Mosfellingur - 11.01.2018, Blaðsíða 21
Útnefning á íþróttakarli
og íþróttakonu
Mosfellsbæjar 2017
Kynning á íþróttakonum sem tilnefndar eru
vegna kjörs til íþróttakonu Mosfellsbæjar
2017, og afrekum þeirra á árinu.
Kosning
á www.Mos.is
Fimleikakona Aftureldingar
Mia er á 17. ári og hóf æfingar hjá
Fimleikadeild Aftureldingar haustið
2014. Ferill hennar í fimleikum er því
ekki langur en með samviskusemi,
jákvæðni og keppnisskapi hefur hún
náð ótrúlegum árangri. Hún æfir með
keppnishópi 12 klst. á viku. Hún sýnir
sanngirni, er til staðar fyrir liðsfélaga,
leggur mikinn metnað í æfingar og að
liðið geri sitt besta. Hún er að keppa
með nokkur af erfiðustu stökkum hóps-
ins og er þekkt fyrir fágaða og fallega
framkomu á dansgólfinu.
Flokkurinn hennar vann til gullverð-
launa á vorönn og lenti í 3. sæti á
haustmóti. Mia var valin í úrvalshóp
Evrópumótsins í hópfimleikum 2018.
Mia Viktorsdóttir fimleikar
Íþróttakona blakdeildar
Aftureldingar
Thelma Dögg er fyrsti atvinnumaður
sem Mosfellsbær eignast í blaki og er
frábær íþróttakona og til mikils sóma
jafnt utan vallar sem innan. Thelma
Dögg er fædd árið 1997.
Afrek ársins 2017:
• 2.sæti í Mizunodeild kvenna
• 2.sæti á Íslandsmóti kvenna
• Bikarmeistari 2017
• Stigameistari í strandblaki 2017
• Lykilmanneskja í íslenska landsliðinu
• 1. sæti á móti á Ítalíu og stigahæsti
leikmaður mótsins með landsliðinu.
• Evrópumeistari smáþjóða í júní 2017
• Blakkona ársins 2017
• Stigahæsti leikmaður VBC Galina
Thelma Dögg grétarsdóttir blak
Íþróttakona handknattleiks-
deildar Aftureldingar
Þóra María er fædd árið 2000 og þrátt
fyrir ungan aldur hefur hún verið
lykilleikmaður meistaraflokks kvenna
undanfarin ár sem leikstjórnandi. Hún
hefur tekið miklum framförum á þessu
ári og bætt sig í bæði vörn og sókn.
Þóra hefur verið valin í lokahóp allra
unglingalandsliða frá því hún náði aldri
til og spilað á mörgum alþjóðlegum
mótum. Síðasta sumar keppti hún á EM
í Makedóníu þar sem liðið endaði í 6.
sæti. Einnig spilaði liðið vináttulands-
leik við Pólland þar sem Þóra María var
valin maður leiksins. Hún var nýlega
valin í U20 ára kvennalandslið Íslands
þrátt fyrir að vera aðeins 17 ára.
Þóra María sigurjónsdóttir handknattleikur
Knattspyrnukona
Aftureldingar
Sigrún Gunndís Harðardóttir er fædd
árið 1996 á Ísafirði, hún gekk til liðs við
Aftureldingu undir lok árs 2016. Hún
var máttarstólpi í sterku liði Aftureld-
ingar sem gjörsigraði 2. deild kvenna
í sumar. Sigrún lék stöðu miðjumanns
og skoraði 8 mörk í 16 leikjum og þar af
eitt af mörkum sumarsins.
Sigrún Gunndís er mikill leiðtogi innan
sem utan vallar og hefur sannað sig
sem frábær fyrirmynd fyrir yngri
iðkendur félagsins. Hún kom t.a.m. inn
í þjálfun hjá félaginu um leið og hún
gekk til liðs við félagið og hefur þjálfað
yngstu kvennaflokka félagsins við
góðan orðstír.
sigrún gunndís Harðardóttir knattspyrna
Íþróttakona taekwondodeildar
Aftureldingar
María Guðrún Sveinbjörnsdóttir hefur
náð undraverðum árangri í taekwondo
á þeim 7 árum sem hún hefur æft
íþróttina. Nú í desember þreytti hún
próf fyrir 2. dan í greininni. María Guð-
rún hefur verið um nokkurra missera
skeið burðarás í landsliði Íslands í
formum (poomsae). Hún hefur keppt
bæði hérlendis sem erlendis við góðan
orðstír og lendir yfirleitt í verðlauna-
sæti á öllum þeim mótum sem hún
keppir á. María Guðrún var nú í lok
desember valin taekwondokona ársins
af Taekwondosambandi Íslands og er
hún fyrsti iðkandinn frá taekwondodeild
Aftureldingar sem hlotnast sá heiður.
María guðrún sveinbjörnsdóttir taekwondo
Kosning fer fram á vef Mosfellsbæjar www.mos.is dagana
11. - 15. janúar. Velja skal karl í 1., 2. og 3. sæti sem og
konu í 1., 2. og 3. sæti. Kosningin er ekki gild nema valið
sé í öll þrjú sætin. Úrslit verða kynnt fimmtudaginn
18. janúar kl. 19 í Íþróttamiðstöðinni að Varmá.