Mosfellingur - 11.01.2018, Side 18

Mosfellingur - 11.01.2018, Side 18
Kraftlyftingamaður Mosfellsbæjar Kraftlyftingamaður ársins er Bjarni Páll Pálsson. Hann setti tvö Íslandsmet í réttstöðulyftu á árinu í 74 kg flokki, 235,5 kg. Bjarni á bæði Íslandsmetin með og án búnaðar. Bjarni er einn fremsti spretthlaupari landsins en hefur náð undraverðum árangri á skömmum tíma og hefur alla burði til að geta náð gríðarlega langt í kraftlyftingum. Bjarni hefur áhuga á að fara á fullum krafti í kraftlyftingarnar og bæti sig í hnébeygjum og bekkpressu. Hann er þegar fremstur meðal jafningja í réttstöðulyftu. Ljóst er að Bjarna bíður björt framtíð ákveði hann að einbeita sér að fullu að kraftlyftingum. Bjarni Páll Pálsson kraftlyftingar Íþróttamaður Golfklúbbs Mosfellsbæjar Björn Óskar Guðjónsson verður 21 árs á árinu. Hann hóf nám við University of Lafayette í Louisiana-fylki síðasta haust þar sem hann leikur með golfliði skólans í bandaríska háskólagolfinu. Björn átti mjög gott keppnissumar hér á landi og hefur farið vel af stað í háskólagolfinu. Hann lék glæsilegt golf á meistaramóti GM þar sem hann lék á átta höggum undir pari. Hann var lykilmaður í liði GM á Íslandsmóti golfklúbba þar sem hann vann alla sína leiki en sveit GM hafnaði í 3. sæti í efstu deild. Björn var einnig í karlalandsliðinu í golfi árið 2017 og er því frábær fulltrúi Mosfellsbæjar í golfíþróttinni. Hann er afar skipulagður og eyðir miklum tíma í æfingar, bæði á sumrin og veturna. Björn Óskar er sér og klúbbnum til sóma. Björn Óskar Guðjónsson golf Sundmaður Aftureldingar Arnór er 16 ára og hefur æft sund með UMFA í 10 ár. Helstu afrek Arnórs á árinu voru að ná lágmörkum og keppa á Aldursflokkameistaramótinu (AMÍ) í júní. Hann keppti í flokki 15-16 ára og endaði í 15. sæti í 100 m bak og 11.sæti í 100 m bringusundi. Arnór náði einnig lágmarki og keppti á Íslandsmeistaramótinu í 25 m laug (ÍM25) í nóvember. Hann hefur bætt sig mikið á árinu í öllum sundum enda æfir hann 8 sinnum í viku, þar af 6 sinnum í lauginni og 2 þrekæfingar. Arnór Róbertsson sund Knattspyrnumaður Aftureldingar Arnór Breki er fæddur árið 1998 og er 19 ára gamall. Þrátt fyrir ungan aldur er Arnór að ljúka sinni fjórðu leiktíð í meistaraflokki Aftureldingar. Hann hefur spilað 56 leiki með Aftur- eldingu í 2. deildinni og bikarkeppni og skorað 5 mörk. Hann á að baki 5 leiki með U17 ára landsliði Íslands. Arnór er vinstri bakvörður og var algjör lykilmaður í liði Aftureldingar í 2. deild karla í sumar. Hann er einnig frábær fyrirmynd fyrir yngri iðkendur. Arnór mætir 100% á allar æfingar og mætir einnig á aukaæfingar. Hann gefur gefið mikið af sér fyrir félagið og hefur þjálfað yngri flokka félagsins. Arnór Breki samdi í vetur við Fjölni sem leikur í Pepsi-deildinni. Hann mun því leika meðal þeirra bestu á Íslandi á næstu leiktíð. Hann er metnaðarfullur og kappsamur við að ná markmiðum sínum. Arnór Breki Ásþórsson knattspyrna Íþróttamaður blakdeildar Aftureldingar Alexander Stefánsson er fæddur árið 1990 og því 27 ára gamall. Hann hefur verið fastamaður í íslenska landsliðinu í mörg ár og á að baki landsleiki bæði í A landsliði sem og í unglingalands- liðum Íslands. Alexander kom til liðs við karlalið Aftureldingar í blaki í janúar 2017 og átti stóran þátt í fyrsta bikarmeistaratitli félagsins á árinu. Alexander var fyrirliði íslenska lands- liðsins þegar liðið vann til bronsverð- launa á Evrópumóti smáþjóða. Einnig spilaði hann með landsliðinu í 2. um- ferð undankeppni fyrir HM í Frakklandi í maí og á Smáþjóðaleikunum í San Marino í sumar. Alexender Stefánsson blak Íþróttamaður taekwondodeildar Aftureldingar Arnar er reynslumesti taekwondomað- ur landsins og hefur keppt í rúmlega aldarfjórðung í hópi þeirra bestu. Hann er yfirþjálfari deildarinnar hjá Aftureldingu, og hefur æft við deildina undanfarin 8 ár og verið ómetanlegur í uppbyggingu hennar. Arnar vann til gullverðlauna á Opna bandaríska meistaramótinu í taekwondo í janúar í öldungaflokki, en það mót er eitt það sterkasta í heiminum. Í vor gerði hann sér svo lítið fyrir og vann til silfurverð- launa á Evrópumóti öldunga. Þess má geta að í þessari íþrótt teljast menn öldungar þegar 35 ára aldri er náð og er öldungaflokkurinn því gríðarlega sterkur á stórum mótum sem þessum. Auk þess að vera yfirþjálfari deildar- innar hjá Aftureldingu hefur hann tekið að sér að vera yfirþjálfari deildanna hjá Fram og ÍR. Arnar Bragason taekwondo

x

Mosfellingur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Mosfellingur
https://timarit.is/publication/1311

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.