Mosfellingur - 29.11.2018, Page 12

Mosfellingur - 29.11.2018, Page 12
 - Bókmenntahlaðborð 201812 AÐSKOTAHLUTUR Í UMHVERFINU, AUÐLIND Í SORPU Íbúar Mosfellsbæjar geta sett allt plast saman í lokuðum plastpoka í sorptunnuna. Plastpokarnir eru flokkaðir vélrænt frá öðru rusli og þeim komið í endurnýtingu. Flokkuðu plasti má einnig skila í grenndargáma eða á endurvinnslustöðvar SORPU. Nánari upplýsingar á facebook.com/plastipoka ÍBÚAR MOSFELLSBÆJAR! NÚ FER ALLT PLAST Í POKA SORPTUNNA (ORKUTUNNA) PLAST SKOLAÐ STAFLAÐ SETT Í PLASTPOKA OG BUNDIÐ VANDLEGA FYRIR Hið árlega og sívinsæla Bókmenntahlað- borð Bókasafnsins var haldið 15. nóvember. Um 330 gestir hlýddu á lestur úr glænýjum jólabókum. Í þetta sinn mættu rithöfundarnir Hall- dóra Thoroddsen með bók sína Katrínar- saga, Hallgrímur Helgason með Sextíu kíló af sólskini, Þórdís Gísladóttir með Horfðu ekki í ljósið, Jónas Reynir Gunnarsson með bókina Krossfiskar og handhafi bók- menntaverðlauna Norðurlandaráðs 2018, Auður Ava Ólafsdóttir, en hún las úr nýrri bók sinni Ungfrú Ísland. Gestum var einnig boðið upp á drykki og piparkökur auk ljúfra tóna í upphafi kvölds frá Sigurjóni Alexanderssyni og Inga Bjarna Skúlasyni sem spiluðu á gítar og flygil. Katrín Jakobsdóttir bókmenntafræðingur og forsætisráðherra stjórnaði líflegum umræðum höfunda að lestri loknum. Hún dró saman helstu einkennisþræði skáldsagnanna sem lesið var úr og komst að þeirri niðurstöðu að allar fjölluðu þær að einhverju leyti um andlega líðan og tilvistarspurningar. Katrín hafði á orði að þátttaka í Bókmenntahlaðborði Bókasafns Mosfellsbæjar væri núorðið eitt af því skemmtilegasta sem hún gerði. Tveimur dögum síðar var aftur veisla í Bókasafninu þegar Bókmenntahlaðborð barnanna var haldið. Rúmlega hundrað börn og fullorðnir hættu sér út í rigninguna til að heyra Sigrúnu Eldjárn, Evu Rún Þor- geirsdóttur og Ævar Þór Benediktsson lesa upp úr nýútkomnum bókum sínum. Helgi R. Einarsson lauk svo dagskránni með því að syngja og spila á gítar með börnunum. Til sölu Fallegar stúkur til sölu, margir litir, 5.000 kr. parið, stór teppi 15.000 kr. stykkið. Tilvalið í jólapakkann. Upplýsingar í síma 897-8897. Tilvalið til skreytinga utandyra um jólin s. 867-2516 www.skogmos.net Lifandi tré 8.000-19.000 kr. Toppar 3.000-8.000 kr. Jólaskógurinn í Hamrahlíð opnar 9. desember 330 gestir hlýddu á upplestur úr nýjum bókum • Forsætisráðherra stjórnaði umræðum GlæsileGt hlaðborð rithöfundar ásamt Katrínu JaKobs- dóttur og auði halldórsdóttur sigurJón og ingi bJarni með lJúfa tóna í upphafi börnin fengu líKa sitt hlaðborð þéttsetinn beKKurinn lesið upp úr nýJum bóKum M yn di r/ Ra gg iÓ la

x

Mosfellingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Mosfellingur
https://timarit.is/publication/1311

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.