Mosfellingur - 29.11.2018, Blaðsíða 28

Mosfellingur - 29.11.2018, Blaðsíða 28
Föstudagurinn 15. september 2017 byrjaði eins og allir aðrir dagar hjá fjölskyldu Júlíu Rutar sem býr í Klapparhlíðinni. Börnin fóru í skólann og foreldrarnir til vinnu en stuttu síðar fékk faðirinn símtal frá leikskólanum um að Júlía væri komin með hita svo hún var sótt og farið var með hana heim. Eftir að Júlía Rut var lögst fyrir fann móðir hennar eitthvað ílangt og hart í maga hennar sem var langt frá því að vera eðlilegt og leitaði hún því til læknis. Tveimur dögum síðar var komin end- anleg niðurstaða, Júlía var greind með bráðahvítblæði. Júlía Rut er fædd 11. apríl 2014. Foreldar hennar eru þau Louisa Sif Mønster iðjuþjálfi sem starfar á geðheilsu- sviði Reykjalundar og Lárus Arnar Sölvason hársnyrtir á Quest Hair, Beer and Wisky Saloon. Systkini Júlíu Rutar eru þau Sölvi Már f. 2009 og Arna Sif f. 2015. Keyptu sér íbúð í Mosfellsbæ „Ég ólst upp í Hafnarfirði og Lárus í Breiðholtinu en árið 2004 keyptum við okkar fyrstu íbúð hér í Mosfellsbæ,“ segir Louisa Sif. „Ástæða þess er kannski sú að við eltum mág minn hingað upp eftir og þegar þau keyptu sér nýja íbúð í Klappar- hlíð þá slógum við til líka. Á árunum 2006- 2011 bjuggum við í Danmörku þar sem ég stundaði nám í iðjuþjálfun.“ Fann eitthvað ílangt og hart „Það er ótrúlegt hvað líf manns getur breyst á örskotsstundu,” segir Louisa Sif þegar ég spyr hana hvernig veikindi Júlíu Rutar hafi uppgötvast. „Lárus fékk símtal frá leikskólanum um það að Júlía Rut væri komin með hita svo að hún var sótt og farið með hana heim. Hún sofnaði í stuttan tíma og þegar hún var að vakna strauk ég yfir magann á henni og finn þá eitthvað ílangt og hart sem mér fannst eitthvað skrítið. Ég ráðfærði mig við Jennýju vinkonu mína sem starfar sem hjúkrunarfræðing- ur og hún ráðlagði mér að panta tíma hjá Domus Medica sem ég gerði og við kom- umst að sama dag. Á móti okkur tók Ólafur Gísli læknir sem skoðaði Júlíu Rut og eftir að skoðuninni lauk bað hann mig um að fara með hana beint á bráðamóttökuna.“ Smávægileg einkenni komu í ljós Á bráðamóttökunni fór Júlía Rut í rann- sóknir og í sneiðmyndatöku. Rétt fyrir mið- nætti fengust þær fréttir frá læknunum að þeir töldu að hún væri með bráðahvít- blæði. Endanleg greining kom svo í ljós tveimur dögum seinna, bráða- eitilfrumuhvítblæði (T-ALL). Það sem fannst í maga Júlíu Rutar var bólgið milta sem var búið að ryksuga allar hvítblæðisfrumurnar. Ef þessi bólga hefði ekki upp- götvast þá hefðu næstu einkenni verið blóðnasir og húðblæðingar. Með tímanum hefði hún líka hækkað í hvít- blæðisprósentunni, en hún var með 67% við grein- ingu. „Þegar við hugsum til baka þá voru smávægileg einkenni sem tengdust sjúk- dómnum smám saman búin að koma í ljós. Hún hafði t.d. kvartað undan verkjum í fótum, þreytu og kulda og að henni væri illt í maganum en það lagaðist oft fljótt þegar hún var búin að borða. Heimurinn hreinlega hrundi við þessar fregnir og það eina sem komst að í huga okkar var að við gætum misst hana. Þessi heimur var okkur mjög framandi og okkur leið eins og búið væri að kippa undan okkur fótunum.“ Þurfti ekki að fara til Svíþjóðar „Þegar við Lárus vorum aðeins búin að ná áttum fengum við fljótlega þær upplýsingar að mikið væri búið að gerast í krabbameins- rannsóknum barna og þá sérstaklega síðustu 10 ár og að batahorfur væru mjög góðar. Júlía Rut greinist á föstudegi og byrjaði í meðferð þremur dögum seinna eða 18. september. Meðferðartíminn er tvö og hálft ár þannig að hún ætti að klára meðferð vorið 2020. Hún var nánast á spítalanum samfellt fyrstu átta mánuðina. Hún fór í margar háskammtameðferðir, fór heim í nokkra daga, fékk hita, fór þá í einangrun og fékk sýklalyf og svo byrjaði næsta meðferð, svona gekk þetta í margar vikur. Í nóvember 2017 eða eftir nokkrar háskammtameðferðir fengum við þær gleðifregnir að hvítblæðisprósentan væri komin niður í 0,04%. Það þýddi á þessum tímapunkti að hún þurfti ekki að fara til Svíþjóðar í beinmergsskipti. Hún hélt því áfram í háskammtameðferð og 13. desem- ber var hvítblæðið horfið. Það þýddi þó ekki að meðferðin væri búin, meðferðin er alltaf tvö og hálft ár, annars er hætta á að hvítblæðisfrumurnar fjölgi sér aftur.“ Vorum lömuð af hræðslu „Eftir stífar átta mánaða háskammta- meðferðir fór Júlía Rut yfir á viðhalds- meðferð. Í þeirri meðferð er lengra á milli meðferða. Það var búið að segja okkur að nú yrði þetta allt betra og okkur var létt við þær fregnir. Hún hafði grennst mjög mikið, verið með mikla ógleði, átti erfitt með gang og fleira. En þar sem ónæmiskerfið er oft svo bælt, greindist Júlía Rut með CMV-veiru í júní sl. Þetta er veira sem er ekki hættuleg fyrir MOSFELLINGURINN Eftir Ruth Örnólfsdóttur ruth@mosfellingur.is Júlía Rut Lárusdóttir Mønster greindist með bráðahvítblæði árið 2017 aðeins þriggja ára gömul Heimurinn hreinlega hrundi við þessar fregnir - Mosfellingurinn Júlía Rut Lárusdóttir Mønster28 Myndir: Ruth Örnólfsdóttir, Sjöfn Ólafsdóttir og úr einkasafni. SyStkinin ArnA Sif, Sölvi Már og JúlíA rut
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Mosfellingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Mosfellingur
https://timarit.is/publication/1311

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.