Fréttablaðið - 23.02.2019, Page 86

Fréttablaðið - 23.02.2019, Page 86
Hjá Landspítala dró Job.is úr aug- lýsingakostnaði án þess að drægi úr fjölda umsókna. Í dag erum við óhræddari við að skipta um störf ef við sjáum tækifæri til að vaxa á nýjum stað. Job.is er fyrsti atvinnuaug-lýsingavefurinn á Íslandi og fagnar nú 20 ára afmæli sínu,“ segir Sigríður Sigmarsdóttir sem tók við rekstri fyrirtækisins í árs- byrjun eftir að hafa starfað hjá því í hálft annað ár og líkað vel. Sigríður tók við stjórnartaum- unum af Kolbeini Pálssyni og Guð- jóni Guðmundssyni, stofnendum Job.is. „Job.is er atvinnuauglýsinga- vefur þar sem fyrirtæki geta auglýst eftir starfsfólki á auð- veldan og ódýran máta,“ upplýsir Sigríður. „Fyrirtæki greiða fyrir auglýsingar sem sendar eru í tölvupósti til atvinnuleitenda og atvinnuleitendur skrá sig frítt og fá senda tölvupósta þegar ný störf eru auglýst. Þeir geta svo stillt vaktina sína og fengið þá eingöngu senda tölvupósta með störfum sem þeir hafa áhuga á.“ Job.is hefur frá upphafi leitast við að halda verðum í lágmarki og hefur verðskráin ekki hækkað í tvö ár. „Nýjasta viðbótin í flóru Job.is eru fastir samningar við fyrirtæki sem þurfa ítrekað að auglýsa eftir starfsfólki. Þeir bjóða að auki sjálf- virka innkeyrslu starfa og auðvelda þar með störf mannauðsstjóra og markaðsfólks því eingöngu þarf að setja starf á heimasíðu fyrirtækis- ins og þá keyrist það inn til Job.is,“ útskýrir Sigríður. Landspítali háskólasjúkrahús er stærsti vinnustaður landsins. Hann hefur nú í tvö ár birt öll laus störf á Job.is og ber fyrirtækinu vel söguna. „Forsvarsmenn mannauðs- sviðs Landspítala sáu að flestar umsóknir bárust rafrænt og því gaf augaleið að auglýsa sem flest störf á vefnum. Job.is dró úr auglýsinga- kostnaði án þess að drægi úr fjölda umsókna,“ upplýsir Sigríður. Fyrir minni fyrirtæki er auðvelt að nýta sér mannauðsstjórann hjá Job.is. „Mannauðsstjórinn fylgir með þegar auglýsing er keypt og því er auðveldlega hægt að flokka umsóknir og halda utan um ráðningarferlið án þess að fylla pósthólfið af umsóknum,“ segir Sigríður um Job.is sem er í stöðugri þróun. „Því ferli lýkur aldrei þar sem tækninýjungar eru daglegt brauð og ég hlakka til að kynna allar þær nýjungar sem verða í boði árið 2019.“ Nánari upplýsingar á job.is. Síungur, ferskur og traustur Atvinnuauglýsingavefurinn Job.is stendur á tvítugu. Vefurinn er einkar skilvirkur og þægilegur í notkun og verð fyrir þjónustuna er í lágmarki. Fjölmargar nýjungar verða kynntar á afmælisárinu. Sigríður Sigmarsdóttir er eigandi og framkvæmdastjóri Job.is. MYND/EYÞÓR Það sem appið hefur fram yfir vefinn er starfsvakt þar sem umsækjendur geta vaktað störf eftir þekkingu, áhugasviði og jafnvel staðsetningu. Anna Brynja Baldursdóttir sam- skiptastjóri. MYND ALDÍS PÁLSDÓTTIR Þegar Alfreð fór í loftið árið 2013 þá var aðeins um að ræða einfalt app fyrir atvinnuauglýsingar. Síðan þá hefur Alfreð tekið stakkaskiptum og er í dag stærsti atvinnuleitar- miðill landsins með tugi þúsunda notenda sem skoða atvinnuaug- lýsingar daglega á alfred.is eða í Alfreð appinu. „Stærsta breytingin var að bæta ráðningarkerfi við auglýsingakerfið sem gerir ein- staklingum kleift að sækja um með Alfreð prófílunum sínum,“ segir Anna Brynja Baldursdóttir, samskiptastjóri hjá Alfreð. Hvað er Alfreð prófíll? „Einstaklingar í atvinnuleit geta stofnað Alfreð prófíl á vefnum eða í appinu og inniheldur hann helstu atriði sem mikilvægt er að komi fram um umsækjendur eins og menntun og starfsreynslu. Það þægilega við prófílinn er að það þarf bara að fylla hann út einu sinni og þá er hann tilbúinn til notkunar. Til að mynda þegar umsækjandi fær tilkynningu úr „vaktinni“ sinni um starf sem gæti hentað honum þá gæti hann sótt um strax ef fyrirtækið velur að taka við „prófílumsóknum“ í gegnum ráðningarkerfi Alfreðs,“ útskýrir Anna Brynja. Hvernig vaktar maður störf? „Það sem appið hefur fram yfir vefinn er starfsvakt þar sem umsækjendur geta vaktað störf eftir þekkingu, áhugasviði og jafn- vel staðsetningu. Þegar starf, sem passar við vakt einhvers umsækj- anda, er birt, þá fær viðkomandi tilkynningu beint í símann um starfið. Raunveruleikinn í dag er sá að við erum óhræddari við að skipta um störf ef við sjáum tæki- færi til að vaxa á nýjum stað og það tel ég heilbrigt viðhorf. Þetta held ég að sé ein meginástæðan fyrir fjölda prófílnotenda í Alfreð en þeir eru yfir 70 þúsund í dag. Það eru svo margir að velta fyrir sér næsta skrefi eða vilja einfald- lega vakta draumastarfið.“ Eru fjölbreytt störf í boði inni á Alfreð? „Það er gaman að segja frá því að fjölbreytileikinn á milli atvinnu- auglýsinganna hefur aukist með hverju árinu. Í fyrra voru að með- altali 650 auglýsingar í birtingu í hverjum mánuði en þær koma úr öllum áttum og í þeim er óskað eftir starfsfólki með fjölbreyttan bakgrunn. Nú fara til að mynda öll störf á vegum Kópavogsbæjar inn í Alfreð og tekur bærinn við próf- ílumsóknum í gegnum ráðningar- kerfi Alfreðs. Þar kennir ýmissa grasa þegar kemur að störfum svo það er óhætt að segja að hægt sé að finna mjög fjölbreytta flóru starfa inni á Alfreð,“ segir Anna Brynja að lokum. Sæktu um starf með einum smelli í Alfreð appinu Alfreð er í dag stærsti atvinnu- leitarmiðillinn á Íslandi og býður upp á einfalda, nýstárlega og gjaldfrjálsa leið til að sækja um störf. 4 KYNNINGARBLAÐ 2 3 . F E B R ÚA R 2 0 1 9 L AU G A R DAG U RRÁÐNINGARÞJÓNUSTA OG RÁÐGJÖF 2 3 -0 2 -2 0 1 9 0 4 :3 0 F B 1 2 0 s _ P 0 8 6 K .p 1 .p d f F B 1 2 0 s _ P 0 7 5 K .p 1 .p d f F B 1 2 0 s _ P 0 3 5 K .p 1 .p d f F B 1 2 0 s _ P 0 4 6 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 2 6 3 -9 3 B 4 2 2 6 3 -9 2 7 8 2 2 6 3 -9 1 3 C 2 2 6 3 -9 0 0 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 A F B 1 2 0 s _ 2 2 _ 2 _ 2 0 1 9 C M Y K
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.