Fréttablaðið - 23.02.2019, Blaðsíða 36
Atvinnuráðgjafar
okkar leitast við að
veita einstaklingsmið-
aða þjónustu sem er
sniðin að óskum
atvinnurekenda.
Þjónustuskrifstofur Vinnu-málastofnunar starfrækja ráðningaþjónustu þar sem
atvinnurekendur geta auglýst eftir
starfsfólki. „Þetta er auglýsing
sem nær til breiðs hóps og nýtur
atvinnurekandi aðstoðar atvinnu-
ráðgjafa við ráðningaferlið,“ segir
Þóra Ágústsdóttir deildarstjóri
EURES- fyrirtækjaráðgjafar hjá
Vinnumálastofnun.
Hún segir Vinnumálastofnun
hafa á skrá fjölda hæfra ein-
staklinga sem búi yfir margs konar
menntun og reynslu og gætu því
hentað fjölbreyttum fyrirtækjum.
„Vinnumálastofnun er með höfuð-
stöðvar í Reykjavík en er auk þess
með sjö þjónustuskrifstofur um
land allt. Atvinnuráðgjafar okkar
leitast við að veita einstaklings-
miðaða þjónustu sem er sniðin
að óskum atvinnurekenda,“ segir
Þóra og bætir við að öll þjónusta sé
atvinnurekendum að kostnaðar-
lausu auk þess sem fyllsta trúnað-
ar sé gætt.
Vinnumarkaðsúrræði
Atvinnurekendur og atvinnu-
leitendur geta nýtt sér mismun-
andi vinnumarkaðsúrræði sem
Þóra segir að sé helsta verkfæri
Vinnumálastofnunar til að skapa
ný störf og koma atvinnuleit-
endum aftur út á vinnumarkað-
inn. Meðal úrræða er tímabundin
starfsþjálfun þar sem markmiðið
er að atvinnuleitandi fái tækifæri
á vinnumarkaði og fyrirtækið fær
styrk allt að 270.000 kr. á mánuði
með viðkomandi. Einnig geta
fyrirtæki fengið styrk við ráðningu
flóttamanna og fólks með skerta
starfsgetu, svokallaðir vinnu-
samningar öryrkja.
Helstu skilyrði fyrir ráðningu
einstaklings í vinnumarkaðs-
úrræði eru að fyrirtækið þarf að
vera skráð og í öruggum rekstri og
hafi ekki sagt upp starfsmönnum
síðustu mánuði.
Samstarf opinberra vinnu-
miðlana
Vinnumálastofnun er aðili að
EURES (European Employment
Þjónusta atvinnurekendur
Vinnumálastofnun sinnir ekki eingöngu víðtækri þjónustu við atvinnuleitendur heldur er þar
einnig rekin ráðningaþjónusta sem byggir á persónulegri ráðgjöf til atvinnurekenda.
Þóra Ágústs-
dóttir deildar-
stjóri EURES
– fyrirtækja-
ráðgjafar hjá
Vinnumála-
stofnun. MYND/
SIGTRYGGUR ARI
Services) sem er samstarfsvett-
vangur opinberra vinnumiðlana
milli ríkja á Evrópska efnahags-
svæðinu og er starfrækt í 31 landi
í Evrópu. „Markmið EURES er að
stuðla að auknum hreyfanleika
vinnandi fólks á milli landa og
bregðast við staðbundnum sveifl-
um á vinnumarkaði,“ lýsir Þóra
en um 900 EURES ráðgjafar starfa
í Evrópu. Haldið er úti öflugri
vefgátt sem veitir upplýsingar um
allt er viðkemur starfsemi EURES.
Á Íslandi má nálgast upplýsingar
með því að skoða vefsíðu Vinnu-
málastofnunar, vmst.is og vefgátt
EURES, eures.europa.eu sem er
aðgengileg á 26 tungumálum,
þar með talið íslensku. Þar geta
fyrirtæki fengið beinan aðgang
að ferilskrám atvinnuleitenda á
EES svæðinu. Vefgátt EURES veitir
einnig upplýsingar um starfs- og
lífsskilyrði og ástandið á vinnu-
markaði í hverju landi fyrir sig.
Þóra hvetur fyrirtæki og stofnanir
sem hafa áhuga á að kynna sér
þjónustuna nánar til að hafa sam-
band við EURES – fyrirtækjaráð-
gjöf á netfanginu vinnumidlun@
vmst.is eða í síma 515-4800.
Við erum lausnin við skorti á hæfum og sérhæfðum starfs-mönnum, iðnaðarmönnum,
framleiðslufólki, matreiðslumönn-
um, vélamönnum, meiraprófs-
bílstjórum, hótel-
starfsmönnum og
svo mætti lengi telja,“
segir Haraldur Ólafs-
son, framkvæmda-
stjóri Alþjóðlegu
ráðningarþjónust-
unnar.
Ráðningar-
þjónustan var opnuð
árið 2017 og segir
Haraldur að helsti
munurinn sé að þau
fylli upp í ákveðið
gat sem var á ráðningarmarkaði,
þ.e. ráðningar á hinum vinnandi
manni. „Fyrir okkar tíð voru það
eingöngu starfsmannaleigur sem
voru að sinna ráðningum á þessum
markaði. Við erum ekki starfs-
mannaleiga og bjóðum eingöngu
upp á beinar ráðningar til fyrir-
tækja þar sem fyrirtækin greiða
okkur einskiptisgjald fyrir að finna
rétta starfsmanninn eftir fyrir
fram ákveðnum hæfnisskilyrðum.
Ráðningarsamband er beint milli
fyrirtækisins og starfsmannsins,
almennt ríkir því meira traust,
og þess vegna getum við fundið
hæfara fólk.“
Þegar haldið var af stað í þessa
ferð fóru Haraldur og hans teymi í
leit að samstarfsaðila og fundu GP
Recruitment í Lettlandi sem hefur
starfað samfleytt síðan
2004 við afbragðsorð-
spor. Fyrirtækið sér um
ráðningar til fyrirtækja
víðsvegar um Evrópu
og utan hennar, t.d. í
Kanada og Japan.
„Við keppumst ekki
við að ráða sem flesta
og horfum frekar í gæði
heldur en fjölda, þ.e.
að þær ráðningar sem
við tökum að okkur séu
farsælar. Frá 2017 erum við að
nálgast um það bil 300 manns sem
við höfum ráðið hingað til lands og
Færeyja, en eins og áður sagði ein-
beitum við okkur að ráðningum
á hinum vinnandi manni frá
verkamönnum til mjög sérhæfðra
iðnaðarmanna.
Okkar reynsla sýnir að þetta
fyrirkomulag leiðir til þess að
starfsmenn fá hærri laun þar sem
öllum milliliðum t.d. eins og starfs-
mannaleigum er sleppt. Hærri laun
gera okkur kleift að laða að okkur
hæfara fólk, starfsmenn sem koma
til að vinna beint hjá viðkomandi
fyrirtækjum koma inn með öðru
hugarfari heldur en þeir sem koma
á vegum starfsmannaleigu. Þeir
hafa t.d. færi á að vinna sig upp í
stöðu, fá meiri ábyrgð með
tilheyrandi launahækkun.
Flestar okkar ráðningar eru í
framtíðarstörf og þar er hlutfallið
um 88% sem eru ár eða lengur hjá
viðskiptamönnum. Einnig er það
þannig að þeir starfsmenn sem
hafa komið á okkar vegum í tíma-
bundin störf hér á landi koma til
okkar aftur því þeir treysta okkur.
Traustið er einmitt það mikil-
vægasta í þessu starfi, þ.e. að þær
upplýsingar sem við látum af hendi
séu réttar hvað varðar þær stöður
sem við ráðum í, kaup og kjör,
vinnutíma, aðstæður á vinnustað
o.s.frv. Fólkið er okkar auður.“
Hjá ráðningarstofunni starfar
tengiliður starfsmanna sem talar
íslensku, ensku, lettnesku og
rússnesku. „Allir starfsmenn eru
sóttir út á völl, skráðir inn í landið,
atvinnuskírteini þeirra viður-
kennd, aðstoðaðir við ráðningar-
samning, við að opna banka-
reikning og við útvegum íslensk
símanúmer en þetta ferli tekur
nokkra daga og hafa viðskipta-
menn okkar verið mjög ánægðir
með þessa þjónustu. Okkar mark-
mið er að það eigi að vera eins ein-
falt að ráða starfsmenn í gegnum
okkur erlendis frá og að ráða starfs-
mann hér á landi, þ.e.a.s. við sjáum
um allt ferlið frá a til ö.“
Traustið það mikilvægasta
Hjá Alþjóðlegu ráðningarþjónustunni starfa tengiliðir starfsmanna sem
talar til dæmis íslensku, ensku, lettnesku, rússnesku. NORDICPHOTOS/GETTY
Alþjóðlega ráðn-
ingarþjónustan
sérhæfir sig í því
að finna hæft
starfsfólk erlend-
is frá fyrir íslensk
fyrirtæki.
Haraldur Ólafsson,
framkvæmdastjóri
ráðningaþjónustunnar.
2 KYNNINGARBLAÐ 2 3 . F E B R ÚA R 2 0 1 9 L AU G A R DAG U RRÁÐNINGARÞJÓNUSTA OG RÁÐGJÖF
2
3
-0
2
-2
0
1
9
0
4
:3
0
F
B
1
2
0
s
_
P
0
8
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
7
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
3
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
4
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
2
6
3
-9
8
A
4
2
2
6
3
-9
7
6
8
2
2
6
3
-9
6
2
C
2
2
6
3
-9
4
F
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
B
F
B
1
2
0
s
_
2
2
_
2
_
2
0
1
9
C
M
Y
K