Mosfellingur - 11.01.2018, Blaðsíða 14
Einn tveir og elda og knattspyrnudeild
Aftureldingar hafa gert með sér samning
um að Afturelding sjái um afhendingu á
tilbúnum matarkössum sem Einn tveir og
elda er að fara af stað með.
Allir þeir viðskiptavinir sem panta hjá
Einn tveir og elda og óska eftir að sækja
sína matarpakka til Aftureldingar styrkja
Aftureldingu í leiðinni um 5% af sölunni.
„Þetta þáttur okkar í því að styrkja íþrótta-
hreyfinguna í landinu,“ segir Jón Arnar
Guðbrandsson hjá Einn tveir og elda.
„Við hlökkum mikið til þessa samstarfs.
UMFA er eitt margra íþróttafélaga sem við
munum vinna með og er eitt þeirra þriggja
félaga sem verða með frá fyrsta degi.“
Afhending matarpakkanna fer fram í
Vallarhúsinu við Varmárvöll á milli kl. 16 og
19 mánudaga og þriðjudaga í hverri viku.
Þannig er komið til móts við óskir þeirra
fjölmörgu sem vilja sækja á afhendingar-
stað í sínu eigin hverfi.
Stjörnukokkar í gestahlutverki
Einn tveir og elda sendir á staðinn spenn-
andi uppskriftir að máltíðum og allt hráefni
sem þarf til eldamennskunna.
Áhersla er lögð á að bjóða besta fáanlega
hráefnið hverju sinni og fjölbreytilegar
uppskriftir, þar sem hollusta og bragð
verður í fyrirrúmi. Nánari upplýsingar er
að finna á einntveir.is þar sem hægt er að
panta þjónustu.
Auk girnilegra uppskrifta frá kokkum
Einn tveir og elda mun hópur stjörnukokka
útbúa sérstakar uppskriftir fyrir viðskipta-
vini. Þeirra á meðal eru Ragnar Freyr Ingv-
arsson (læknirinn í eldhúsinu), Jói Fel og
Gunnar Már Sigfússon, kenndur við lágkol-
vetna lífsstílinn. Þeir og fleiri munu bregða
sér í hlutverk gestakokka og útbúa sérstaka
helgarpakka, hver á sínu sérsviði.
Eftirspurnin á Íslandi fjórfaldast
Máltíðamarkaðurinn er í hröðum vexti
um allan heim. Ef horft er til þróunar í ná-
grannalöndunum má gera ráð fyrir því að
hér á landi muni markaðurinn fjórfaldast
að umfangi á næstu tveimur árum.
Þjónustan er einföld og þægileg í notkun,
hún sparar neytendum tíma og fyrirhöfn,
dregur úr matarsóun og er hagkvæmur kost-
ur fyrir fjölskyldur og einstaklinga. Aukin
netverslun almennings og aukinn áhugi á
matargerð ýtir enn frekar undir máltíða-
þjónustu af því tagi sem hér um ræðir.
- Fréttir úr bæjarfélaginu14
Litli skiptibókamarkaðurinn fer fram í
Bókasafni Mosfellsbæjar lau. 13. jan. kl. 14–16.
Börnum á aldrinum 6 – 12 ára er boðið að koma með gömlu
bækurnar sínar sem þau eru hætt að lesa og velja sér aðrar í staðinn.
Börnin fá afhentan miða með tölustaf sem gefur upp þann fjölda
bóka sem þau koma með, sýna svo miðann þegar þau eru búin að
velja sér bækur, og geta þá tekið jafn margar með sér heim.
Mikilvægt er að bækurnar séu vel með farnar og hreinar.
Markmiðið er að lengja líftíma bókanna, ýta undir áhuga barnanna
á bókum og þar með lestraráhuga.
Gott er að mæta tímanlega svo hægt sé að raða upp bókunum.
Hlökkum til að sjá ykkur sem flest!
Bókasafn Mosfellsbæjar
Litli skiptibókamarkaðurinn
2018
Einn tveir og elda og Afturelding gera með sér samning • Allt sem þarf til eldamennsku
Knattspyrnudeildin sér um
afhendingu á matarkössum
VirÐing jákVæÐni framsækni umhyggja
Mosfellsbær vekur athygli á því að
eftirspurn er eftir þjónustu dagforeldra
í sveitarfélaginu. Nú er því gott tækifæri
fyrir áhugasama einstaklinga til að
afla sér leyfis til að sinna daggæslu
barna í heimahúsi. Til að öðlast rétt-
indi sem dagforeldri þarf að sækja
sérstakt réttindanámskeið sem að öllu
jöfnu er haldið í febrúar. Mosfellsbær
styrkir umsækjendur sem sækja vilja
námskeiðið og gerast dagforeldri. Gott
samstarf er milli starfandi dagforeldra
og stuðningur við starfsemina af hálfu Mosfellsbæjar.
Sótt er um leyfið á heimasíðu Mosfellsbæjar / Íbúagátt, www.
mos.is og eftirfarandi gögn þurfa að fylgja með umsókninni:
1. Sakavottorð allra heimilismanna, 18 ára og eldri
2. Læknisvottorð heimilismanna
3. Meðmæli umsækjanda
Þegar umsókn hefur borist eru aðstæður á heimili skoðaðar
og gefin ráð um mögulegar betrumbætur á því húsnæði
sem ætlað er undir starfsemina.
Allar nánari upplýsingar veitir fræðslu- og
frístundasvið Mosfellsbæjar í síma 525 6700.
Einnig er hægt að senda póst á mos@mos.is
Vilt þú gerast
dagforeldri?
ásbjörn fyrir hönd knattspyrnudeildar
og jón arnór fyrir hönd einn tveir og elda
Stórtónleikar Rótarý voru haldnir í
Norðurljósasal Hörpu 7. janúar.
Þetta var í 21. sinn sem blásið var
til tónleika á vegum Rótarý. Tónlistar-
dagskráin hefur ávallt verið í flutningi
landskunnra listamanna en jafnframt
hafa ungir verðlaunahafar Tónlist-
arsjóðs Rótarý komið fram og vakið
verðskuldaða athygli sem leiðarstjörnur
hver á sínu sviði í tónlistarlífinu. Stuðn-
ingur Rótarý hefur komið þeim að góðu
gagni við öflun framhaldsmenntunar í
list sinni.
Umsjón í höndum Mosfellinga
Mosfellingurinn Knútur Óskarsson,
umdæmisstjóri, flutti ávarp við upphaf
tónleikanna en umsjón tónleikanna
að þessu sinni var alfarið í höndum
Stórtónleikar Rótarý í Hörpu • Rótarýklúbbur Mosfellssveitar hélt utan um dagskrána í ár
Styrkja tónlistarfólk til náms