Mosfellingur - 11.01.2018, Side 30

Mosfellingur - 11.01.2018, Side 30
Ein á viku Við hjónin ákváðum yfir hátíð-arnar að fara með fjölskylduna í eina fjallgöngu á viku árið 2018. Fell telja líka með, sem er praktískt þegar maður býr í Mosfellsbæ. Ástæðan fyrir ákvörðuninni var sú okkur fannst vanta aðeins meiri samverustundir, utandyra, með yngstu guttunum okkar. Við vorum dugleg í fjallaferðum með elstu syni okkar en áttuðum okkur á því að þeir yngri, sérstaklega sá yngsti, hafa fengið minni skammt en hinir. Það var alls ekki meðvitað og kom okkur eiginlega á óvart þegar við gerðum okkur grein fyrir þessu. Þetta bara gerðist, að við fækkuðum útivistarferðunum. Líklega vegna þess að það er margt í gangi hjá okkur og dagarnir þéttskipaðir. En það er engin afsökun fyrir því að nýta ekki þessa frábæru náttúru sem við höfum svo góðan aðgang að. Í gær gengum við á Lágafell. Í fyrsta skipti! Það er ótrúlegt eftir að hafa búið í næstum 18 ár í Mosfellsbæ. Það hefur bara einhvern veginn ekkert togað okkur upp á Lágafellið. Við hófum gönguna í Krikahverf- inu, fórum upp göngustíg sem liggur frá Litlakrika. Þaðan í roki, hálku og stundum rigningu upp á Lágafellið. Við fundum góðan snjó, gerðum skakkan snjókarl og nutum útsýnisins þegar við vorum komin á toppinn. Útsýnið af Lágafellinu er betra en maður gerir ráð fyrir. Síðan fórum við niður við Olíshringtorgið, komum við í bakaríinu til að ná okkur í munkabrauð og röltum svo í rólegheitum þaðan yfir brúna í Krikahverfið til að ná í bílinn. Miklum rólegheitum verður að segjast, það var mjög hált og við lengi að koma okkur á milli staða. Allt í allt tók þetta um 2 klukkustundir. Komum hundblaut en katthress heim eftir góða samveru- stund í hressandi vetrarveðri í mosfellskri náttúru. Nú er bara að láta sig hlakka til næstu fjalla- eða fellagöngu. Þetta verður gott ár! HEilsumolar Gaua Guðjón Svansson gudjon@kettlebells.is - Heilsa30 VölVa Mosfellings 20 18 völvan veldur lesendum vonbrigðum Blaðamaður Mosfellings var búin að mæla sér mót við Völvuna en Völvan afboðaði sig á síðustu stundu vegna veikinda. Ekki er vitað hvað hrjáir Völvuna, hvort að það sé kosningaskjálfti, stress eða alræmd inflúensa. Völvan vonar þó að geta séð sér fært að mæta á Þorrablót Aftureldingar og á sér þann draum heitastan að ná dansi við hinn þjóðþekkta huldumann Indriða Indriðason. Völvan biður fyrir góðar kveðjur og vonar að árið 2018 verði öllum Mosfellingum farsælt og hamingjuríkt.

x

Mosfellingur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Mosfellingur
https://timarit.is/publication/1311

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.