Mosfellingur - 11.01.2018, Page 29

Mosfellingur - 11.01.2018, Page 29
Talsvert rusl fellur til um áramót þegar landsmenn kveikja í mörgum tonnum af flugeldum, skottertum og blysum. Það er algeng sjón að sjá flugeldaleifar, brunnar skottertur, spýtur og prik á víð og dreif um bæinn nú í upphafi árs sem er ekki mikil bæjarprýði. Það flugeldarusl sem ekki er fjarlægt og komið til förgunar grotnar niður og verður að lokum að drullu og sóðaskap. Því vilja bæjaryfirvöld biðla til íbúa og fyrirtækja í bænum að huga að nærum- hverfi sínu og taka höndum saman við að hreinsa upp eftir áramótagleðina og koma til förgunar. Margar hendur vinna létt verk. Athuga þarf þó að umbúðir og leifar af flugeldum mega ekki fara í bláu pappírs- tunnuna, heldur þarf að setja í almennt sorp. Þó svo að flugeldar séu úr pappa, þá situr eftir í þeim leir sem gerir það að verkum að pappinn sem eftir verður er ekki hæfur til endurvinnslu. Best er að skila umbúðum og leifum af flugeldum og skottertum í almennt rusl á endurvinnslu- stöð SORPU við Blíðubakka. Ósprungnum flugeldum og skottertum sem þarf að farga ber að skila í spilliefnagáminn á endur- vinnslustöðvum SORPU. Sýnum gott fordæmi og hjálpumst að við að hreinsa upp eftir áramótin. Umhverfissvið Mosfellsbæjar Hreinsum til eftir áramótin Nú þegar árið 2018 er gengið í garð er verið að brýna fyrir öllum að minnka plastnotkun inn á heim- ilum. Minn draumur er sá að Mosfells- bær fari alla leið í flokkun á sorpi því þetta er jú það sem koma skal og ekki mun umfang sorps minnka miðað við að íbúum bæjarins fjölg- ar, sem og íbúum landsins alls. Kröfur hafa verið að aukast um flokkun almennt og þurfum við að gera enn betur í þessum málum, við gætum byrjað að flokka allt sorp, plast og allan lífrænan úrgang, einnig allt gler ásamt öðru end- urvinnanlegu sorpi. Við ættum að taka til fyrirmyndar önnur bæjarfélög sem hafa stigið þetta skref til fulls og kynna okkur hvernig þau haga flokkuninni og fengið upplýsingar um hverjir séu helstu kostirnir við flokkun. Það þarf ekki alltaf að finna upp hjólið, nýtum okkur frekar reynslu og þekkingu í þessum málum hjá öðrum sveit- arfélögum. Mosfellsbær er nú þegar byrjað- ur að huga að aukinni sorpflokk- un með því að hafa tvær sorptunnur við hvert hús, gráa fyrir almennt sorp og bláa fyrir pappírsúrgang svo sem tímarit, fernur, eggjabakka og bylgjupappa. Grenndar- gámar eru á nokkrum stöðum hér í Mos- fellsbæ sem hægt er að nýta. Ég hvet svo alla hér í Mosfellsbæ að flokka. Kristín Ýr Pálmarsdóttir. Sækist eftir 5.-9. sæti í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins þann 10. febrúar. Hver er framtíðin í flokkun á sorpi? Árið var sérstaklega tileinkað lífs- gæðum þar sem horft var til allra áhersluþátta heilsueflandi samfé- lags, þ.e. næringar og mataræðis, hreyfingar og útivistar auk geð- ræktar og vellíðunar. Gulrótin 2017 Heilsudagurinn var haldinn í júní sl. og hófst að venju með hressandi morgungöngu á Mosfell í samstarfi við Ferðafélag Íslands. Einnig var blásið til glæsilegs málþings í FMOS þar við heyrðum m.a. af mörgum flottum verkefnum í skól- um bæjarins, skyggðumst á bak við tjöldin á EM með Þorgrími Þráinssyni og urðum margs vísari um mikilvægi einstaklingsins í sterkri liðsheild. Síðast en ekki síst var Gulrótin, lýðheilsu- viðurkenning Mosfellsbæjar, afhent í fyrsta sinn. Verðlaunahafinn að þessu sinni var Svava Ýr Baldvinsdóttir, íþróttakennari, en hún hefur í áratugi eflt lýðheilsu og heilsu- eflingu allra aldurshópa í Mosfellsbæ. Stekkjarflöt og strandblakvöllur Þetta skemmtilega útivistarsvæði okkar Mosfellinga hefur heldur betur fengið andlitslyftingu og er sannkölluð útivistar- paradís fyrir fjölskylduna. Í þessu fallega umhverfi er að finna skemmtileg leiktæki, grill og nýjasta viðbótin er strandblakvöll- ur sem hefur notið mikilla vinsælla. Við hvetjum alla til að koma út að leika og nýta það sem þetta frábæra svæði hefur upp á að bjóða. Hreyfivika UMFÍ Við tókum að sjálfsögðu þátt í þessu verkefni eins og síðustu ár og það er skemmst frá því að segja að dag- skráin var stórglæsileg, mun fleiri stóðu fyrir viðburðum og þátttakan hefur aldrei verið betri. Við stefnum að sjálfsögðu enn hærra að ári. Upplýst börn Í haust gáfu Heilsuvin og Mosfellsbær í samvinnu við TM öllum nemendum í 1. og 2. bekk í grunnskólum Mosfellsbæjar endurskinsvesti til eignar. Vestin voru afhent í tengslum við verkefnið Göngum í skólann og eru mikilvægur liður í öryggismálum yngstu grunnskólanemend- anna sem eru að byrja að ganga, hjóla eða ferðast á annan virkan hátt í skólann. Lýðheilsugöngur FÍ Ferðafélag Íslands stóð fyrir Lýðheilsu- göngum á landsvísu alla miðvikudaga í september og gengið var á tveimur stöðum í Mosfellsbæ undir leiðsögn heimamanna, úr Álafosskvos og upp á Úlfarsfell úr Hamrahlíðarskóginum. Óhætt er að segja að Mosfellingar hafi hafi tekið þessu framtaki vel og fór þátt- taka fram úr björtustu vonum enda margir göngugarpar í heilsubænum Mosfellsbæ. Þetta er eingöngu hluti af því sem var gert á árinu og við hlökkum til þess sem árið 2018 ber í skauti sér. Við þökkum ykkur fyrir frábært samstarf og velvilja og óskum ykkur heilbrigði og gleði á nýju ári. Ólöf Kristín Sívertsen, lýðheilsufræðingur og verkefnisstjóri Heilsueflandi samfélags í Mosfellsbæ Litið yfir heilsuárið 2017 Þegar líður að kosningum verður eitt aðal umræðuefni kaffistofa og annarra starfsmannasvæða hin alræmda forgangsröðun. Almennt er talið mikilvægast að menntun, tómstundir og laun gangi fyrir en nú virðist þó svo vera að Mosfellsbæ sé mikilvægast að taka þátt í samgönguverkefni sem eng- inn getur með neinni vissu sagt fyrir hvað muni kosta. Þetta er svokölluð Borgar-lína sem margir fremur kalla Dag(s)drauma. Falleg lausreimuð plön ganga út á 1,1 til 1,15 milljarða á km og þannig 63 til 70 ma. Þrátt fyrir það kemur fram í skýrslu Reykjavíkurborgar og Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu (SSH) „Borgarlína, hlutverk, hvað, hvar hvernig“ að fyrstu 18 km muni kosta 30-65 ma. (bls. 30 í skýrsl- unni). Hinir 39 km hljóta þá að vera nánast fríir, jafnvel borga með sér. Raunhæfara væri að taka meðaltal af útgildum fyrstu 18 km og ætla þá að hver km kosti 2,64 ma. og 57 km verkefnið þá um 150,4 ma. Þar með er þó ekki öll sagan sögð. „Planið“ gengur nefnilega út á að hækka notkun almenningssamgangna úr 4% í 12% auk þess að minnka bílaumferð um 75>58%. Slíkt er vart raunhæft m.v. að notkun almenningssamgangna hefur að- eins einu sinni skriðið yfir 4% og það var á fyrstu mánuðunum eftir Hrun sem notk- unin slefaði í 5%. Hvert 1% sem upp á 12% notkun vantar kostar um hálfan milljarð á ári í „töpuð fargjöld“ og þar af Mosfellsbæ allt að 20 milljónir á ári á hvert 1% sem geta verið allt að 6. Til 2040, áætlaðra verkloka, myndi slíkt teljast til 66 milljarða á gengi dagsins í dag hvar alls gætu fallið á Mosfellsbæ 2,7 milljarðar. 150 milljarða framkvæmd, 25 ma. frá ríkinu, 66 milljarða reikn- ingsskekkja, 4,1% hlutur Mosfells- bæjar (hlutfall af rekstri Strætó). 125 + 66 = 191 x 0,041 = 7,83 milljarðar. Það allra skrýtnasta er þó ekki nefnt. Forsendur Borgarlínu eru nefnilega að horfið sé frá nokkrum framkvæmdum mislægra gatnamóta. Þar m.a. er horfið frá mislægum gatnamótum Vesturlandsvegar og Korpúlfsstaðabrautar. Nákvæmlega þau gatnamót eru ein af forsendunum fyrir því að Mosfellsbær geti tengst Borgarlínu beint. Einu gleyma allir aðilar. Það er stefna Reykjavíkurborgar að eyðileggja flugvöllinn í Vatnsmýri. Þarf þá Borgarlína ekki að ná a.m.k. í vallarstæði nýrra plana í Hvassa- hrauni? Ef svo er hækkar kostnaðurinn um 10% hið minnsta. Hluti Mosfellsbæjar þá 8,6 milljarðar. 8 þúsund og sex hundruð milljónir. Um 850 þúsund á hvern einstakling í bænum. 3,44 milljónir á vísitölufjölskylduna. Helmingur fjárútláta er 2018-2022 eða allt að 4,3 milljarðar. Slíkt er um 20% ætl- aðra útsvars- og fasteignaskatttekna kjör- tímabilið 2018-2022. Að láni á 5% vöxtum er afborgunin 215 milljónir á ári. Það er því til lítils að ætla að prumpa út milljónum í kosningaloforð 2018 um „lækkanir“ ef að skuldir bæjarins hækka um meira um meira en sem þeim nemur vegna dag(s)draumaverkefna. Óskar Guðmundsson Greinarhöfundur er formaður Framsóknarfélags Mosfellsbæjar. Dreymir Mos-Sjalla Dag(s)drauma? Nýtt ár er runnið upp og fram undan eru ný tækifæri. Láttu vaða á þessu ári, náðu árangri, auktu hæfni þína. Hvað þarft þú að gera til að ná markmiðum þínum? Í Powertalk-deildinni Korpu hefur fólk komið og aukið sjálfstraust sitt, bætt sam- skiptahæfni sína og almennt stigið út fyrir þægindahringinn sinn. Vissir þú að til að fólk heyri það sem þú vilt koma á framfæri, þá skipta svipbrigði þín og líkamstjáning jafn miklu máli og það sem þú segir? Æfingin skapar meistarann og með því að fá þjálfun í framkomu, bæta markvisst beitingu raddar, framburð og tónhæð nærðu frekar athygli fólks. Að vera meðvitaður um handahreyfingar og svip- brigði gerir kynningu enn áhrifaríkari. Þjálfun í framkomu og samskiptum er mikilvæg. Hún leiðir til þess að fólk tekur frekar að sér verkefni, lærir hvernig kynningar verða áhrifaríkari og tjáir sig á fundum, t.d. foreldrafundum eða vinnu- fundum. Nú er nýtt ár fram undan og ný tækifæri bíða. Tími til að stíga fyrsta skrefið. Hvern- ig viltu bæta þig á nýju ári? Hvaða árangri viltu ná? Í Korpu hefur fólk víkkað þægindahring- inn sinn, náð árangri í að tala fyrir framan hóp, fengið kjark til að taka meiri áhættu, sett sér markmið og náð þeim. Upplýsingar um starfið má finna á powertalk.is. Allir eru velkomnir á fundi deildarinnar og verður næsti fundur miðvikudaginn 17. janúar klukkan 20:00 í Safnaðarheimili Lágafellssóknar, Þverholti 3 á 2. hæð. POWERtalk deild Korpu Nýtt ár - ný tækifæri frá jólafundi korpu Aðsendar greinar - 29

x

Mosfellingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Mosfellingur
https://timarit.is/publication/1311

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.