Mosfellingur - 29.11.2018, Síða 10
Í haust var hleypt af stokkunum 12 vikna tilraunaverkefni
sem byggir á samstarfi FaMos, Mosfellsbæjar og World
Class. Um er að ræða leikfiminámskeið fyrir 67 ára og eldri
sem fram fer í World Class í Lágafellslaug.
Mosfellsbær er heilsueflandi samfélag og lögð hefur
verið áhersla á að auðvelda eldri borgurum að stunda
hreyfingu og er þetta verkefni einn liður í því. Það eru þær
Halla Karen Kristjánsdóttir og Sigrún Björg Ingvadóttir
sem kenna á námskeiðinu. Æfingar fara fram tvisvar í viku,
klukkutíma í senn.
„Það vill enginn missa af tíma”
„Þetta er nú með því skemmtilegra sem við höfum gert.
Hóparnir eru frábærir og við erum með fjölbreytta og
skemmtilega tíma,“ segir Halla Karen.
Við sjáum og fólkið finnur mikin mun á sér á þessum vik-
um sem liðnar eru frá því við byrjuðum. Ekki bara í styrk-
leika því við erum að líka að efla þolið, liðleika og jafnvægi.
Það eru 20 manns í hvorum hóp og það má eiginlega segja
að það sé alltaf toppmæting, það vill engin missa af tíma.“
„Þetta hefur gengið glimrandi vel og við finnum fyrir
mikilli ánægu og sjáum þvílíkar framfarir. Við kynnum þau
líka fyrir tækjasalnum og hraðbrautinni og hvetjum þau til
að koma í ræktina oftar en þessa tvo tíma í viku.
Það er alltaf glens og gaman hjá okkur í tímunum en
alltaf tekið vel á því. Svo eru margir sem notfæra sér sund-
laugina og pottana eftir æfingar,“ segir Sigrún Björg.
Áframhaldandi verkefni
„Það er nú þegar búið að taka ákvöruðun um bjóða
upp á áframhaldandi 12 vikna námskeið eftir áramót. Við
verðum með tvo framhaldshópa og einn byrjendahóp. Svo
tökum við stöðuna í framhaldinu hvernig fyrirkomulagið
verður.
Það er líka verið að skoða frekara samstarf við t.d.
Heilsugæsluna. En það er alveg ljóst að þetta er eitthvað
sem verður í boði áfram fyrir eldri borgara í Mosfellsbæ,“
segja þær Halla Karen og Sigrún að lokum.
- Leikfiminámskeið 67 ára og eldri10
JÓLAKORT
PERSÓNULEG
ÞÍN MYND OG ÞINN TEXTI
AUÐVELT AÐ PANTA Á JOLA.IS
MIKIÐ ÚRVAL AF NÝJUM NÝJUM KORTUM
AUÐVELT AÐ PANTA Á JÓLA.IS
„Þetta er alveg svakalega skemmtilegt. Frábærir
kennarar og skemmtilegur hópur. Ég finn mikin mun
á mér, miklu liðugri og öll miklu hressari,“ segir Bryndís
Jóhannsdóttir.
Skemmtilegur félagSSkapur
„Þetta er besta framtak sem bærinn hefur sýnt og ég
vona að þetta haldi áfram. Fá nýliða inn og þá verðum
við framhaldshópur. Þetta er bráðnauðsynleg viðbót við
starf eldri borgara í Mosfellsbæ,“ segir Halldór Sigurðsson.
frábært framtak hjá bænum
Hrærð egg og beikon
Amerískar pönnukökur
Dönsk purusteik
Síld og lekkert
Graflaxsalat
Sjávarréttasalat
Hreindýrabollur
Waldorfsalat
Carpaccio
Paté og sulta
Hnetusteik
Súkkulaðikaka með rjóma
Sætar skyrkökur í krukkum
Makkarónur
Íslenskir ostar
BORÐAPANTANIR: sími 859 4040 eða blik@blikbistro.is
í Mosfellsbæ
www.blikbistro.is
Sunnudaga frá kl. 11 til 14
18/11 | 25/11 | 2/12 | 9/12 | 16/12
Verð kr. 5.900 á mann
Börn undir 12 ára á hálfvirði / Börn yngri en 6 ára borða frítt
Úrval gómsætra rétta af hlaðborði hverju sinni:
Samstarfsverkefni FaMos, Mosfellsbæjar og World Class • Unnið með grunngildi eins og þol, styrk, liðleika og jafnvægi
Leikfimi eldri borgara slær í gegn
stund milli stríða á leikfimi-
námskeiði 67 ára og eldri
Bryndís og halldór að
loknum tíma í world class
M
yn
di
r/
Ra
gg
iÓ
la