Mosfellingur - 29.11.2018, Blaðsíða 50

Mosfellingur - 29.11.2018, Blaðsíða 50
JólagJafir Ég gaf konunni minn brim-brettanámskeið í jólagjöf fyrir nokkrum árum. Brimbrettanámskeið í nágrenni Þorlákshafnar. Mér fannst þetta geggjuð gjöf, hafði sjálfur fengið samskonar afmælisgjöf stuttu áður og fannst magnað að læra að standa á bretti í íslenskum öldum. Ekki það að ég hafi sýnt neina meist- aratakta, en náði að hanga á brettinu og skemmti mér konunglega. Konunni minni fannst þetta ekki jafn geggjuð gjöf. Sendi mér áhugavert augnaráð þegar hún opn- aði pakkann. Aðalástæðan fyrir því var líklega að hún var vel ólétt þessi jól, alveg komin á steypirinn, og fannst í því ástandi ekki spennandi að henda sér út í kaldan íslenskan sjó um miðjan vetur. Þrátt fyrir að hafa aðeins mis-reiknað mig um þessi jól er ég enn sannfærður um að bestu jólagjafirnar séu hreyfi- og upplif- unargjafir. Helst þannig að sá sem gefur gjöfina og sá sem þiggur hana geti farið saman í upplifunarferðina, á námskeiðið, á leikinn eða hvað nú sem gjöfin akkúrat snýst um. Möguleikarnir eru margir og hægt að sníða þá að þykkum og þunnum veskjum. Það er hægt að kaupa gjöfina en svo er líka hægt að skipuleggja viðburðinn sjálfur, útbúa gjafabréf og sjá um framkvæmdina. Ég held að við höfum flest pláss og þörf fyrir meiri samveru með þeim sem standa okkur svo nærri að við gefum þeim gjafir og með upplifun- argjöf getur maður slegið tvær flugur í einu höggi. Gefið góða gjöf og fengið góða og skemmtilega samveru í leiðinni. Ég gæti talið upp ótal atriði sem hægt er að flokka sem upplif- unargjöf. En ég ætla ekki að gera það. Frekar ætla ég að hvetja þig til að velta fyrir þér hvað sá/sú sem þú gefur gjöf hefur gaman af að gera. Eða gæti haft gaman af að gera. Bara passa sig á að gefa ekki háóléttri eiginkonu brim- brettanámskeið að vetri til. Heilsumolar gaua www.fastmos.is Sími: 586 8080 Þverholti 2 - Heilsa og kennsla50 Guðjón Svansson gudjon@kettlebells.is Íslenska ullin er einstök Íslenskt sauðfé hefur gefið Íslendingum skjólmikla ull sem náttúran hefur þróað eftir veðri og vindum í meira en 1000 ár. lopi 38 Ný prjóNabók er komiN út Bráðgerir nemendur í Varmárskóla Árni Jón Hannesson, umsjónarkennari í Varmárskóla hefur kennt mörgum nemendum þar á bæ. Hann hóf kennslu við Varmárskóla árið 1998. Hann hefur allar götur síðan tileinkað starf sitt börnum, menntun þeirra og velferð. Árni hefur verið að þróa kennsluefni fyrir börn alveg frá því að hann hóf störf sem kennari. Haustið 2017 byrjaði hann að bjóða bráðgerum nemendum viðbótarkennslustundir. Kennslustund- irnar eru í boði eftir hefðbundna kennslu og hafa nemendur Varmárskóla ásamt nokkrum nemendum Krikaskóla mætt í þessa skapandi tíma hjá Árna. En gefum Árna orðið: „Ég leyfi nemendum svolítið að ráða hvað er rætt um hverju sinni. Hvað langar þau að læra meira um, hvar liggur áhuginn. Það hafa verið að mæta hjá mér 15-20 börn úr 4. til 5. bekk annan hvern þriðjudag, svo hina þriðjudagana hafa verið að mæta 18-23 börn úr 6. til 8. bekk. Í einni kennslustundinni tókum við fyrir umræður um Hubble sjónaukann, skoðuðum myndir og myndbönd. Út frá þeirri um- ræðu spratt áhugi barnanna á sólinni. Við skoðuðum myndbönd af sólinni, stjörnuþokum, vegalengdum í alheiminum, lofthjúp jarðar og nokkrum þekktu, stjörnum í okkar ímynduðu stjörnumerkjum, s.s. stjörnurnar í Órionþokunni, Fjósakonurnar 3 og Andrómedu og margt fleira. Reikistjarnan Mars er í miklu uppáhaldi hjá mér og krökkunum. Við erum búin að skoða myndir af algengum hlutum og lífverum sem eru teknar í gegnum rafeindasmásjá.“ Eins og fram kemur í greininni er Árni duglegur að leyfa áhuga krakkanna að ráða för. Stjörnufræðin er þar ofarlega á blaði og vildu krakkarnir vita ýmislegt um fjarlægðir og stærðir. Sífreri og metangas ásamt öðrum náttúrufyrirbærum er eitthvað sem vekur áhuga barnanna. Árni vinnur með ýmis stærðfræðihugtök eins og flatarmál og um- mál. Einnig hefur hann verið duglegur við að kenna stærðfræðina verklega eins og að búa til þvívíddarform, þríhyrninga og ferstrend- inga. Krakkarnir reikna svo stærðfræðidæmi út frá hugtökunum. Svo er tilvalið að ljúka tímanum með því að skoða myndband úr alheiminum þar sem stærðarhlutföll eru vegin og metin. Sem sagt alltaf gaman í Varmárskóla. Ásgerður Inga, Elfa Dís Austmann, Kristín Svanhildur Kennarar í 1. bekk Varmárskóla
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Mosfellingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Mosfellingur
https://timarit.is/publication/1311

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.