Mosfellingur - 11.01.2018, Qupperneq 13

Mosfellingur - 11.01.2018, Qupperneq 13
Matarboxið er ný þjónusta fyrir fólk sem vill þægindi og tímasparnað við undirbúning máltíða fyrir fjölskylduna. Nýverið opnaði fyrirtækið Matarboxið í Desjamýri 1. Það eru þau Guðrún Helga Rúnarsdóttir og Sveinn Matthíasson sem eiga og reka Matarboxið. Matarboxið býður upp á heilsusamlegt, fjölbreytt gæðahráefni ásamt uppskriftum fyrir alla fjölskylduna sem raða má saman að óskum hvers og eins. „Minn grunnur er að ég er næringarráð- gjafi,“ segir Guðrún Helga. „Það sem ég hef rekið mig á þegar ég er að hjálpa fólki er að það er ekkert mál að segja því hvernig það á að borða. Vandamálið er að fara í búðina, kaupa inn ný hráefni og fara heim og elda. Matarboxið er einfalt, þú pantar, við tökum saman pöntunina og sendum þér heim að dyrum þér að kostnaðarlausu,“ segir Guðrún Helga. Hollur matur úr úrvals hráefni Á heimasíðunni matarboxid.is er að finna fjölbreytt úrval rétta sem fólk getur valið og fengið senda heim. Hægt er að velja fyrirfram ákveðin box eða velja sinn eigin matseðil. Hægt er að fá alla rétti fyrir annað hvort tvo eða fjóra einstaklinga. „Matarboxið er þjónusta fyrir fólk sem vill borða fjölbreyttari og hollari mat úr úrvals- hráefni, prófa nýja rétti, vill aukin þægindi og minnka matarsóun og kostnað. Fólk fær senda til sín þá rétti sem það velur, allt hráefni sem til þarf og uppskrift. Það sparar tímann að fara í búðina og notar hann frekar til að elda heima.“ Bjóða upp á fjölbreytt val „Við bjóðum upp á 10-15 rétti í hverri viku og skiptum út matseðlinum vikulega. Við setjum saman box með þremur réttum. Núna bjóðum við upp á Box vikunnar og Veganbox og ætlum svo að bæta við Lág- kolvetnaboxi fljótlega. Það sem okkur sýnist vera vinsælast hjá fólki er að blanda saman réttunum og jafn- vel taka mismunandi rétti fyrir fjölskyld- una. Það er hægt að panta hjá okkur og fá heimsent alla virka daga. Við opnuðum í desember og þetta hefur farið vel af stað, við erum opin fyrir öllum ábendingum. Við ætlum að mæta þörfum viðskiptavina okkar á sem bestan hátt,“ segir Guðrún Helga að lokum og bendir fólki á heimasíðuna þeirra þar sem allar upplýsingar að finna. Þverholt 2 I Mosfellsbær 270 I Sími 525 6700 I mos.is Umsóknarfrestur er til og með 8. nóvember 2017 Umsóknir ásamt starfsferilsskrá og kynningarbréfi sem greinir frá reynslu, menntun og fyrri störfum ásamt rökstuðningi fyrir hæfni í starfið skulu berast á netfangið mos@mos.is. Nánari upplýsingar um starfið veitir Jóhanna B. Hansen, framkvæmda-stjóri umhverfissviðs, í síma 525 6700. Um framtíðarstarf er að ræða. Öllum umsóknum verður svarað. Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands ísl. sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags. Við hvetjum fólk af báðum kynjum til að sækja um starfið. Vilt þú starfa sem byggingarfulltrúi hjá Mosfellsbæ? MOSFELLSBÆR ER ÖRT STÆKKANDI SVEITARFÉLAG ÞAR SEM ÁHUGAVERÐ VERKEFNI ERU DAGLEGT VIÐFANGSEFNI. ÞVÍ LEITUM VIÐ AÐ ÖFLUGUM BYGGINGARFULLTRÚA Í TEYMI OKKAR. Byggingarfulltrúi ber ábyrgð á framkvæmd opinbers byggingareftirlits í samræmi við gildandi lög (nr. 160/2010) og reglugerðir. Byggingarfulltrúi gefur út byggingarleyfi og hefur eftirlit með leyfisskyldum framkvæmdum og annast önnur verkefni sem kveðið er á um í mannvirkjalögum. Byggingarfulltrúi starfar á umhverfissviði og leiðir faglega þróun byggingarmála innan sviðsins. Helstu verkefni felast í samskiptum við hönnuði, verktaka og íbúa í tengslum við framkvæmdir í sveitarfélaginu. Þá annast byggingarfulltrúi útgáfu byggingarleyfa, yfirferð og samþykkt aðaluppdrátta, verkfræði- og séruppdrátta og útgáfu vottorða og skráningu mannvirkja. Mosfellsbær er öflugt og framsækið sveitarfélag þar sem gildin virðing, jákvæðni, framsækni og umhyggja eru leiðarljós starfsmanna í daglegu starfi. Menntunar- og hæfnikröfur:  Prófgráða í verkfræði, tæknifræði, arkitektúr eða byggingarfræði skilyrði  Framhaldsmenntun sem nýtist í starfi er æskileg  Að lágmarki fimm ára starfsreynsla skv. 25. gr. mannvirkjalaganna  Byggingarfulltrúi skal hafa löggildingu sem hönnuður sbr. 25. gr. mannvirkjalaga  Góð tölvukunnátta og þekking á forritum skilyrði  Góð þekking á lögum og reglugerðum tengdum byggingarleyfum er æskileg  Framúrskarandi samskiptahæfileikar eru nauðsynlegir  Hæfni til að tjá sig í rituðu og töluðu máli  Sjálfstæð, frumkvæði og öguð vinnubrögð eru nauðsynleg  Önnur skilyrði sbr. ákvæði mannvirkjalaga Varmárskóli leitar að öflugum starfsmönnum Varmárskóli er heildstæður grunnskóli sem vinnur í anda uppbyggingarstefnunnar. Skólastarfið er í þremur byggingum, yngri deild, eldri deild og Brúarlandi. Varmárskóli leggur upp með gildi Mosfellsbæjar sem eru virðing, jákvæðni, framsækni og umhyggja. Skólinn er staðsettur í náttúru- paradís og lögð er áhersla á nýtingu umhverfis í námi nemenda. Vegna forfalla vantar: • Sérkennara á elsta stigi • Grunnskólakennara á yngsta stig - hlutastarf • Þroskaþjálfi á elsta stigi • Skólaliði í hlutastarf á elsta stigi (m.a. gangavarsla og aðstoð í mötuneyti nemenda – ekki skúringar) • Stuðningsfulltrúar á elsta stigi (hlutastarf) • Matráður í mötuneytiseldhús frá og með 15. jan. (afleysing í 4 vikur) • Frístundaleiðbeinendur frá kl. 13-17 eða eftir sam omul gi Menntunar- og hæfnikröfur: • Menntun samkvæmt gildandi samningum, ef ekki fæst fólk með réttindi er annað skoðað • Frumkvæði, sjálfstæði og f glegur metnaður • Góð færni í samvinnu og samskiptum U sók arfrestur er til 19. janúar 2018 Frek i upplýsingar á heimasíðu Varmárskóla og á www.mos. s en einnig veitir Þórhildur Elfarsdóttir skólastýra í s:863-3297 nánari upplýsingar. Umsóknir ásamt starfsferilsskrá sem greinir frá reynslu, menntun og fyrri störfum skulu berast á netfangið thorhildur@varmarskoli.is. Umsóknir um frístundaleiðbein- endur veitir Ragnar Karl forstöðumaður frístundasels í netfang: ragnarkarl@ varmarskoli.is og í s: 693-6721. Öllum umsóknum verður svarað. Laun eru samkvæmt jarasam ingi Sambands ísl. sveitarfélaga og viðkoma di stéttar- félags. Við hvetjum fólk af báðum kynjum til að sækja um starfið. ALLT Á AÐ SELJAST – DÚNDUR VERÐ! Mikið úrval af bómullarbolum, microbolum og nærfatnaði á dömur, herra og börn. Dömubolir úr ull/silki og ull/bómull. Einnig úrval af kertastjökum, kristalsglösum, skartgripum, skjalatöskum, rafmagnsvörum, leikföngum, Tupperware vörum o.fl. Opið virka daga kl. 13-17. Opið laugardagana 13. jan. og 20. jan. kl. 12-16. Háholt 23, 270 Mosfellsbær Sími: 586 8050 / mirella@simnet.is / facebook.com/mirella.ehf HEILDVERSLUNIN MIRELLA LOKAR í Háholti 23, Mosfellsbæ 20. janúar Þægindi og tíma- sparnaður fyrir fjöl- skyldur Matarboxið hefur starfsemi í Desjamýri • Fjölbreytt úrval rétta sem sendir eru heim að dyrum • Val um 10-15 rétti sveinn matthíasson og guðrún helga rúnarsdóttir www.mosfellingur.is - 13

x

Mosfellingur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Mosfellingur
https://timarit.is/publication/1311

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.