Mosfellingur - 11.01.2018, Qupperneq 32
Opnum fyrir
tækifærunum!
Djöfull fannst mér 2017 vera drulluerfi
tt
ár! En VÁ hvað það var lærdómsríkt!!!
Þetta var klárlega erfiðasta ár sem ég
hef upplifað hingað til og ég VEIT af
öllu mínu hjarta að 2018 er upphafið á
nýjum stórkostlegum kafla í lífi mínu o
g
í samfélaginu sem heild.
Ég er komin með ógeð á því að hafa
ekki nógu mikla trú á sjálfri mér. Ég er
komin með ógeð á því að líða skort. Ég
er komin með ógeð á því að bíða eftir a
ð
draumurinn minn detti upp í hendurn
ar
mínar. Ég er búin að vera að vinna að þ
ví
hörðum höndum að af-læra og gleyma
öllu sem mér hefur verið kennt um lífi
ð
og um sjálfa mig, hvernig ég eigi að
vera og hvað ég eigi að gera. Hvað lífið
sé erfitt og hvaða leið ég þarf að fara í
samfélaginu til þess að öðlast velgengn
i.
Helsti galli mannkynsins er nefnilega s
á
að við höldum að við vitum svo mikið!
Þar af leiðandi erum við ekki eins
móttækileg fyrir nýjum hugmyndum,
fróðleik og tækifærum. Við sjáum ekki
sannleikann því við höldum að við vit-
um nú þegar hvað sé satt. Við sjáum ek
ki
tækifærin því við höldum að við vitum
að þau séu ekki í boði fyrir okkur, vegn
a
þess að við erum „of mikið svona og ek
ki
nógu mikið hinsegin“... svo sönnum vi
ð
það fyrir sjálfum okkur og öðrum með
því að benda á fortíðina okkar og segja
:
„Sko! Þetta gerist alltaf fyrir mig“ eða
„Sjáðu! Þetta er aldrei í boði fyrir mig.“
Við þurfum að gleyma þessu BULLI!
Spyrjum nýrra spurninga til þess að
opna hugann okkar með því að hlusta
eftir svarinu frá hjartanu. Í stað þess að
spyrja: „Af hverju er lífið svona erfitt o
g
ósanngjarnt og af hverju get ég ekki...?
“
spyrjum þá: „Hvernig langar mér að lí
ða
og hvaða hæfileika get ég notað til þess
að öðlast lífsfyllingu og velgengni?“
Ef við spyrjum okkur alltaf sömu
spurninganna og breytum engu við þa
ð
hvernig við hugsum, þá breytist ekki
NEITT í lífinu okkar. Nýjar meðvitaðar
,
hugvíkkandi spurningar kalla á nýjar
og betri hugsanir... sérstaklega ef við
biðjum hjartað um svar en ekki gömlu
hugsanamynstrin, sem kunna bara að
færa okkur sönnunargögn úr fortíðinn
i.
Við viljum ekki skapa fortíðina aftur
er það? Hættum þá að fylla núið okkar
af forrtíðardraugum! Því það sem þú
hugsar og gerir NÚNA er það sem skap
ar
framtíðina þína. HALLÓ 2018!!!!
svanhildur
steinarrsdóttir
Í eldhúsinu
Alda Steingrímsdóttir og Þröstur Sigur-
jónsson í Stórateig deila hér með okkur
partýrétti sem er vinsæll á þeirra heimili.
Kjúklinga-partýréttur
Léttsteiktar kjúklingalundir kryddaðar með
kjöt- og grillkryddi.
Settar í eldfast mót og smurðar með þriggja
lita pesto (fæst í Hagkaup), helli svo rjóma
yfir og set ofan á það fetaost (ekki safann)
og döðlur smátt skornar yfir fetaostinn
Borið fram með súrdeigsbrauði og fersku
salati. Algjört möst að drekka
með þessu ískalt hvítvín :)
Alda og Þröstur skora á Birnu og Sibba að deila næstu uppskrift með Mosfellingum
hjá Öldu og þresti
Kjúklinga-partýréttur
- Heyrst hefur...32
heyrst hefur...
...að Greta Salóme hafi fengið bónorð
á Taílandi frá kærastanum sínum
Elvari Þór.
...að heildverslunin Mirella sé að loka
og standi fyrir mikilli lagersölu í
Háholti 23 en til stendur að rífa húsið
á næstunni.
...að víkingasveitin hafi mætt í Mosó
með byssur og grímur á mánudag-
inn. Fyrst fóru þeir þó mannavillt
og héldu saklausum borgara í 20
mínútur fyrir utan Krónuna.
...að Kári Tryggvason hafi verið
endurkjörinn formaður Golfklúbbs
Mosfellsbæjar.
...að óperusöngvarinn Davíð Ólafs
íhugi framboð fyrir Sjálfstæðisflokk-
inn í Mosó.
...að Mosfellsbakarí sé loks komið á
Facebook og það með miklu trukki.
...að lögreglan lýsi eftir vitnum eftir að
bærinn Stardalur, ofan Mosfellsdals,
brann til kaldra kola.
...að okkar besti handboltamaður,
Elvar Ásgeirs, hafi fótbrotnað þegar
handknattleiksdeildin var að safna
jólatrjám Mosfellinga og verði frá
næstu mánuðina.
...að strætó sé nú farinn að ganga
í bæði Leirvogstungu- og
Helgafellshverfi.
...að á föstudag fari fram forsala
og borðapantanir á risaþorrablót
Aftureldingar sem haldið verður í
íþróttahúsinu 20. janúar.
...að björgunarsveitin á Kjalarnesi
hafi ekki staðið fyrir flugeldasölu
þetta árið til að minnka álag á
mannskapnum.
...að kylfingurinn Kristján Þór
sé þrítugur í dag.
...að Halla og Keli séu að fara byggja í
Bröttuhlíð.
...að FMOS hafi tapað fyrir Versló í
fyrstu umferð Gettu betur sem fram
fór í vikunni.
...að Toppmaður UMFUS hafi verið
valinn Raggi kokkur Sverrisson.
...að Þorrablót Dalbúa verði haldið
27. janúar og hefur Blúsband Þorkels
Jóelssonar boðað komu sína.
...að fyrsti Mosfellingur ársins hafi
komið í heiminn strax á nýársdag.
...að Kjósverjar hafi ákveðið að vera
ekki með neina flugeldasýningu á
þrettándabrennunni þetta árið eftir
mikinn trylling á nýársnótt með
tilheyrandi áhrifum á skepnurnar.
...að Jóndi og Stefanía ætli að gifta sig
í sumar.
...að nýtt hanamál sé komið upp
í Reykjahverfi. Nú tengist það
brunahana.
...að forsetinn hafi sótt sér tré í Hamra-
hlíðarskóg fyrir jólin en hann fékk
gjafabréf frá skógræktarfélaginu á
30 ára afmæli bæjarins í sumar.
...að Davíð Gunnlaugs og Eyrún eigi
von á strák í vor.
...að Lotta verði fertug um helgina.
mosfellingur@mosfellingur.is
Þann 1. janúar kl. 15:37 fæddist fyrsti Mosfellingur ársins 2018 á Landspítalanum.
Það var stúlka sem mældist 3.502 gr og 50 cm. Foreldrar hennar eru Arnannguaq
Hammeken og Maciek Kaminski og búa þau í Skeljatanga 39.
Stúlkan er fyrsta barn foreldra sinna en þau fluttu nýverið í Mosfellsbæinn og líkar
vel. „Hún átti að koma í heiminn 27. desember en kom mjög snögglega fyrsta daginn
á nýju ári. Allt gekk mjög vel og hún er vær og góð, drekkur bara og sefur,“ segir
Arnannguaq sem kemur frá Grænlandi en Maciek kemur frá Póllandi. Mosfellingur
óskar fjölskyldunni til hamingju með stúlkuna.
Fyrsti Mosfellingur ársins 2018 býr í Skeljatanga
Kom í heiminn 1. janúar
stúlkan kom í heiminn
kl. 15:37 á nýársdag