Mosfellingur - 11.01.2018, Síða 11
Norðurál er eitt stærsta iðnfyrirtæki á Íslandi. Hjá fyrirtækinu starfa um 600 manns
með fjölbreytta menntun og bakgrunn. Norðurál vill stuðla að jöfnu hlutfalli karla og
kvenna innan fyrirtækisins og jöfnum tækifærum til starfsþróunar.
Við leitum að metnaðarfullu fólki í fjölbreytt og eftirsótt
sumarstörf í álverinu á Grundartanga. Í boði eru
störf af ýmsu tagi við framleiðslu, raf- og vélvirkjun
og fleira. Öll störfin henta jafnt körlum og konum.
Norðurál leggur áherslu á heilsusamlegt, öruggt
og ánægjulegt starfsumhverfi og góðan starfsanda.
Árangurstengd laun sumarfólks í vaktavinnu eru um 560.000 krónur á
mánuði fyrir fullt starf. Starfsfólki bjóðast ferðir frá Akranesi, Borgarnesi
og af höfuðborgarsvæðinu. Umsóknarfrestur er til og með 1. febrúar.
Sumarstarfsmenn í framleiðslu- og iðnstörfum fara á frumnámskeið vegna
vinnuvélaréttinda. Umsóknir og upplýsingar eru á www.nordural.is og
hjá Guðrúnu Hjaltalín Guðjónsdóttur í síma 430 1000. Öllum umsóknum
verður svarað og trúnaði heitið.
Menntunar- og hæfnikröfur:
Spennandi
sumarstörf
18 ára lágmarksaldur Dugnaður og sjálfstæði
Bílpróf er skilyrði
Starfsfólk í raf- og vélvirkjun þarf
að hafa sveinspróf eða vera langt
komið í námi í viðeigandi fagi
Mikil öryggisvitund og árvekni
Heiðarleiki og stundvísi
Góð samskiptahæfni
KirKjuKraKKar
Barnastarf fyrir 1. og 2. bekk haustið 2017
Lágafellskirkja býður upp á Kirkjukrakka, kirkjustarf fyrir börn í 1. og 2. bekk. Kirkju-
krakkar eru í samvinnu við Frístundasel Lágafellsskóla á Höfðabergi og Varmárskóla.
Ekki er nauðsynlegt að vera í Frístundaseli til að taka þátt og fer starfið fram í
skólanum. Kirkjukrakkar eru einu sinni í viku á föstudögum:
Lágafellsskóli (Höfðaberg) frá kl. 13:20 til kl. 13:55.
Varmárskóli frá kl. 14:10 til kl. 14:45.
Kirkjukrakkar er kristilegt starf fyrir börn í 1. og 2. bekk, þar fræðast þau um kristna
trú og kærleika, syngja og leika sér. Börnin læra bænir, heyra helstu sögur Biblíunnar
og velta fyrir sér siðferðisboðskapnum sem í þeim býr.
Engin greiðsla er tekin fyrir kirkjukrakka.
Umsjón með kirkjukrökkum í vetur hefur Guðjón Reynisson, æskulýðsleiðtogi.
Hægt er að skrá börnin í kirkjukrakka með því að senda tölvupóst á: gaujandri@
gmail.com. Taka þarf fram nafn, bekk og skóla barnsins.
T.T.T. æskulýðsstarf fyrir 10 til 12 ára
Í vetur mun Lágafellskirkja eins og undanfarin ár vera með starf fyrir krakka á
aldrinum 10 til 12 ára. Þann hóp höfum við kallað T.T.T.
T.T.T. er félagsskapur fyrir öll 10 til 12 ára börn sem langar til að eiga skemmtilegan
vetur saman.
T.T.T. fundirnir verða á fimmtudögum kl. 17:00 til kl.18:00. Þar munum við
skemmta okkur við margs konar leiki og verkefni.
Fundirnir verða í safnaðarheimilinu að Þverholti 3. 3.hæð. Umsjón með þessu starfi
hefur Guðjón Andri R. Reynisson, æskulýðsfulltrúi (gaujandri@gmail.com )
SunnudagaSKóLinn
Á hverjum sunnudegi yfir vetrartímann er sunnudagaskóli í Lágafellskirkju kl. 13:00.
Létt stund fyrir alla fjölskylduna. Þar syngjum við auðvitað öll skemmtilegu
sunnudagaskólalögin. Í vetur munum við einnig sjá myndbrot með þeim Hafdísi og
Klemma sem margir krakkar þekkja af dvd-diskunum „daginn í dag“. Öll börn fá
mynd með sér heim eftir hverja samveru. Umsjón með sunnudagaskólanum í vetur
hafa þeir Hreiðar Örn og Þórður, organisti.
Verið velkomin í sunnudagaskólann alla sunnudaga í vetur
Við hlökkum til að sjá ykkur!
Mosfellsbær óskar
eftir íbúðum til leigu
VirÐing jákVæÐni framsækni umhyggja
Bæjarstjórn Mosfellsbæjar hefur lýst yfir vilja sínum
til að leysa vanda fólks sem neyðst hefur til þess að
flýja heimaland sitt vegna ofsókna, með því að ganga til
samninga við velferðarráðuneytið um móttöku flótta-
manna frá Úganda.
Stefnt er að komu fólksins í lok janúar eða byrjun febrúar
nk. Af þessu tilefni óskar bæjarfélagið eftir að leigja fimm
íbúðir, fjórar tveggja herbergja og eina fjögurra til fimm
herbergja. Leigutíminn er tvö ár.
Frekari upplýsingar veita Una Dögg Evudóttir unadogg@mos.is,
Berglind Ósk B. Filippíudóttir bof@mos.is
og Unnur V. Ingólfsdóttir unnur@mos.is
www.mosfellingur.is - 11