Mosfellingur - 29.11.2018, Qupperneq 52

Mosfellingur - 29.11.2018, Qupperneq 52
Sendið okkur myndir af nýjum Mos- fellingum ásamt helstu upplýsingum á netfangið mosfellingur@mosfellingur.is Kormákur Fjeldsted fæddist 28. júní 2018. Hann var 3600 g og 52 cm. Foreldrar hans eru Arna og Gulli og systkini hans eru Ísólfur og Karítas. Í eldhúsinu sá bjartsýni Komið þið sæl, það er komið að reglulegum tuðpistli frá mér úr Huldu- hlíðinni, og að þessu sinni er úr mörgu að velja í tuðdeildinni. Það virðist ekki vanta fallbyssufóður í tuðvélina enda e r hægt að nöldra yfir nánast öllu. Ég er n ú eiginlega landsliðsmaður þegar kemur að nöldri og eiginlega fyrirliði liðsins e f því er að skipta. Það væri til dæmis hægt að tuða yfir því að lítrinn af bensíni hækki og hækki, hvort sem það er út af hækkand i gengi eða út af einhverju rugli í Banda - ríkjaforseta. Það væri hægt að tuða yfir því að það er byrjað að spila jólalög á sumum útvarpsstöðum landsins og þa ð í byrjun nóvember. Það væri hægt að nöldra endalaust yfir pólitíkinni og/eð a fólkinu í pólitíkinni, hvort sem það er á Alþingi eða í bæjarpólitíkinni. Það vær i hægt að grenja yfir íslensku krónunni og endalausum óstöðugleika hennar. Það væri hægt að væla yfir því að Wow air s é farið á hausinn og að það sé ekki lengu r hægt að fljúga milli Íslands og Evrópu fyrir sama gjald og það kostar að fara á landsleik í Laugardalnum. Það væri ennþá hægt að nöldra yfir braggamálin u (enda óskiljanleg skita þar á ferð). En ég bara nenni því ekki í dag. Ég er búin að skreyta og er komin í léttan jólafíling. Ég er að undirbúa skötuna í vinnunni og það fer að styttast í fyrstu heimsókn frá einum af sveinunum þrettán. Liverpool er ekki enn byrjað a ð skíta upp á bak (njóta á meðan það en d- ist), jólabjórinn er kominn í verslanir og José Mourinho er ennþá stjóri Man Utd. Ég held bara að ég nenni ekki að sjóða í einn nöldurpistil að þessu sinni . Ég er bara aldrei þessu vant í nokkuð góðu skapi þessa dagana. Ég held að við séum orðin of góðu vön þegar við gerum ekkert annað en að nöldra yfir svona smámunum eins og virkir í athugasemdum missa svefn yfir. Það eru ömurlegir hlutir að gerast úti um allan sem við minnumst ekkert á og okkur virðist drullusama um, en þjóðfélagið hér á Klakanum fer á hliðina ef Birgitta Haukdal notar orðið hjúkrunarkona??? En gleðileg jól frá mér úr Hulduhlíðinn i og munið að versla við Björgunarsveit- ina fyrir áramót. Herdís og Erlendur skora á Tedda og Mæju að deila næstu uppskrift - Heyrst hefur...52 Herdís Sigurjónsdóttir og Erlendur Fjeldsted deila hér með okkur uppskrift að pizzum sem eru vinsælar á föstudagskvöldum á þeirra heimili. Krakkarnir kalla þær pabba´s pizzas og vilja meina að þær séu svo sannarlega bestu pizzur þótt víðar væri leitað. Hér fylgir uppskrift að hvítlauks- brauði og pizzu sem hægt er að gera á skömmum tíma. Ef tíminn er nægur má náttúrulega útbúa pizzurnar frá grunni. Í dag kaupum við helst tilbúna pizzabotna frá Shake & Pizza. Við kaupum líka hvítlaukssósuna og tilbúna beikonsultu þaðan, sem er mjög þægilegt. Við kaupum gula pizzakornið (Durum hveiti) og kantaolíu í IKEA og náttúrulega pizzajárngrindurnar, sem eru ómissandi að okkar mati. Hvítlaukspizzubrauð Láta botninn ná stofuhita. Best er að strá gulu pizzakorni (Durum hveiti, fæst í IKEA) áður en botninn er flattur út. Botninn (ca. 16”) er lagður á pizzagrind. Setja ólífuolíu ofan á deigið, vel af henni. Strá fínt söxuðum hvítlauk yfir (í það minnsta 1-2 solo laukar). Krydda vel með hvítlaukskryddi og grófu salti. Strá rifnum pizzaosti yfir og krydda aðeins í restina með pizzakryddi. Baka í ofni á pizzaprógrammi eða á 275°C hita í ca. 5-7 mín. Beikonsultupizza Láta botninn ná stofuhita. Best er að strá gulu pizzakorni (Durum hveiti, fæst í IKEA) áður en botninn er flattur út. Botninn (ca. 16”) er lagður á pizzagrind. Þekja pizzuna vel af beikonsultu, hægt er að kaupa tilbúna beikonsultu frá Shake & Pizza í Krónunni. Eins er hægt að gera sína eigin beikonsultu, ef maður hefur tíma. Setja pepperoni og vel af steiktum og krydduðum kjúklingi (hægt að kaupa tilbúinn rifinn kjúkling, BBQ eða fahitas). Skera rauða papriku og strá yfir og loks Doritos-flögum. Cool American er vinsælast í Rituhöfða 4. Síðast er pizzaosti og pizzakryddi stráð yfir. Baka í ofni á pizzaprógrammi eða á 275°C hita í ca. 5-7 mín. Að bakstri loknum er ómissandi er að setja nokkra hringi af Shake & Pizza hvítlaukssósu yfir. Verði ykkur að góðu! Heyrst Hefur... ...að Eurobandið, með Friðrik Ómari, Regínu og Selmu, muni leika fyrir dansi á Þorrablóti Aftureldingar sem fram fer í íþróttahúsinu 26. janúar. ...að 13 ára Mosfellingur, Þórdís Karls- dóttir, sé að taka þátt í Jólastjörnu Björgvins Halldórs. ...að Arion banka-húsið í Þverholti sé nú til sölu á 180 milljónir. ...að Afturelding hafi dregist gegn Haukum í 16 liða úrslitum Coca-Cola bikars karla. ...að Steindi Jr. sé með bók í jólabóka- flóðinu sem nefnist Steindi í orlofi. ...að þrír vinningar hafi komið á Lottómiða sem keyptir voru á N1 og á Lukku Láka í Mosfellsbæ um síðustu helgi, alls 300.000 kr. ...að mosfellskir unglingar séu langt yfir landsmeðaltali þegar kemur að notkun rafretta samkvæmt nýrri rannsókn á lýðheilsu ungs fólks í Mosfellsbæ. ...að bæjarfulltrúar Mosfellsbæjar séu með milljón á mánuði að jafnaði samkvæmt vefsíðunni Tekjur.is. ...að handboltamaðurinn Elvar Ásgeirsson hafi tekið þátt í æfingum hjá Stuttgart á dögunum og kemur fljótlega í ljós hvort hann fá tilboð frá Þýskalandi. ...að björgunarsveitin sé búin að láta sérstaka Kyndils-köku sem verði til sölu í flugeldasölunni á milli hátíðanna. ...að meira en helmingur allra ökutækja keyri yfir hámarkshraða framhjá Lágafellsskóla og nú sé verið að undirbúa uppsetningu á hraðavaraskilti í Baugshlíðinni. ...að pop-up markaður verði haldinn í Kjarnanum á laugardaginn. ...að snappararnir vinsælu Sólrún Diego og Linda Ben séu báðar að innrétta húsin sín í Mosó og leyfi fylgjendum sínum að fylgjast með. ...að handboltaparið Íris og Toggi Rothögg hafi eignast stúlku á dögunum. ...að tveir heimaleikir séu fram undan hjá strákunum í handboltanum næstu sunnudaga kl. 17. ...að jólamarkaður Skálatúns verði haldinn 1. desember og hjá Ásgarði laugardaginn 8. desember. ...að Fálkarnir séu búnir að semja við Jako. ...að sýndir verði fjórir jólaþættir á RÚV fyrir jólin með álfabörnunum Þorra og Þuru sem ættuð eru úr Mosfellsbæ. ...að Matti Matt ætli að syngja á Miðbæjartorginu þegar ljósin verða tendruð á laugardaginn. ...að UMFUS ætli að gefa út glæsilegt afmælisrit fyrir áramót í tilefni 20 ára afmæli félagsins. ...að höfuðstöðvar Borgarplasts í Völuteigi séu nú auglýstar til sölu. ...að Laila hafi fengið bónorð frá Hilmari Harðar á golfvellinum á Spáni. mosfellingur@mosfellingur.is Föstudagspizza Hjá HerdÍsi og ell a Þessar 9 ára stúlkur úr Lágafellsskóla, þær Lísa, Fanney og Daníela hittu formann Hringsins Önnu Björk Eðvarðsdóttur og færðu henni söfnunarfé, alls 22.000.- kr., sem þær höfðu safnað fyrir Barnaspítalasjóð Hringsins. Þær gengu í hús og seldu ýmsan varning sem þær höfðu t.d. föndrað og seldu bangsana sína. HLUTAVELTA (fálkaungi ) kliddi.blog.is högni snær Sendið okkur myndir af nýjum Mosfellingum ásamt helstu upplýsingum á mosfellingur@mosfellingur.is

x

Mosfellingur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Mosfellingur
https://timarit.is/publication/1311

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.