undir laus
störf eða á Starfatorgi www.starfatorg.is.
Heilsugæslan Efstaleiti leggur áherslu á þverfaglega teymisvinnu. Góður starfsandi er á stöðinni, öflugt
félagslíf og starfsaðstaða til fyrirmyndar.
Öflug kennsla heilbrigðisstétta fer fram á stöðinni í akademísku umhverfi þar sem starfsmenn taka þátt í
rannsókna- og gæðastarfi.
Mikil þróunarvinna er í gangi á stöðinni og stöðugt er unnið að því að bæta þjónustu við skjólstæðinga
sem hefur fjölgað mikið undanfarin ár. Má sem dæmi nefna sykursýkismóttöku, lífstílsmóttöku,
fjölskylduteymi og heilsuvernd eldra fólks.
Barnaverndarstofa
Starf sérfræðings
á meðferðar- og fóstursviði
Barnaverndarstofa auglýsir eftir sérfræðingi til starfa á
meðferðar- og fóstursviði stofunnar. Um er að ræða fullt starf
sem felur meðal annars í sér:
• Mat á upplýsingum barnaverndarnefnda og annarra
fagaðila um umönnunar- og meðferðarþörf barna við
umfjöllun umsókna um viðeigandi þjónustu.
• Leiðbeiningar og gæðaeftirlit með þjónustu við börn sem
dvelja á fóstur- eða meðferðarheimilum og glíma við
alvarlega hegðunar- og tilfinningaerfiðleika.
• Samskipti og ráðgjöf við barnaverndarnefndir, fósturfor-
eldra, meðferðaraðila á vegum Barnaverndarstofu og aðra
fagaðila.
Menntun og reynsla:
• Krafa um meistarapróf eða sambærilegt próf af heilbrigðis-
eða félagssviði.
• Krafa um þekkingu á sviði frávika í hegðun og þroska
barna og unglinga, matsaðferðum, greiningarhugtökum og
–tækjum og fjölbreyttum aðferðum í meðferðarvinnu með
börnum og foreldrum.
• Þekking og reynsla af barnaverndarstarfi og gagnreyndum
aðferðum í þjónustu við börn og fjölskyldur er æskileg.
Persónulegir eiginleikar:
• Mikilvægt er að búa yfir hæfni til að vinna skipulega, mark-
miðatengt og lausnarmiðað.
• Lögð er áhersla á góða samstarfshæfni, sveigjanleika og
jákvætt viðhorf til skjólstæðinga og samstarfsaðila.
• Krafa um góða íslenskukunnáttu í rituðu og töluðu máli.
• Krafa um góða enskukunnáttu og æskileg kunnátta í einu
Norðurlandamáli.
Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst. Við
úrvinnslu umsókna um störfin gildir mat Barnaverndarstofu á
hæfni og eiginleikum umsækjenda. Launakjör eru samkvæmt
kjarasamningi ríkisins og viðkomandi stéttarfélags. Tekið er
mið af jafnréttisáætlun Barnaverndarstofu við ráðningar á
stofuna.
Umsóknarfrestur er til og með 4. mars n.k.
Nánari upplýsingar eru veittar hjá Barnaverndarstofu í síma
530 2600 (www.bvs.is). Umsóknir skulu berast til Barnavern-
darstofu, Borgartúni 21, 105 Reykjavík eða á netfangið
bvs@bvs.is. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun
um ráðningu hefur verið tekin.
Ánægðir viðskiptavinir
eru okkar besta auglýsing
Sérfræðingar í
ráðningum
lind@fastradningar.is
mjoll@fastradningar.is
FAST
Ráðningar
www.fastradningar.is
2
3
-0
2
-2
0
1
9
0
4
:3
0
F
B
1
2
0
s
_
P
0
6
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
6
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
5
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
5
6
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
2
6
3
-C
5
1
4
2
2
6
3
-C
3
D
8
2
2
6
3
-C
2
9
C
2
2
6
3
-C
1
6
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
8
A
F
B
1
2
0
s
_
2
2
_
2
_
2
0
1
9
C
M
Y
K