Fréttablaðið - 23.02.2019, Side 53

Fréttablaðið - 23.02.2019, Side 53
Sumarstörf/Framtíðarstörf í boði hjá PCC Við leitum að vélvirkjum, málmiðnaðarmönnum og rafvirkjum í fjölbreytt störf í verksmiðju okkar á Húsavík. Vilt þú taka þátt í spennandi uppbyggingu? Hjá okkur er fagmennska og fjölbreytt verkefni í fyrirrúmi. Iðnaðarmenn PCC munu vinna í teymum sem sameiginlega sinna fjölbreyttum verkefnum. Unnið verður á dagvöktum en hver og einn mun einnig sinna útkallsvöktum (bak- vöktum). Við leggjum áherslu á að áreiðanleikamiðað viðhald (RCM) þar sem unnið verður eftir viðurkenndum aðferðum við skipulag viðhalds og að ástandsgreiningar verði nýttar til að lágmarka niðritíma á búnaði. Þú þarft að: Vera orðin/n 18 ára, vera með gilt ökuskírteini, vera tilbúin/n að fara í heilsufarsskoðun og vímuefnapróf Taktu þátt í spennandi uppbyggingu: Sendu inn umsókn og við verðum í sambandi innan skamms. Nánari upplýsingar veitir: Jóhann Helgason Framkvæmdastjóri Tæknisviðs, johann.helgason@pcc.is í síma: 833 5755 Launa- og mannauðsfulltrúi Hafrannsóknastofnun leitar eftir starfsmanni við launa­ vinnslu og mannauðsmál. Starfið felst í mánaðarlegri launavinnslu, eftirliti með tímafærslum (Vinnustund), orlofsuppgjöri og fjölbreyttum störfum við mannauðsmál í samstarfi við yfirmann mannauðsmála, þar með talið starfs­ þróunarmál, starfsmanna handbók og jafnlaunavottun. Starfið er fjölbreytt og krefjandi framtíðarstarf. Menntunar- og hæfniskröfur: • Menntun sem nýtist í starfi • Reynsla af launavinnslu og mannauðsmálum • Reynsla af Orra ­ Mannauðskerfi æskileg • Hæfni til að vinna sjálfstætt og í teymisvinnu • Lipurð í mannlegum samskiptum, kurteisi og þjónustulund • Góð almenn tölvukunnátta (Word, Excel, Office 365) Um er að ræða fullt starf með starfstöð í Reykjavík en fyrir liggur að stofnunin flytur í Hafnarfjörð á árinu. Laun eru samkvæmt kjarasamningi fjármálaráðuneytis og viðkom­ andi stéttarfélags. Æskilegt er að umsækjandi geti byrjað sem fyrst. Óskað er eftir að umsókn fylgi greinargóð ferilskrá yfir menntun og fyrri störf, staðfesting á námi og kynningarbréf þar sem umsækjandi gerir grein fyrir ástæðu umsóknar­ innar og útskýrir atriði í ferilskrá betur, eftir því sem viðkomandi telur þörf á. Umsóknarfrestur er til og með 11. mars n.k. Umsóknir skulu sendar á póstfangið umsokn@hafogvatn.is eða á skrifstofu Hafrannsóknastofnunar, Skúlagötu 4, 101 Reykjavík. Nánari upplýsingar veitir Sólmundur Már Jónsson, fjármálastjóri (solmundur.mar.jonsson@hafogvatn.is) sími 5752000. Jafnt karlar sem konur, eru hvött til að sækja um starfið. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir. Hafrannsóknastofnun, rannsókna­ og ráðgjafarstofnun hafs og vatna er stærsta rannsóknastofnun landsins á sviði haf­ og vatnarannsókna og gegnir auk þess ráðgjafarhlutverki varðandi skynsamlega nýtingu og verndun auðlinda hafs og vatna. Mikill hluti starfseminnar tengist alþjóð­ legu samstarfi við erlendar hafrannsóknastofnanir og háskóla. Stofnunin rekur auk aðalstöðva í Reykjavík starfsstöðvar vítt og breytt um landið, til­ raunaeldisstöð, tvö rannsóknaskip og hefur að jafnaði um 190 starfsmenn í þjónustu sinni. Þarftu að ráða starfsmann? RÁÐUM EHF • Sími 519 6770 • www.radum.is • radum@radum.is Ráðum sérhæfir sig í ráðningum og mannauðsráðgjöf. Við komum til móts við þarfir fyrirtækja og sérsníðum lausnir sem henta hverjum viðskiptavini. Okkar verðmætasta auðlind er fólkið! Í virkjunum ON eru mörg spennandi verkefni í pípunum og því vantar okkur drífandi samstarfsfélaga til að slást í hópinn. Við bjóðum fjölbreyttar áskoranir, skemmtilega og skapandi vinnufélaga og stuðning við að fylgja hugmyndum þínum eftir allt til enda. Starfsfólk í virkjunum gegnir mikilvægu hlutverki þar sem áhersla er lögð á öryggisvitund, frumkvæði og umbótahugsun. Ertu ON? UMHVERFISVERÐLAUN ATVINNULÍFSINS FRAMTAK ÁRSINS – 2016 ÍSLENSKA ÁNÆGJUVOGIN 2017 JAFNLAUNAVOTTUN 2018–2021 Hvers vegna ON? Við framleiðum og seljum rafmagn til allra landsmanna, auk þess að framleiða heitt vatn fyrir höfuðborgarsvæðið. Við rekum virkjanir á Hellisheiði, Nesjavöllum og við Andakílsá. Við erum leiðandi í umhverfisvænum orkuskiptum á Íslandi og nýsköpun í nýtingu auðlindastrauma. Við höfum sett okkur metnaðarfull loftslagsmarkmið og viljum nýta auðlindir af ábyrgð og nærgætni til að bæta lífsgæði í nútíð og framtíð, okkur öllum til heilla. Hjá okkur ríkir jákvæður starfsandi sem einkennist af sterkri liðsheild, uppbyggilegum skoðanaskiptum og virðingu í samskiptum. Við bjóðum upp á fyrsta flokks aðbúnað og fjölskylduvænan vinnutíma. Sótt er um á ráðningavef ON, starf.on.is, þar sem nánari upplýsingar er að finna. Umsóknarfrestur er til 7. mars 2019. Við hvetjum konur sérstaklega til að sækja um.* *Þar sem konur eru í miklum minnihluta starfsfólks hjá virkjunum ON hvetjum við þær sérstaklega, á grundvelli 1. mgr. 18. gr. laga um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla nr. 10/2008, til að sækja um. Ertu rafmagnað leiðtogaefni? Við óskum eftir lausnamiðaðri og áhugasamri fag­ manneskju til að gegna hlutverki staðgengils tæknistjóra rafbúnaðar. Verkefnin fela m.a. í sér að stýra verkum iðnmenntaðs starfsfólks og verktaka, taka faglegar ákvarðanir og styðja við störf tæknistjóra rafbúnaðar. Ertu skipulagður stuðbolti? Okkur vantar skipulagðan stuðbolta til að vera lykilaðili í góðu flæði verkefna, allt frá undirbúningi til verkloka. Þú verður í mikilvægu þjónustuhlutverki, hefur yfirsýn yfir lagerstöðu og tryggir að samstarfsfólk og verktakar hafi það sem þarf hverju sinni. Ef þú hefur sveinspróf í rafvirkjun, ert lipur í samskiptum og hefur ánægju af verkstjórn viljum við heyra frá þér. Þú þarft að hafa reynslu af almennri rafvirkjun og reynsla af smá­ og háspennu rafvirkjun er kostur. Ef þú hefur unun af góðu skipulagi, býrð yfir þjónustu lund og hefur áhuga á starfsemi virkjana­ reksturs, viljum við heyra frá þér. Hér skiptir öllu máli að vera lipur í samskiptum og búa yfir umbóta­ hugsun. Lyftarapróf er ekki nauðsyn til að sækja um. ATVINNUAUGLÝSINGAR 11 L AU G A R DAG U R 2 3 . F E B R ÚA R 2 0 1 9 2 3 -0 2 -2 0 1 9 0 4 :3 0 F B 1 2 0 s _ P 0 6 8 K .p 1 .p d f F B 1 2 0 s _ P 0 6 5 K .p 1 .p d f F B 1 2 0 s _ P 0 5 3 K .p 1 .p d f F B 1 2 0 s _ P 0 5 6 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 2 6 3 -C 5 1 4 2 2 6 3 -C 3 D 8 2 2 6 3 -C 2 9 C 2 2 6 3 -C 1 6 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 8 A F B 1 2 0 s _ 2 2 _ 2 _ 2 0 1 9 C M Y K
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.