Mosfellingur - 29.11.2018, Side 14

Mosfellingur - 29.11.2018, Side 14
JóiPé færir Reykja­ lundi listaverk að gjöf Listamaðurinn Jóhannes Damian Patreksson, einnig þekktur sem JóiPé, færði iðjuþjálfunardeildinni listaverk að gjöf. Listaverkið heitir Þöglir Dagar og er á biðstofu iðjuþjálfunardeildarinnar þar sem það gleður augað. Starfsmaður á Reykjalundi hafði séð myndina á sýningu nema Fjölbrautaskólans í Garðabæ. Jóhannesi bárust tilboð í myndina en hann vildi endilega gefa Reykjalundi hana. Starfsfólk deildarinnar þakkar Jóhannesi kærlega fyrir fallega gjöf. Á mynd- inni má sjá Jóhannes ásamt Birgi Gunnarssyni forstjóra Reykjalundar. Á Reykjalundi fer fram alhliða end- urhæfing sem miðar að því að bæta lífsgæði, færni og sjálfsbjargargetu þeirra sem þangað leita. Reykja- lundur er heilbrigðisstofnun í eigu Sambands íslenskra berkla- og brjóstholssjúklinga (SÍBS) og vinnur samkvæmt lögum um heilbrigðis- þjónustu á Íslandi. Þann 14. september afhentu Vorboðarnir, kór eldri borgara, skjöl kórsins til Héraðs- skjalasafns Mosfellsbæjar við hátíðlega at- höfn. Fjölmenntu félagar kórsins og gerðu sér síðan glaðan dag í tilefni afhendingar- innar. Kolbrún Jónsdóttir hefur haldið utan um skjalamál kórsins síðustu ár af tærri snilld og var ómetanlegum heimildum um sögu kórsins komið í örugga varðveislu á héraðs- skjalasafninu. Kórinn Vorboðarnir var stofnaður 16. desember 1989. Forvígismenn stofnunar kórsins voru Svanhildur Þorkelsdóttir og Páll Helgason sem einnig var kórstjóri. Nútíð verður fortíð Héraðsskjalasafn Mosfellsbæjar langar að biðja sveitungana að athuga hvort ekki leynist fjársjóður í þeirra fórum. Oft hafa merkileg gögn dagað uppi hjá einstakling- um. Þá kunna einnig að finnast opinber gögn tengd stjórnsýslu- og félagsmála- störfum viðkomandi einstaklings. Slíkum gögnum má endilega koma til safnsins. „Rétt er að hafa í huga að nútíð verður fortíð og það sem við erum að sýsla við í dag verður komandi kynslóðum hulin fortíð ef ekkert varðveitist. Þetta er okkur nauðsynlegt að hafa að leiðarljósi og ekki síst þeim er fást við margþætt félags- og stjórnunarstörf. Ef félag eða fyrirtæki hættir starfsemi er nauðsynlegt að koma gögnum þess á skjalasafn til varðveislu,“ segir Birna Mjöll Sigurðardóttir héraðsskjalavörður. Kór eldri borgara afhenti skjöl kórsins til Héraðsskjalasafns Mosfellsbæjar Vorboðar varðveita sögu sína vorboðar fjölmenntu við afhendinguna KöKubasar 7. desember Hvernig væri að bjóða vinnufélögunum upp á heimabakað í seinnakaffinu? Kvenfélagskonur geta auðveldlega aðstoðað, þú finnur þær í Kjarna. Kvenfélag Mosfellsbæjar heldur sinn árlega köku- og handverksbasar í Kjarna föstudaginn 7. desember frá kl. 14:00 og fram eftir degi. Það fé sem safnast verður gefið til góðra málefna í Mosfellsbæ. - Fréttir úr bæjarlífinu14 Lítið mál að elda fuglakjöt • Hvítvínið lætur vita þegar rétt kæling næst • Verði ykkur að góðu Hversdags- eða veislumatur? Kjúklingur er vinsæl fæða, hvort heldur er hversdags- eða sem veislumatur. Það er fljótlegt og einfalt að elda holla og ljúffenga máltíð úr kjúklingi fyrir alla fjölskylduna. Kjúklingakjöt er afar vel samsett næringarfræðilega; próteinríkt og fitusnautt í senn. UMBOÐSAÐILI JEEP OG RAM TRUCKS Á ÍSLANDI • ÞVERHOLT 6 • 270 MOSFELLSBÆR • S. 534 4433 WWW.ISBAND.IS • ISBAND@ISBAND.IS • OPIÐ VIRKA DAGA 10-18 • LAUGARDAGA 12-16 ® JEEP GRAND CHEROKEE TRAILHAWK TORFÆRUÚTGÁFAN AF ÞESSUM FRÁBÆRA JEPPA ALVÖRU JEPPI - ALVÖRU FJÓRHJÓLADRIF DÍSEL 3.0L 250 HÖ, 8 GÍRA SJÁLFSKIPTING, HÁTT OG LÁGT DRIF, DRIFLÆSING AÐ AFTAN. LOFTPÚÐAFJÖÐRUN, HITI OG KÆLING Í FRAMSÆTUM, HITI Í STÝRI, RAFDRIFINN AFTURHLERI OG ÍSLENSKT LEIÐSÖGUKERFI. AUKAHLUTIR Á MYND: DRÁTTARKRÓKAR AÐ FRAMAN. ® HÖRKUTÓL SEM ENDIST TRYGGÐU ÞÉR NÝJAN RAM 3500 SLT, LARAMIE EÐA LIMITED. RAM 3500 VERÐ FRÁ KR. 6.395.000 ÁN VSK. KR. 7.929.800 MEÐ VSK. STAÐALBÚNAÐUR M.A.: Bíll á m ynd er 33” breyttur jeep.is ramisland.is 40” BREYTTUR RAM 3500 LIMITED UMBOÐSAÐILI JEEP OG RAM TRUCKS Á ÍSLANDI • ÞVERHOLT 6 • 270 MOSFELLSBÆR • S. 534 4433 WWW.ISBAND.IS • ISBAND@ISBAND.IS • OPIÐ VIRKA DAGA 10-18 • LAUGARDAGA 12-16 ® JEEP RA D C E EE TRAIL TORF RUÚTGÁFAN AF ÞESSUM FRÁB RA JEPPA ALVÖRU JEPPI - ALVÖRU FJÓRHJÓLADRIF DÍSEL 3.0L 250 HÖ, 8 GÍRA SJÁLFSKIPTING, HÁT OG LÁGT DRIF, DRIFLÆSING AÐ AFTAN. LOFTPÚÐAFJÖÐRUN, HITI OG KÆLING Í FRAMSÆTUM, HITI Í STÝRI, RAFDRIFIN AFTURHLERI OG ÍSLENSKT LEIÐSÖGUKERFI. AUKAHLUTIR Á MYND: DRÁT ARKRÓKAR AÐ FRAMAN. ® HÖRKUTÓL SEM ENDIST TRYGGÐU ÞÉ , I A LIMITED. RAM 350 VERÐ FRÁ KR. 6.395.000 ÁN VSK. KR. 7.929.800 MEÐ VSK. STAÐALBÚNAÐUR M.A.: Bíll á m ynd er 33” breyttur jeep.is ramisland.is 40” BREYTTUR RAM 3500 LI ITED UMBOÐSAÐILI JEEP OG RAM TRUCKS Á ÍSLANDI • ÞVERHOLT 6 • 270 MOSFELLSBÆR • S. 534 4433 WWW.ISBAND.IS • ISBAND@ISBAND.IS • OPIÐ VIRKA DAGA 10-18 • LAUGARDAGA 12-16 ® JEEP GRAND CHEROKEE TRAILH WK TORFÆ UÚTGÁFAN AF ÞESSUM FRÁBÆRA JEPPA ALVÖRU JEPPI - ALVÖRU FJÓRHJÓLADRIF DÍSEL 3.0L 250 HÖ, 8 GÍRA SJÁLFSKIPTING, HÁTT OG LÁGT DRIF, DRIFLÆSING AÐ AFTAN. LOFTPÚÐAFJÖÐRUN, HITI OG KÆLING Í FRAMSÆTUM, HITI Í STÝRI, RAFDRIFINN AFTURHLERI OG ÍSLENSKT LEIÐSÖGUKERFI. AUKAHLUTIR Á MYND: DRÁTTARKRÓKAR AÐ FRAMAN. ® HÖRKUTÓL SEM ENDIST T YGGÐU ÞÉR NÝJAN RAM 3500 SLT, LARAMIE EÐA LIMITED. RAM 3500 VERÐ FRÁ KR. 6.395.000 ÁN VSK. KR. 7.929.800 MEÐ VSK. STAÐA BÚNAÐUR M.A.: Bíll á m ynd er 33” breyttur jeep.is ramisland.is 40” BREYTTUR RAM 3500 LIMITED Við mælum með: Mar de Frades Þetta frábæra spænska hvítvín er búið til úr vinsælu þrúgunni Albarino. Þegar vínið hefur náð réttri kælingu myndast blátt skip framan á miðanum. Meðalfylling, sýruríkt, ósætt, blómlegt og ferskt. Virkilega vandað vín - 2.499 kr. Mexíkóskar kjúklingabringur (fyrir 6-8) Hráefni • 6 kjúklingabringur • 1 dl sítrónusafi • 2 msk. ólífuolía til penslunar • 2 msk. ólífuolía • 1 meðalstór laukur • 1 dós niðursoðnir tómatar • 2 msk. möndlur • 2 msk. rúsínur • 2 tsk. kapers • 5 grænar ólífur • 1/2 msk. niðursoðinn grænn pipar • 1 rauð paprika • 1/2 græn paprika • 1/2 gul paprika • 2 1/2 dl appelsínusafi • 1 dl kjúklingasoð • 1/2 tsk. kanill • 1 msk. kóríander (ferskt) KjúKlingabringur er hægt að elda á marga vegu Aðferð • Raðið kjúklingabringunum í eldfast mót og hellið sítrónusafa yfir. Látið standa í ísskáp í 2 klst. • Penslið með ólífuolíu og bakið í ofni við 180°C í 20 mín. • Hitið olíu í potti og mýkið smátt saxaðan laukinn. • Bætið tómötum, rúsínum, kapers, ólífum og piparkornum út í og látið suðuna koma upp. • Hreinsið og takið kjarna úr paprikum og skerið í strimla. Bætið út í ásamt appelsínusafa og kjötsoði og sjóðið í 15 mín. Bragðbætið með kanil. • Hellið sósunni yfir kjúklinginn og bakið áfram í 20 mín. í ofninum. • Skreytið með fersku kóríander og berið fram með soðnum hrísgrjónum og brauði. Fleiri uppskriftir má finna á www.isfugl.is Matarhorn Mosfellings

x

Mosfellingur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Mosfellingur
https://timarit.is/publication/1311

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.